16.03.1987
Neðri deild: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4278 í B-deild Alþingistíðinda. (3974)

321. mál, vaxtalög

Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Eins og fram hefur komið við 1. umr. þessa máls er það skoðun okkar Alþýðubandalagsmanna að hér sé um að ræða mjög alvarlegt mál sem geti haft háskalegar afleiðingar í efnahagslífinu á komandi mánuðum. Því hefur verið lýst yfir af talsmanni fjh.- og viðskn. að það þurfi að skoða frv. nánar í sumar, þetta sé þannig lagað klúður. Dómarafélagið hefur lýst skoðunum sínum í málinu. Jón Steinar Gunnlaugsson hefur skrifað blaðagrein og varað Alþingi við því að samþykkja þetta frv. Lögfræðingafélagið og Lögmannafélagið hafa einnig talað í þessu máli. Það er hins vegar ljóst að það er einn aðili sem kallar á afgreiðslu málsins. Það er Seðlabankinn. Allir aðrir sem eiga að fjalla um þessi mál, hvort sem eru sem lögmenn eða sem dómarar, óska eftir því að þessi kaleikur verði frá þeim tekinn.

Einnig er það ljóst að þetta frv., ef það verður samþykkt, er staðfesting á þeirri vaxtastefnu sem hér hefur verið fylgt á undanförnum árum frá 1984. Það er staðfesting á því að Seðlabankinn hafi haft rétt fyrir sér þegar hann hefur tekið 27% vexti í 13% verðbólgu. Það er staðfesting á því að okurlánastarfsemin hafi verið innan ramma laganna eins og Hæstiréttur kvað upp úrskurð um. Hér er m.ö.o. komið að kjarnanum í þeirri stjórnmáladeilu um vexti sem staðið hefur á undanförnum árum. Ég verð að lýsa því yfir að eftir þau varnaðarorð sem hér hafa verið flutt lýsi ég miklum vonbrigðum með að þm. skuli ekki staldra við og athuga þetta mál, hvort sem þar er um að ræða t.d. þm. Framsfl., sem hafa í orði kveðnu talið að þróunin í vaxtamálum væri hneyksli eða það er a.m.k. það sem hefur gengið frá formanni Framsfl., og ég verð að segja það líka að ég tel að afstaða Alþfl. í þessu máli sé ákaflega sérkennileg þegar hann kýs að skrifa upp á vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar.

Allt um það. Þessi varnaðarorð vildi ég mæla við 3. umr. málsins og lýsa því auðvitað yfir að ég tel að sú till. sem hv. 7. þm. Reykv. hefur flutt sé til bóta, ef hún yrði samþykkt, vegna þess að hún dregur aðeins úr vaxtafarganinu, eins og hv. þm. orðaði það svo réttilega hér áðan, vaxtafargani sem er að drepa fólk hér fjárhagslega í stórum stíl þar sem liggur við örvinglan á heimilum í þessu landi. Nauðungaruppboð eru sjö sinnum fleiri en þau voru fyrir fjórum árum og þannig mætti lengi telja. Ef menn vilja skrifa upp á þetta svínarí tel ég að mér sé skylt að láta þm. vita af því hvað þeir eru að gera. Þeir eru að skrifa upp á þetta svínarí áfram, þennan vaxtaklafa um háls fjölskyldnanna í landinu.