16.03.1987
Neðri deild: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4258 í B-deild Alþingistíðinda. (3931)

318. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Orð mín skulu vera fá. Mig undrar satt að segja á þeim ræðum sem hafa verið haldnar. Hér er alls ekki verið að tala um kaupleiguíbúðir. Hér er ekkert verið að tala um hve langur biðlisti, raunhæfur langur biðlisti, er eftir lánum. Þar erum við hv. 2. landsk. þm. t.d. ákaflega ósammála. Ég tel að það sé ákaflega orðum aukið sem þar er er sagt. Þó að ég sé hins vegar fylgjandi kaupleiguíbúðunum tel ég þær fallnar með síðustu atkvæðagreiðslum og orðlengi það ekki frekar.

Ræða hv. 2. þm. Norðurl. e. olli mér nokkurri furðu. Prýðilega greindur og hæfur þm. lætur út úr sér alveg endemis vitleysu, átakanlega vitleysu. Varðandi þessi ágætu lög, sem verið er að vitna í, liggur það fyrir að í fyrsta lagi verður fé til húsnæðismálastjórnar mun meira. Í öðru lagi verða möguleikar á að kaupa eldri íbúðir og aukin lán veitt til þess en þau hafa verið óeðlilega lág um árabil. Hins vegar er það staðreynd að meðan þetta kerfi er að jafna sig verður einhver bið og hjá sumum nokkuð erfið.

Í lögunum er meingallað ákvæði að mínu áliti. Og þó að ég álíti of stór orð hafa fallið um það hvað ástandið sé slæmt, ákaflega slæmt ástand að ekki skuli vera hægt að veita meira fé í félagslegar íbúðir, get ekki með nokkru móti fallist á það sjónarmið að óþarft sé að breyta því, og mér er alveg sama þó að einn ágætur maður frá Alþýðusambandinu lýsi því yfir að hann vilji ekki breyta þessum lögum næstu tvö ár. Í þessum lögum er sá galli að maður sem á góða íbúð, á gott hús, getur fengið allt að 1200 þús. kr. lán þótt hann sé að minnka við sig, á undan þeim sem á í húsnæðiserfiðleikum.

Nú hefur verið bent á það hér að vera megi að það sé erfitt að selja viðkomandi íbúð og útborgun verði litil. Þá eru möguleikar húsnæðismálastjórnar að meta það. Ég hef enga trú á því að þessir menn, sem eiga stórar íbúðir og eru að minnka við sig, séu 15% af umsækjendunum. En það eru nokkrar umsóknir, þær þurfa ekki að vera margar, þar sem menn eru að sækja um lán til þess að fá niðurgreitt fjármagn. Það er verið að misnota kerfið. Það er enginn að tala um að það geti ekki verið í einstaka tilfelli að það eigi að nota þetta. Ef maður, sem á 200-300m2 einbýlishús, selur það á 10 millj. og kaupir fjögurra herbergja íbúð á 4 millj. og þetta er skuldlítið skulum við segja, af hverju á þá að veita honum 1200 þús. kr. niðurgreitt lán meðan aðrir bíða í erfiðleikum? Ég vil nú ekki vera að slá neitt um mig hér í þessum ræðustól. Sá gegnumvandaði og ágæti maður Ásmundur Hilmarsson hefur hins vegar engu meiri heimild til þess að lýsa því yfir en ég fyrir hönd Alþýðusambandsins að hann vilji ekki breyta þessu í tvö ár. Þetta er bara ekkert umsögn Alþýðusambandsins. Ég er sannfærður um að ég fengi þessa tillögu samþykkta í miðstjórn Alþýðusambandsins um leið og fundur er kvaddur saman.

Við eigum ekki að vera svo fastheldin að ef við sjáum galla á lögum, lögum sem hafa gjörbreytt ástandinu í húsnæðismálum, opnað möguleika sem fólk hefur ekki haft fyrr, en ef í þeim eru ákvæði sem einhverjir aðilar geta misnotað á kostnað þeirra sem verr eru settir eigum við ekki að hika við að breyta því. Það er nú ekki farið fram á meira en að félmrh. hafi samráð við ASÍ, VSÍ og Vinnumálasambandið um að setja reglur um að skerða eða hafna lánveitingum úr Byggingarsjóði ríkisins ef umsækjandi á íbúð sem getur talist fullnægjandi að dómi húsnæðismálastjórnar. Ég vil nú biðja þm. mjög að íhuga og tek þetta sem nokkurn prófstein: Er algjörlega útilokað að lagfæra svona galla á lagafrv. öðruvísi en að það sé bara flokkslegur, pólitískur meiri hluti? Ætla þm., þrátt fyrir þessa augljósu galla, að hafa þá galla að engu af því að flokkurinn segir eitthvað annað? Og hvaða flokkur segir það að þeir sem eru að selja íbúð, sem er viðunandi og er kannske firnastór, og fá lánað niðurgreitt fjármagn, skuli vera jafngildir hinum sem eiga í erfiðleikum? Það væri gaman að fá það upplýst.

Menn tala hér algjörlega í flokkslegum tón. Ég vil taka það fram að ég hef í sambandi við þessi mál gengið á móti bæði mínum flokksmönnum að nokkru leyti, að ég tali nú ekki um þau bulluskrif sem velta upp úr Þjóðviljanum. Náttúrlega er ekki minnst á afstöðu mína, enda geri ég ekki kröfu til þess og hef það að engu, hef það bara að engu. Ég hef í þessum húsnæðismálum að mörgu leyti verið nær félmrh. og hans málflutningi þó að ég sigli kannske þarna á milli.

Ég vil biðja þm. mjög um að athuga hvort þeir eigi að láta rígskorðast, hvort þeir eigi að láta negla sig algjörlega niður, og það sé óheft að sá sem selur lúxusíbúð og kaupir sér minni íbúð skuli eiga rétt á 1200 þús. kr. niðurgreiddu láni meðan ekki er hægt að fullnægja umsóknum annarra. Ég veit að réttlætiskennd þm. æpir á þetta og ég treysti því að þm. sýni það nú að það megi marra eitthvað í flokksböndunum, jafnvel þó að þeir fái einhverjar vítur fyrir frá leiðtoganum, og láti sig það litlu skipta. Hér er réttlætismál á ferðinni. Við eigum ekki að standa með meingölluðum ákvæðum í lögum. Við eigum að rétta þeim hjálparhönd sem verr eru staddir en ekki stuðla að spillingu.

Von mín er síðan að endingu sú að flokksböndin slitni nú í þessu máli og samviskan ráði. Þá held ég að þessi tillaga verði samþykkt.