16.03.1987
Neðri deild: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4283 í B-deild Alþingistíðinda. (3994)
340. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara í umræður um Þjóðhagsstofnun eða þann ágreinin sem uppi hefur verið á stundum um störf hennar. Ég þykist vita að starfsmenn hennar hafi kappkostað að vinna að þessum athugunum af eljusemi og nákvæmni. Þegar ég hafði samband við forstjóra Þjóðhagsstofnunar nú laust fyrir 9 var hann á vinnustað sínum að vinna að þessum málum. Ég ítreka að hér er ekkert á ferðinni, engar upplýsingar sem ástæða eða ætlan er að draga undan. Þvert á móti er ærin ástæða til að koma áfram öllum upplýsingum um þessi efni jafnharðan og þær berast og engin ástæða til annars. En það er auðvitað ekki hægt að dreifa slíkum upplýsingum fyrr en þeir aðilar sem að þeim eru að vinna hafa að fullu lokið þeim. Þó að hv. 3. þm. Reykv. geri lítið úr því að starfsmenn eigi eftir að yfirfara texta eða fullútreikna eða yfirfara töflur finnst mér ekkert óeðlilegt við að þessir starfsmenn, sem hér eiga hlut að máli, vandi sín vinnubrögð og skili sínum niðurstöðum á þann veg sem þeir eru sáttir við og skiptir vafalaust ekki sköpum hvort þær berast einhverjum klukkutímum fyrr eða síðar. Aðalatriðið í þessu er þetta: Um leið og þessar upplýsingar verða til verða þær afhentar þingflokkum og engin ástæða til annars og í öðru lagi að eins og fram kom hjá hv. þm. munu þær ekki hafa nein áhrif á efnisatriði þeirra frv. sem hér eru til meðferðar vegna þess að hér er um mat á framreiknuðum launatölum frá árinu 1985 að ræða og þá fyrst þegar menn hafa álagningu þessa árs geta menn endurmetið skatthlutföll og skattfjárhæðir í þessum frv. af einhverri nákvæmni. Ég ítreka því fyrri orð um að þessar upplýsingar verða afhentar um leið og þær liggja fyrir og verður ekki á neinn hátt reynt að tefja fyrir Þjóðhagsstofnun eða vinnu hennar í þessu efni. Ég treysti því að á sama máta þá fái málið greiðan framgang í hv. þingdeild.