30.10.1986
Sameinað þing: 10. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 439 í B-deild Alþingistíðinda. (393)
1. mál, fjárlög 1987
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Hvaða tíðindi boðar fjárlagafrv. fyrir næsta ár? Það boðar að áfram verður mikil óstjórn á fjármálum ríkisins. Það boðar að enn ætlar ríkisstjórnin að taka risastóran óreiðuvíxil til að fleyta sér fram yfir kosningar þrátt fyrir gífurlegan halla á fjárlögum þriðja árið í röð. Það boðar að ríkisstjórnin ætlar að skilja eftir sig uppsafnaðan halla þessara þriggja ára sem nemur a.m.k. 6000 millj. kr., vanda sem komandi ríkisstjórnum er ætlað að leysa með aðstoð skattgreiðenda. Varla þarf að segja neinum að þetta verður ljótasti viðskilnaður íslenskrar ríkisstjórnar frá upphafi vega.
Þetta frv. færir skattgreiðendum vondar fréttir. Tekjuskattur einstaklinga, sem hækkaði um 600 millj. á þessu ári þrátt fyrir hástemmd loforð í gagnstæða átt, lækkar aðeins sem nemur hálfri þessari hækkun, en áfram munu stórfyrirtæki og eignamenn njóta góðs af hriplekum skattalögum sem eru með margvíslegum smugum og ástæðulausum undanþágum eins og flestir þekkja, undanþágum sem skerða tekjur ríkissjóðs sennilega um álíka háa upphæð og nemur hallarekstrinum.
Ekki vantar örlætið í þessu frv. þegar gæluverkefni ríkisstjórnarinnar eiga í hlut. Verslunareigendur í nýja Hagkaupshúsinu fá þær góðu fréttir í þessu frv. að varið verði 40 millj. kr. í nýtt útibú áfengisverslunar þar á staðnum, að sjálfsögðu til að auka aðsóknina í húsið. Og flugstöðin fær 500 millj. kr. Hins vegar er efni frv. vond tíðindi fyrir sveitarfélögin sem svipt eru 300 millj. kr. tekjum, vond tíðindi fyrir landsbyggðina almennt, vond tíðindi fyrir bændur vegna enn rýrnandi niðurgreiðslna og 30% boðaðrar hækkunar á áburðarverði næsta vor, vond tíðindi fyrir námsmenn, bæði hvað varðar Lánasjóðinn og dreifbýlisstyrki til framhaldsskólanema, vond tíðindi fyrir húsbyggjendur með 300 millj. kr. lækkun framlags til byggingarsjóða, vond tíðindi fyrir alla þá sem leggja áherslu á jafnréttismál og félagsleg verkefni, t.d. vegna helmings niðurskurðar á framlögum til leikskóla og dagheimila. Ef nefna ætti eitt orð sem lýsir þessu frv. er það að stefna þess er andfélagsleg. Við skulum líta nánar á þessa hlið frv.
Í frv. er boðað að framlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga verði lækkað, að lögbundnar tekjur sjóðsins verði skornar niður sem nemur 300 millj. kr. og þær fluttar í ríkissjóð. Ég leyfi mér að fullyrða að þótt ríkisstjórnir fyrr og síðar hafi haft uppi ýmiss konar sparnaðarviðleitni hefur engin sýnt af sér fyrr þá ósvífni að skerða þennan tekjustofn sveitarfélaganna sem er lögbundinn tekjustofn þeirra og á ekki að snerta ríkissjóð með einum eða neinum hætti öðrum en þeim að þessar tekjur eiga að koma við hjá ríkissjóði, koma inn í sjóðinn og eru greiddar þaðan út aftur.
Jafnframt er í frv. boðað að sveitarfélögin eigi að fá aukið frelsi til að leggja á útsvar, hækka það ef þeim sýnist svo. Það er því ljóst að á móti þessari boðuðu tekjuskattslækkun upp á 300 millj. kr., sem er gervilækkun eins og ég lýsti áðan vegna þess að það er í raun áframhaldandi 600 millj. kr. hækkun á þessu ári, gætu skattar ríkis og sveitarfélaga sameiginlega átt eftir að hækka vegna þess að sveitarfélögin hljóta að bæta sér upp skerðinguna á greiðslunum í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga með hækkun útsvars.
