03.11.1986
Neðri deild: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í B-deild Alþingistíðinda. (407)

102. mál, skógrækt

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Hér er á dagskrá framhald umræðu um skógrækt, um frv. um skógvernd og skógrækt á þskj. 104, en hæstv. landbrh. mælti fyrir þessu frv. í síðustu viku. Ég óskaði þá eftir að umræðu lyki ekki þannig að kostur gæfist á að kynna sér aðeins betur þetta mál. Frv. er að vísu ekki alveg óþekkt hér í hv. deild því að það var flutt á síðasta þingi og var því þá vísað til nefndar af hv. deild. Ég talaði þá lítillega um efni þess en var vanbúinn nokkuð umræðunni að því sinni og vildi því aðeins fá að kynna mér þetta mál frekar áður en það færi til nefndar.

Nú er hæstv. ráðherra ekki hér á fundi. Ég hygg að hann sé ekki viðlátinn. (Forseti: Hann mun ekki vera viðlátinn.) Ég er ekki að gera kröfu til þess að umræðu um þetta mál verði frestað þangað til hæstv. ráðherra kemur til þingstarfa á ný en vil koma fram með nokkrar ábendingar varðandi þetta mál sem er mjög mikilsvert, ekki síst í ljósi þess sem er að gerast í sveitum landsins og þeim möguleikum sem ættu að vera til þess að hagnýta skógræktarmálefni og skógverndarmál til hagsbóta fyrir landið allt og íbúa dreifbýlisins sérstaklega. Ég tel því að það þurfi að gaumgæfa vel þetta frv. á vegum þingsins og leggja áherslu á að ljúka endurskoðun laga um skógvernd og skógrækt á þessu þingi því það er óheppilegt að mál af þessu tagi sem skiptir miklu að finna nýjar áherslur í sé lengi að velkjast í þinginu í óvissu um hvaða stefnu löggjafinn vill marka í sambandi við skógræktar- og skógverndarmálefni.

Ég hygg að það sé sitthvað sem megi segja að horfi til bóta í þessu frv. umfram gildandi lög, þó að upp komi ýmsar spurningar í sambandi við frv. af þessu tagi. Það er þá kannske meira það sem maður saknar í frv. en hitt sem í því stendur. Ég hefði viljað sjá mun skýrari áherslur af hálfu ríkisstjórnar í tengslum við frv. um að hverju beri að stefna í skógarmálefnum í landinu, en það er ekki að finna neinar vegvísandi áherslur af hálfu ríkisstjórnar sem leggur mál þetta fyrir, því miður.

Menn geta sagt að það geti komið seinna og skipti þar mestu fjárveitingar og rétt er það. Ekki þarf allt að standa í lögum. En auðvitað hefði verið æskilegt að fram kæmu með allt öðrum og skilmerkilegri hætti stefnumarkandi viðhorf af hálfu stjórnvalda.

Nú þegar talað er um nauðsyn breytinga á búháttum í sveitum er það auðvitað afar brýnt að sveitafólkið fái vitneskju um það af hálfu löggjafar- og framkvæmdavalds hvaða nýjungar það séu sem stjórnvöld vilja styðja við og með hvaða hætti gert sé ráð fyrir að taka þar á með nýjum hætti. Skógarmálefnin eru ein af þessum nýju áherslum sem menn tala nokkuð um í orði en ákaflega lítið hefur gerst í þeim efnum þannig að til einhverra verulegra breytinga eða tíðinda gæti talist og það er það sem maður saknar úr máli hæstv. ráðherra sem mælti fyrir þessu efni og ekkert er að finna um það í fylgigögnum eða öðru sem lýtur að þessu frv. sérstaklega.

Í fáum efnum er mikilvægara að tekið sé skipulega á en í hugsanlegum ræktunarbúskap í sambandi við skógrækt. Það varðar eignar- og umráðarétt lands og það varðar auðvitað vitneskju um það hvar helst er von til þess að stunda slíkan ræktunarbúskap, hvar á landinu, og hvað framkvæmdavald og löggjafarvald eru reiðubúin að leggja á sig til þess að það megi takast.

