16.03.1987
Neðri deild: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4277 í B-deild Alþingistíðinda. (3973)
321. mál, vaxtalög
Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Vegna þeirrar till. sem hér er til umræðu held ég að sé ástæða til að taka það fram að með dómi Hæstaréttar, sem gekk rétt fyrir síðustu jól, var það staðfest, það var 23. des. á Þorláksmessu á s.l. ári, að heimild Seðlabanka til ákvörðunar dráttarvaxta skv. 5. gr. laga nr. 58/1960, sbr. lög frá 71/1965, tæki til ákvarðana bæði um vaxtahæð og vaxtareikning. Þessi 12. gr., sem brtt. gerir ráð fyrir að breyta, kemur þannig í stað 5. gr. gildandi vaxtalaga. Hér er á ferðinni gamalt deilumál og kann ýmsum að þykja það sérkennilegt að dráttarvöxtum skuli vera bætt við höfuðstól, en sú er meginreglan að vextir séu ársvextir og bætist við höfuðstólinn. Ég held að þessi regla sé eðlileg og það verði að taka tillit til þess þegar dráttarvextir eru ákveðnir skv. 10. og 11. gr. frv. hver upphæðin er. Eitt af því sem þarf að taka tillit til er einmitt að kröfur sem fallið hafa í gjalddaga og ekki verðið efndar beri vaxtavexti að loknum tólf mánuðum eins og um ársvexti væri að ræða.
Ég held að þetta ákvæði taki af skarið í þessum efnum og þess vegna sé eðlilegt að hafa ákvæðið eins og það er í 12. gr. frv., enda var sú grein samin eftir að hæstaréttardómurinn féll 23. des. s.l.