Þennan niðurskurð á framlaginu í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga má skoða líka í öðru ljósi. Ríkisstjórnin hælir sér af því með þessu frv. að nokkur hækkun hafi orðið á framlögum til grunnskóla, sjúkrahúsa og hafna. Það er rétt út af fyrir sig þó að hækkunin sé að vísu engan veginn til að bæta upp þá skerðingu sem átt hefur sér stað á liðnum árum. Þar var orðið um helmings niðurskurð að ræða og hækkunin sem nú fæst gerir engan veginn að bæta það upp. Framlög til flugvalla eru hins vegar óbreytt og lækka því hlutfallslega og framlög til dagvistarstofnana lækka um helming eða rúmlega það ef tekið er tillit til verðlagsbreytinga. Það má því í raun og veru segja að fjmrh. útvegi sér fjármagn til hækkunar á framlögum til sveitarfélaga með því einu að taka af þeim nokkurn veginn jafnháa upphæð í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Auðvitað breytir engu í hvaða ljósi við skoðum þessar tölur. Þarna er um að ræða reikningskúnstir sem eru ætlaðar til þess eins að villa mönnum sýn, telja fólki trú um að nú fáist aukið fjármagn til sveitarfélaganna þegar raunverulega er um hið gagnstæða að ræða þegar skerðingin á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga er tekin með í reikninginn, telja fólki trú um að verið sé að lækka skatta þegar raunverulega er verið að hækka skatta.
Í frv. er boðað að Byggðastofnun skuli fá 80 millj. kr. framlag úr ríkissjóði. Það er sama upphæð og var í fyrra og því er þar um raunlækkun að ræða og er það satt að segja með ólíkindum hvað þessi ríkisstjórn Framsfl. og Sjálfstfl. hefur leyft sér að skerða framlög til Byggðasjóðs mikið í sinni stjórnartíð.
Í fjárlögunum má lesa að Pósti og síma er ætlað að skila í ríkissjóð 200 millj. kr. Hér er um að ræða einhverja furðulegustu skattlagningu sem lögð hefur verið á þjóðina á seinni árum því að þessi símaskattur verður að gerast með því að Póstur og sími hækki gjaldskrá sína sem þessum skatti nemur. Það er halli á Pósti og síma um þessar mundir. Það er enginn afgangur og því ljóst að framlagið til ríkissjóðs verður að innheimta með sérstakri hækkun gjaldskrár.
Ég vil hins vegar bæta því við að ef einhver afgangur væri í raun og veru hjá Pósti og síma væri að sjálfsögðu sanngjarnara og eðlilegra að nota það fjármagn til að jafna símgjöld í landinu. Við Alþýðubandalagsmenn höfum einmitt flutt tillögu í þinginu um jöfnun símgjalda. Það er sanngirnismál. Það er réttlætismál. En þessi símaskattur er aftur á móti eitthvert versta uppátækið gagnvart landshlutum fjarri Faxaflóasvæðinu sem þessi ríkisstjórn hefur fundið upp á og er þá mikið sagt.
Í frv. er greinilega gert ráð fyrir að niðurgreiðslur á húshitun fari lækkandi. Þetta bætist við hitt að verðjöfnunargjald var fellt niður á þessu ári og því er sannarlega ástæða til að óttast að veruleg hækkun verði á rafmagnstöxtum umfram verðlagsbreytingar á komandi ári ef ekkert verður að gert. Hér eru mál öll í þoku og sannarlega er ekki á mínu færi að spá neinu um það hversu mikil raunhækkun verður þarna á ferðinni, en það er ástæða til að vara við. Það er ástæða til að óttast að hækkun gæti orðið.