Það var alveg réttmætt, sem kom fram hjá hv. þm. Ólafi Þ. Þórðarsyni við umræðuna í síðustu viku um þetta mál, að girðingarkostnaður hefur verið þröskuldur í sambandi við skógarbúskap og friðun lands. Því varðar það auðvitað miklu að hægt sé að taka undir allstór svæði hverju sinni til friðunar og uppgræðslu og til skógræktar þar sem aðstæður benda til að vænta megi góðrar uppskeru, þótt það taki áratugi að það fari að skila sér. Þess vegna er það mjög knýjandi að tekið sé á málunum af framsýni í þessum efnum og virkilega gert átak af hálfu framkvæmdavaldsins til þess að hjálpa bændum og hvetja bændur, sem eru við búskap á slíkum svæðum, til þess að breyta til eða taka upp nýjar áherslur í sínum búskap þannig að eitthvað verði úr hugsjónunum sem margir tala um í orði og eiga sjálfsagt eitthvað við á borði, en þó saknar maður þess að það fylgi eitthvað með sem þarf til framkvæmda.

Skógarmálefni að því er okkar land snertir eru má segja þríþætt og öll þau markmið sem þau snertir eru mjög gild. Ég nefni lauslega: Það er ræktun skóga til yndisauka og útivistar, mjög þýðingarmikið og gott mál. Það er friðun skóglenda eða friðun lands til þess að þar geti komið upp náttúrulegur gróður, þar á meðal skógarkjarr, til þess að vernda jarðveg og þá auðlind sem felst í gróðurríki landsins, hugsanlega til nytja síðar meir, jafnvel beitarnytja eftir að skógur væri upp vaxinn og síðan í þriðja lagi ræktun nytjaskóga til timburframleiðslu. Öll þessi markmið eru gild og góðra gjalda verð. Þeim hefur hins vegar verið um of blandað saman á liðinni tíð og starfið því ekki verið eins markvisst og skyldi.

Það er vikið að þessu í upphafsgrein frv., um verndunargildið, ræktun nýrra skóga og síðan fræðslu um meðferð og ræktun skóga. Ég hefði viljað sjá þetta skilgreint með dálítið öðrum hætti og í þá veru í aðalatriðum sem ég hér hef nefnt. Skógar til útivistar, til jarðvegsverndar og verndar gróðri og til ræktunar nytjaskóga og timburframleiðslu.

Í frv., herra forseti, eru mörg atriði sem hægt er að setja spurningamerki við hvernig takast muni í framkvæmd. Það er m.a. í III. kaflanum varðandi skógvernd og friðun, sambýli beitarbúskapar, skógverndar og skógræktar. Það er vel ef hægt er að koma við þeim ákvæðum sem er að finna í ýmsum greinum frv. eins og 8., 10. og 12. gr. frv. og einnig í IV. kafla um meðferð skóglendis, 13. gr. m.a., en ég set svolítið spurningarmerki við það í ljósi fenginnar reynslu. Það má vel vera að með góðum vilja megi þarna kippa í liðinn með skýrari ákvæðum í lögum. Það er auðvitað nauðsynlegt að gera búfjáreigendur ábyrga fyrir sínum bústofni og eina vonin til að hægt sé að ná einhverjum verulegum árangri í friðun og verndun skóglendis og skógrækt er það að skipting ábyrgðar sé með eðlilegum og skýrum hætti og sambýli þessara aðila sem nytja landið til beitar og hins vegar til uppgræðslu og ræktunar í formi skógræktar þarf að vera sem best. Það þarf að stuðla að því af hálfu löggjafans.

Þetta eru nokkrar almennar ábendingar af minni hálfu, herra forseti. Þegar þetta mál var rætt á síðasta þingi vék ég að starfi nefndar sem þá var starfandi að nafninu til en hafði ekki komið saman alllengi og ríkisstjórnin hafði hlutast til um að skipuð var í tilefni 40 ára afmælis íslenska lýðveldisins. Ég vakti máls á áhyggjum mínum út af því að þessi nefnd hafði ekki komið saman þá í eitt ár eða svo og bað hæstv. landbúnaðarráðherra að hlutast til um það af því að forsætisráðherra sem skipaði nefndina var þá fjarri eins og reyndar nú. Ekki varð það samt til þess að ýta við starfi þessarar nefndar sem skipuð var til að minnast 40 ára afmælis lýðveldisins og kölluð var Framkvæmdanefnd til þess að stuðla að þjóðarátaki í trjárækt í þéttbýli og dreifbýli, hvorki meira né minna. Ég tók um það ákvörðun í samráði við minn þingflokk á síðasta sumri að segja mig úr þessari nefnd eftir að árangurslaust hafði verið reynt að ýta við störfum hennar og gerði það bréflega með erindi til hæstv. forsrh. um leið og ég mótmælti þeim vinnubrögðum sem þarna hefðu átt sér stað. Hæstv. forsrh. svaraði erindi mínu með bréfi 15. sept. og ég tel rétt vegna þessarar umræðu að fram komi það sem í því bréfi stendur með leyfi forseta. Þar segir:

„Með tilvísun til bréfs þíns dags. 26. ágúst 1986 skil ég vel vonbrigði þín með nefnd þá sem skipuð var til þess að stuðla að þjóðarátaki í trjárækt í þéttbýli og dreifbýli. Það á þó sínar skýringar. Skipun nefndarinnar var byggð á þáltill. sem Gunnar Schram flutti en fékkst ekki afgreidd á þingi. Mér var þá tjáð að engin fjárveiting yrði nauðsynleg því eingöngu yrði um það að ræða að samræma átak hinna fjölmörgu aðila sem á sviði skógræktar starfa. Fljótlega kom þó í ljós að svo var ekki. Þótti mér það ekki óeðlilegt. Um fjárveitingu var sótt eins og þér er kunnugt en fjárveitinganefnd hafnaði þeirri beiðni.

Um framtíð þessa starfs hefur síðan nokkuð verið rætt. Niðurstaðan varð sú að ég ræddi við fjmrh. sem samþykkti að gera ráð fyrir greiðslu úr ríkissjóði fyrir 2/3 hlutum af launum og kostnaði við starfsmann sem yrði hjá Skógræktarfélagi Íslands. Þeir sem enn sitja í nefndinni hafa síðan fjallað um þetta og mæla með ráðningu slíks manns. Sjálfum finnst mér þessi lausn stórum betri en fjölmenn nefnd. Skógræktarfélag Íslands á að hafa það hlutverk að samræma og efla skógrækt og skógræktaráhuga í landinu. Það hefur ekki talið sig geta sinnt því verkefni án þess að fá starfsmann sem nú virðist í augsýn.“

Þetta varð niðurstaðan af athugun mála hjá hæstv. forsrh. eftir að ég hafði sagt mig úr þessari starfslausu nefnd og það má auðvitað ýmislegt um það segja. Hæstv. ráðherra hafði haldið að ekki þyrfti neitt fjármagn. Síðan reynir hann að beita sér fyrir fjárveitingu og er hafnað og síðan gerist það eftir að ég hef vakið athygli hans á stöðu mála og sagt mig úr nefndinni koma menn sér þó saman um að gera eitthvað, hverfa að vísu frá samþykkt ríkisstjórnarinnar í minningu 40 ára afmælis lýðveldisins og ákveða að setja niður starfsmann hjá Skógræktarfélagi Íslands til að sinna þeim málum sem fyrirhugað hafði verið að nefnd þessi tæki á. Og ég verð að segja það, það er betra en ekki að þessi hefur þó orðið niðurstaðan frekar en að menn gleymdu þessu alveg. Ég get út af fyrir sig lýst ánægju með það. Ég sé að að þessu er vikið í athugasemdum með fjárlagafrv. þar sem fjallað er um málefni Skógræktar ríkisins og gert ráð fyrir ákveðinni upphæð, milli 500-600 þús. kr. til þessa starfsmanns eins og raunar kemur fram í ákveðinni grein í þessu frv. sem er til umræðu, að heimild sé til að ráða menn hjá Skógræktarfélagi Íslands í tilteknu augnamiði. Ég vildi geta þessa, herra forseti, þannig að það lægi fyrir hver væri forsaga þessarar tilbreytni.

