16.03.1987
Neðri deild: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4266 í B-deild Alþingistíðinda. (3947)
346. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. meiri hl. félmn. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. meiri hl. hv. félmn., sem er að finna á þskj. 897, um frv. til l. um breytingar á tekjustofnalögum sveitarfélaga. Nefndin fjallaði um frv. á nokkrum fundum og fékk til viðtals Húnboga Þorsteinsson. Nefndin er ekki einhuga í afstöðu sinni. Það eru tveir minni hl. Ég tek fram að hv. þm. Stefán Guðmundsson var fjarverandi lokaafgreiðslu málsins.
Ég vek athygli á því að minni hlutarnir eru ósammála um í hvora átt eigi að stefna með þann ramma sem sveitarstjórnum er úthlutað til að velja útsvarsprósentuna innan. Hv. þm. Stefán Valgeirsson skrifar undir nál. með fyrirvara, en aðrir þeir hv. þm. sem skipa meiri hl. nefndarinnar eru, auk mín, Eggert Haukdal og Kristín S. Kvaran.
Nefndarmeirihlutinn mælir með því að frv. verði samþykkt eins og það kom frá Ed.