Enn eitt dæmið um þá andfélagslegu stefnu sem einkennir fjárlagafrv. er meðferðin á Ríkisútvarpinu. Hún er alþekkt úr umræðum liðinna daga. Ríkisútvarpið veitir samfélagslega þjónustu sem er sannarlega mjög mikilvæg fyrir alla landsmenn og þá ekki síst fólkið í hinum dreifðu byggðum landsins. Í nýjum útvarpslögum var gert ráð fyrir sérstökum tekjustofnum í þágu Ríkisútvarpsins vegna þess að sýnt þótti að nýjar útvarps- og sjónvarpsstöðvar hlytu að skerða tekjur Ríkisútvarpsins frá því sem nú er. En í fjárlagafrv. er Ríkisútvarpið svipt þessum tekjum og svo er því jafnhliða áframhaldandi haldið í spennitreyju lítt breyttrar gjaldskrár þannig að stórfelldir rekstrarerfiðleikar blasa við á þeim bæ. Og fjmrh. hikar svo ekki við á sama tíma að boða það opinberlega að selja eigi utan af Ríkisútvarpinu flíkurnar, t.d. Rás 2 í hljóðvarpinu, og bætir svo gráu ofan á svart með því að gefa úr ríkissjóði á nákvæmlega sama tíma 45 millj. kr. með tollalækkunum á svonefndum „afruglurum“ til að auðvelda einkaaðilum að ná sem mestum tekjum frá Ríkisútvarpinu.
Ég lít svo á og segi það í fullri alvöru og hreinskilni að þessi árás á Ríkisútvarpið sé árás á fólkið í dreifðum byggðum landsins, alveg sérstaklega þar sem sjónvarp sést ekki enn þann dag í dag, það er þó hér og hvar um landið, og þar sem útvarp heyrist illa sem einnig er víða um land, FM heyrist alls ekki og langbylgja illa.
Enn eitt dæmi um andfélagslega stefnu þessa frv. eru framlögin til jöfnunar námskostnaðar. Enn er upphæðin 20 millj. kr. á árinu 1987. Og hvernig skyldi þróun þessara framlaga til dreifbýlisstyrkja í þágu framhaldsskólanema hafa verið á liðnum árum? Árið 1987 20 millj., á árinu sem er að líða, 1986, sama upphæð, 20 millj., á árinu þar á undan, 1985, sama upphæð, 20 millj., á árinu þar á undan, 1984, nokkurn veginn sama fjárhæð, 18 millj. Sem sagt: í tíð þessarar stjórnar verður nákvæmlega engin hækkun, 2 millj., úr 18 í 20 millj., á sama tíma og verðlag hefur breyst um meira en 80%. Þetta er sú kveðja sem unga fólkið úr dreifbýlinu, sem stundar nám í framhaldsskólum víðs vegar um land, fær frá þessari ríkisstjórn.
Sama gildir um unga fólkið sem verður að leita til Lánasjóðs ísl. námsmanna til að tryggja sér jafnrétti til náms á við þá sem betur eru settir fjárhagslega. Lánasjóður ísl. námsmanna fær á næsta ári lægri fjárhæð í beinu framlagi en á árinu 1986, er að vísu ætlað að bæta sér þetta upp með mjög verulega hækkuðum lántökum, en þar sem vitað er að lánin eru vaxtalaus sem veitt eru en með talsverðum vöxtum sem tekin eru sjá allir að þarna hlýtur að vera stefnt í alvarlegar fjárhagsþrengingar sjóðsins.
Þar við bætast boðaðar breytingar á útlánareglum sem svo sannarlega verða ekki kallaðar neitt annað en andfélagslegar ráðstafanir.