Ég vil, áður en ég lýk máli mínu, herra forseti, vekja athygli á því hver þróun hefur orðið á framlögum til Skógræktar ríkisins og þessara málefna sem eru til umræðu í tengslum við þetta frv. Þar blasir engan veginn við sú mynd sem maður vildi sjá í þessum efnum ef litið er til fjárveitingar til Skógræktar ríkisins á undanförnum árum. Ég óskaði eftir því við Fjárlaga- og hagsýslustofnun að hún reiknaði út hvernig þessi framlög hafa þróast síðan 1982. Þá kemur í ljós það sem ég nú rek varðandi framlög ríkisins reiknað til áætlaðs verðlags í des. 1986. 1982 var framlag ríkisins 55,9 millj. kr. rúmar; 1983 43,4 millj. tæpar, 1984 40,6 millj., enn lækkandi, 1985 39,8 millj., 1986 32,6 millj. tæpar og 1987 er gert ráð fyrir að framlagið verði 36,5 millj. kr. Allar þessar tölur sem ég nefndi eru reiknaðar til verðlags í des. 1986 og það kemur í ljós að framlag ríkisins til skógræktarinnar hefur lækkað um hvorki meira né minna en 20 millj. kr., rétt um það bil 20 millj. kr., á þessu árabili frá 1982 til fjárlaga þessa árs og fóru reyndar enn neðar á síðasta ári eða niður í 32,5 millj. kr. Það sem vekur athygli eru sértekjurnar sem hafa hækkað á þessu tímabili, það sem skógræktin aflar. Þar kemur í ljós eftirfarandi varðandi sértekjur: 1982 27,3 millj., 1983 29,3, 1984 29,6, 1985 33,5 millj., 1986 12,5 millj. en síðan er á næsta ári gert ráð fyrir að sértekjurnar nemi hvorki meira né minna en 33 millj. kr. eða fari langt í að þrefaldast frá yfirstandandi ári. Ég átta mig ekki á því, herra forseti, hvernig þetta getur talist raunhæft að ná slíkum árangri af hálfu skógræktarinnar á næsta ári og það sem þó aðallega blasir við er þessi lækkun á heildarframlagi ríkisins á þessum árum. Á sama tíma og menn tala fagurlega um nauðsyn skógræktar og átaks í þessum efnum hríðlækkar framlagið til Skógræktar ríkisins af hálfu ríkisins frá ári til árs frá 1982 að telja með þó smávegis yfirbót á komandi kosningaári, ef marka má fjárlagafrv. Þetta er auðvitað mjög alvarleg staða.

Ég veit að það hefur verið farið yfir málefni og möguleika skógræktar í landinu m.a. á vegum 39 manna nefndar forsrh. um framtíðarkönnun, þar sem hann er að lýsa inn á nýja öld. Ég hef kynnt mér svolítið hvað þar hefur verið til umræðu og það eru vissulega mjög athyglisverðir hlutir sem þar eru á dagskrá í sambandi við möguleika nytjaskógræktar í landinu. En þeir draumar ná ekki að rætast ef menn ekki fást til að fjárfesta í skógrækt, þeir byggjast á því. Það eru að vísu engar stjarnháar tölur sem nefndar eru í þeim gögnum sem ég hef séð frá þessari nefnd varðandi skógræktarmál og ekki heldur nein stærðar landsvæði sem taka þyrfti undir til þess að fullnægja að verulegu leyti timburþörf landsmanna. Það er eitthvað um 400 km2 lands sem gert er ráð fyrir að þyrfti að koma til og þyrfti að planta í á vissu árabili til þess að fá afrakstur síðar meir til timburframleiðslu. Og það fjármagn sem gert er ráð fyrir að þyrfti að leggja til plöntunar o.fl. í þessu samhengi er ekki nema sem svarar 70 millj. kr. á núverandi verðlagi eða þar um bil á ákveðnu árabili svo að möguleikarnir eru þarna. En þá þarf auðvitað skilningur löggjafar- og fjárveitingarvalds á Alþingi að gjörbreytast og tök þessara mála ef menn ætla að gera þarna eitthvert átak í reynd. En það er bara allt önnur mynd sem blasir hér við frá hæstv. ríkisstjórn í þessum efnum eins og í fleiri málum sem snerta nýja möguleika. Þar er bara talað en framkvæmdirnar eru í öfugu hlutfalli við orðin og orðskrúðið. Það er hin nöturlega staðreynd sem við blasir og það er það sem mestu máli skiptir þegar rætt er um þessi efni hér á Alþingi í tengslum við frv. til nýrra laga um þessi mál að menn geri það upp við sig og gefi þjóðinni til kynna hvort menn í reynd vilja standa fyrir nýjum áherslum í þessu efni og tryggja það sem við á að éta í þeim efnum.

Varðandi frv. sjálft tel ég að mörg atriði þar þurfi að gaumgæfa og treysti hv. nefnd til að fjalla um þetta efni og ráða þar á bót í ýmsum greinum, sem ég tel að þyrfti að koma til í sambandi við þetta frv., en alveg sérstaklega hvet ég til þess að menn kynni sér þær álitsgerðir sem fyrir liggja og láti til sín heyra um þessi efni. Það verður auðvitað verkefni nýrrar ríkisstjórnar á þessu sviði sem öðrum að reyna að breyta til og snúa við þeirri öfugþróun sem núv. ríkisstjórn hefur staðið fyrir í þessum efnum sem flestum öðrum.