16.03.1987
Neðri deild: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4248 í B-deild Alþingistíðinda. (3918)
342. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hér er um að ræða tillögu sem á engan hátt flækir staðgreiðslukerfið. Till. gerir einungis ráð fyrir því að ríkissjóði verði skylt að skila Framkvæmdasjóði aldraðra þeim peningum sem ríkissjóður innheimtir í þágu Framkvæmdasjóðsins. Ég segi því já, herra forseti.