Sama er uppi á teningnum ef við snúum okkur að Framkvæmdasjóði fatlaðra. Honum er ætlað að fá á næsta ári 52 millj. kr. auk tekna af erfðafjárskatti sem nema 48 millj. kr. Það þarf vonandi ekki að segja mörgum þau tíðindi að í tíð þessarar stjórnar er um stórfellda lækkun á þessum framlögum að ræða. Á árunum 1981-1983 voru framlögin til Framkvæmdasjóðs öryrkja og þroskaheftra að jafnaði frá 100 millj. upp í 117 millj. miðað við raungildi fjárveitinga á árinu 1986. En eftir að þessi stjórn hefur tekið við er raungildi fjárveitinga á bilinu milli 55 og 66 millj. seinustu þrjú árin og á greinilega að lækka enn frekar á næsta ári. Hér er um álíka breytingu að ræða, þ.e. helmings lækkun, og er að eiga sér stað í sambandi við framlögin til dagheimila og leikskóla og átt hefur sér stað á þessu kjörtímabili varðandi ýmiss konar nauðsynleg framlög til bygginga sveitarfélaga.
Svo að bætt sé við enn einu félagslegu verkefni og í þessu tilviki verkefni í samfélagi þjóðanna, þá er ljóst að þróunaraðstoðin til fátækra þjóða á enn að lækka á þessu ári, hefur farið hríðlækkandi í tíð þessarar stjórnar þveröfugt við samþykkt Alþingis frá árinu 1985 þar sem gert var ráð fyrir því að stefnt yrði að því að 0,7% af þjóðarframleiðslu rynnu til þessa málaflokks. Á árinu 1985 nam hins vegar prósentutalan 0,087. Hún fór niður í 0,063% árinu seinna, 1986, og hún á að fara niður í 0,05% á árinu 1987. Það er sem sagt ekki aðeins að hin félagslegu viðfangsefni innanlands séu stórlega skert heldur líka þetta sjálfsagða sanngirnismál, þetta félagslega verkefni í samfélagi þjóðanna.
Svo litið sé á aðrar hliðar frv. má minna á að það er sameiginlegt hagsmunamál neytenda og bænda að verðlag á landbúnaðarafurðum sé sem lægst. Niðurgreiðslur fara hins vegar ört minnkandi nú um stundir og gert er ráð fyrir að þær verði óbreytt krónutala á næsta ári miðað við það ár sem er að líða. Það er því ljóst að niðurgreiðslurnar eru smám saman að hverfa út úr myndinni og eru nú aðeins brot af því sem áður var. Þetta á sinn þátt í því að auka framfærslukostnað heimilanna, sérstaklega hinna fátækari þar sem matvælin vega þyngra, og um leið veldur þetta auknum erfiðleikum í landbúnaði vegna þess að neysla dregst saman.
Í fjárlagafrv. er boðað að lagður verði á virðisaukaskattur senn hvað líður. Það mál er náskylt vegna þess að ef hann er lagður á með þeim hætti sem ríkisstjórnin lagði til á s.l. ári munu landbúnaðarvörur hækka enn frekar í verði, bæði til tjóns fyrir neytendur og fyrir landbúnaðinn. Auðvitað liggur ekkert fyrir hvernig ríkisstjórnin hyggst haga álagningu þessa skatts. Löngum hefur verið sagt að erfitt væri að gera þar nokkrar undantekningar. Auðvitað er þetta stærsti ágallinn á skattinum ef svo fer að hann leggst með fullum þunga á afurðir landbúnaðarins.
Það eru fáir dagar síðan þau óvæntu tíðindi gerðust að framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins og fyrrv. framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins, þ.e. núv. fjmrh., lentu heldur betur í hár saman í fréttatímum sjónvarps. Vinnuveitendasambandið hélt því nefnilega fram að það væri bersýnilega um að ræða raungildishækkun skatta frá árinu 1985 til 1986, að hækkunin væri miðað við byggingarvísitölu 5,6% og miðað við framfærsluvísitölu 8,2% og að beinir skattar mundu greinilega hækka um 3% á næsta ári.
Margir munu hafa tekið eftir því að núv. fjmrh. brást ókvæða við þegar eftirmaður hans í starfi hjá vinnuveitendum kom með þessar ábendingar. Og Þorsteinn var ekkert að tvínóna við það í reiði sinni að fordæma slíkar reikningskúnstir sem hann kenndi við blekkingar. Hvor skyldi nú hafa haft rétt fyrir sér í þessu máli, fyrrv. eða núv. framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins? Auðvitað er það í þessu tilviki eins og oft þegar menn deila um tölur að báðir höfðu nokkuð til síns máls. Munurinn lá fyrst og fremst í því að Vinnuveitendasambandið reiknaði út frá verðlagsbreytingum milli ára, en hæstv. fjmrh. notaði alveg sömu tölur en miðaði við breytingar á landsframleiðslu milli ára. Þessar breyttu viðmiðanir gerðu þennan stóra mun á tölulegum staðreyndum hvors aðilans fyrir sig.
En hvort skyldi vera sanngjarnara og eðlilegra að miða við verðlagsbreytingar og tekjubreytingar eða miða við aukningu landsframleiðslu? Ég leyfi mér að minna á að þjóðartekjur hafa verið að stóraukast seinasta árið. Ástæðan er sú að afli hefur mjög aukist, verðlag á afurðum okkar hefur mjög hækkað og jafnhliða hefur verðlag á olíuvörum lækkað, viðskiptajöfnuður orðið skárri en áður og reyndar miklu betri. En hefur hinn almenni skattgreiðandi notið þessa? Hefur hann notið þessara breytinga í launum sínum og lífskjörum? Því miður er svo ekki. Því miður hefur ekki orðið nein stórfelld breyting á vísitölu kauptaxta. Auðvitað er til lítils að benda á að landsframleiðsla hafi verulega aukist þegar ekki verður samsvarandi aukning á tekjum, hækkar ekki samsvarandi í buddu launamannsins.
Staðreyndin er sú, eins og ég vék að í upphafi, að hæstv. fjmrh. hefur stuðlað að talsverðri hækkun tekjuskatts þvert ofan í margendurteknar yfirlýsingar hans og ríkisstjórnarinnar um að stefnt væri að afnámi tekjuskatts. Þetta gerðist á s.l. sumri með þeim hætti að skattvísitala var ekki hækkuð í takt við tekjubreytingar milli áranna 1984 og 1985 og þessi hækkun nam 600 millj. kr. En það eru ekki alveg allir sem átta sig á því að skattahækkunin, sem kom fram í fyrra, heldur áfram á næsta ári og því þar næsta nema leiðrétting fáist. Sú leiðrétting hefur alls ekki verið gerð. Þvert á móti er áframhaldandi miðað við grunninn sem hækkaði verulega á árinu 1986 og aðeins verður skilað 300 millj. kr. aftur af hækkuninni. Síðan er ætlunin að sveitarfélögin innheimti þessar 300 millj. kr. með hækkuðu útsvari og þannig munu tekjuskattar bersýnilega hækka.
Þar til viðbótar mun svo verðlag á olíuvörum hækka um 600 millj. kr. Það er mál út af fyrir sig. Í sjálfu sér er ekkert óeðlilegt að samfélagið reyni að hagnýta sér á sem skynsamlegastan hátt þá verulegu lækkun á olíuvörum sem átt hefur sér stað, en hins vegar er ekki hægt að skella skollaeyrum við ábendingum sjómanna um að tekjur þeirra voru verulega rýrðar í upphafi ferils þessarar ríkisstjórnar vegna mikilla hækkana á olíuvörum. Það er því ljóst að samfélagið skuldar þeim uppbót nú þegar olíuvörur lækka á nýjan leik. Auk þess hefði mörgum manninum fundist eðlilegast, miðað við að ekki hefur verið staðið við langtímaáætlun í vegagerð, að þessi tekjuauki rynni að verulegu leyti til að reyna að standa við þau áform sem menn settu sér fyrir nokkrum árum í vegamálum.
Nei, auðvitað er þarna um verulegar skattahækkanir að ræða, en því miður er það sorgleg staðreynd að þetta dugar ekki til að koma jöfnuði á hjá ríkissjóði. Ástæðan er sú að það eru svo margir aðilar sem sleppa við að borga eðlilegan skatt af tekjum sínum eins og úr þessum ræðustól hefur oft áður verið rakið.
Hæstv. fjmrh. hélt því fram áðan að halli ríkissjóðs stafaði fyrst og fremst af því að ákvarðanir hefðu verið teknar um útgjaldaauka í kjarasamningunum á s.l. ári. Þó viðurkenndi hann að sú skýring dygði engan veginn. Viðbótarskýringin, sem átti að duga, var sú að laun hefðu hækkað meira en áformað hefði verið. Ég hef margoft áður bent á að þetta eru falsrök og það þekkja allir sem komið hafa nálægt rekstri ríkissjóðs að þannig ganga málin ekki fyrir sig. Ef ríkissjóður lætur út 1500 millj. kr. með tollalækkunum eða með öðrum hætti er ljóst að ráðstöfunarfé almennings eykst að sama skapi og þá koma þessir peningar að talsverðu leyti til baka aftur í auknum tekjum ríkissjóðs þannig að það er engan veginn hægt að taka upphæðina alla og segja: Þetta hefur ríkissjóður misst. Hann hefur örugglega ekki misst nema helminginn af upphæðinni, kannske miklu minna vegna þess að veltan eykst og skilar þar af leiðandi auknum tekjum.
Nákvæmlega það sama gildir um launahækkanirnar. Þar er um enn sjálfvirkara lögmál að ræða. Það er nokkurn veginn gefin staðreynd í þjóðfélaginu að ef launahækkanir eru almennar sem nemur 5% aukast tekjur ríkissjóðs mjög fljótlega um sömu 5%. Kannske er þar ekki um nema 4% aukningu að ræða vegna þess að veltuskattarnir eru um 80% af ríkistekjunum, en 1% skilar sér fljótlega í kjölfarið með hækkuðum tekjuskatti. Þessi rök Þorsteins Pálssonar, sem eiga að útskýra þennan gífurlega hallarekstur ríkissjóðs, eru því falsrök. Jafnvel þótt þetta hefði ekki gerst, jafnvel þótt kjarasamningar hefðu aldrei verið gerðir og jafnvel þótt þessar launahækkanir hefðu ekki átt sér stað er ljóst af þeim tölum sem við blasa að það hefði verið mjög stórfelldur halli á ríkissjóði, í öllu falli eitthvað á annað þúsund milljónir.
Það er eftirtektarvert að skoða afkomu ríkissjóðs seinustu 17 árin. Ég hef fengið upplýsingar frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun um tekjur og gjöld ríkissjóðs á liðnum 17 árum og ég hef látið dreifa þessum upplýsingum á borð allra þm.
Ég hef líka látið teikna línurit, sem fylgir þessum upplýsingum, þar sem fram kemur rekstrarafkoma ríkissjóðs sem hundraðshluti af útgjöldum. Ef menn skoða þetta línurit, eða súlurit eins og það mun kallað, sjá menn að halli hefur verið á ríkissjóði 11 sinnum þessi 17 ár, en 6 sinnum hefur verið afgangur. Ef nánar er skoðað og menn velta því fyrir sér hverjir hafa helst verið í stjórn á þeim tímum sem þessi halli hefur verið blasir svarið við. Það eru fyrst og fremst árin sem Sjálfstfl. hefur haft fjmrh. að þessi halli hefur verið hvað mestur. Ég læt hv. þm. eftir að lesa þetta úr súluritinu. Það blasir við svo berlega sem nokkuð getur verið. Það er sem sagt ljóst að það virðist vera fylgifiskur íhaldsstjórna að reka ríkissjóð með gífurlegum halla. Á þremur árum, þ.e. árinu sem er að líða, árinu í fyrra og næsta ári, safnar ríkissjóður samanlagt 6000 millj. kr. Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir hve rosalega há þessi fjárhæð er, en ef við ættum að finna einhvern samanburð mætti benda á að ef við ætluðum á næsta ári að ná þessari skuldasúpu núv. ríkisstjórnar inn á einu ári með hækkun á tekjuskatti einstaklinga þyrfti að þrefalda tekjuskattinn til að ná inn og fylla í það gat sem þessi ríkisstjórn skilur eftir sig. Ja, öðruvísi mér áður brá, mundi margur íhaldsmaðurinn segja og verða hugsað til ágæts forustumanns íhaldsmanna fyrr á öldinni, Jóns Þorlákssonar, sem sannarlega var fastur fyrir í ríkisfjármálum og kunni lagið á að láta þar ekki gerast mikil skakkaföll. En það eru breyttir tímar og aðrir menn í forustu Sjálfstfl. og þeir ætla að temja sér það, ekki bara seinast þegar þeir voru í stjórn og höfðu Matthías Á. Mathiesen sem fjmrh. heldur líka í þessari stjórn, að skilja eftir sig stærri og rosalegri skuldahala sem aðrir eiga síðan að reyna að rekja upp hvernig svo sem til tekst um það.
Ég vek á því athygli að sennilega er hallinn miklu meiri á árinu 1987 en fjárlagafrv. segir til um vegna þess að þegar fjárlagafrv. í fyrra kom fram var gert ráð fyrir tekjuafgangi upp á 123 millj. sem breyttist í halla upp á 2200 millj. Og hvað skyldi hallinn vera orðinn mikill í árslok 1987 úr því að nýja fjárlagafrv. gerir ráð fyrr því í upphafi að hallinn sé 1500 millj. kr.? Þar gæti orðið um allrosalega fjárhæð að ræða.
Þar að auki er óhjákvæmilegt að benda á að þarna er um mjög háskalegan vítahring að ræða því að hallann verður að sjálfsögðu að brúa með óreiðuvíxlum, lántökum, bæði innlendum og erlendum, og það þarf að greiða vexti af þessum lánum. Ég vek á því athygli að sennilega er um mjög mikla vanáætlun að ræða í lánsfjárlagafrv. og fjárlögum um erlendar lántökur. Þær prósentutölur sem ríkisstjórnin er að státa af um þessar mundir eru mjög villandi. Hún stærir sig af því að hlutfall erlendra skulda af þjóðartekjum fari lækkandi. Þá halda þeir sem það heyra að það hljóti að stafa af því að lántökur fari minnkandi. Auðvitað er ástæðan sú ein að það er deilitalan, talan sem er fyrir neðan strik í þessu prósentudæmi, sem á að fara hækkandi, þ.e. þjóðarframleiðslan. Það er þess vegna sem prósentutalan fer lækkandi en ekki vegna þess að skuldastaðan sé neitt betri en áður.
Nákvæmlega sama gildir um prósentutölu greiðslubyrði af erlendum lánum. Þar fer prósentutalan lækkandi, í fyrsta lagi vegna þess að rétt í svipinn hafa vextir lækkað á erlendum lánsfjármörkuðum og í öðru lagi vegna þess að deilitalan, þ.e. útflutningsafurðirnar, hafa farið vaxandi. Magn þeirra hefur vaxið og gjaldeyristekjurnar aukist og því lækkar hundraðshlutinn sem því nemur. En það er ekki vegna þess að við stöndum neitt betur að vígi til að greiða þessar skuldir þegar til lengri tíma er litið vegna þess að þær aðstæður sem nú hafa breyst til batnaðar gætu allt eins orðið aftur lakari ef breytingar verða t.d. á verðlagi olíuvara úti í hinum stóra heimi eins og margir spá að verði.
Ég segi að lokum: Það blasir við hverjum manni að í ríkisfjármálum hefur orðið mikið skipbrot og þetta skipbrot skapar mikinn háska. Það er stórfelldur vandi sem fer vaxandi nú með hverju árinu og verður býsna erfiður viðureignar fyrir komandi ríkisstjórnir að leysa. Ég lít svo á að útkoman í ríkisfjármálunum sé ein og sér næg ástæða fyrir ríkisstjórnina til að segja tafarlaust af sér og í raun og veru lít ég svo á að það sé pólitískt siðleysi af núv. ríkisstjórn að ætla sér að sitja fram yfir kosningar með ríkisfjármálin í slíku óefni sem raun ber vitni í stað þess að láta kjósa á þessu hausti og lofa svo öðrum að bæta úr.