16.03.1987
Efri deild: 67. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4345 í B-deild Alþingistíðinda. (4107)
318. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Stefán Benediktsson:
Frú forseti. Eins og hv. 2. þm. Austurl. Helgi Seljan á ég sæti í þeirri nefnd sem fjalla mun um þetta frv. og ég tek undir hans lokaorð að við munum aðstoða við það að þetta mál fái skjóta afgreiðslu í nefndinni því að hér eru í raun ekki á ferðinni mikil ágreiningsatriði, heldur er um að ræða lagfæringar á frv. sem að vísu var að nokkru leyti bent á, þegar þetta frv. var hér til umræðu fyrir ári síðan eða svo, að gætu orðið að gagnrýnisatriðum og er verið að færa þau til betri vegar. Mér segir nú svo hugur um að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem menn eiga eftir að stinga spaða niður í þetta frv. og bylta þar um einhverju af því sem þar er.
Mig langar aðeins að tæpa á nokkrum atriðum sem þegar hefur að vísu verið minnst á og þarf þess vegna ekki að gera úr því langt mál. Það eru annars vegar þau atriði sem hv. þm. Helgi Seljan minntist einnig á, þ.e. það sem maður saknar úr þessu frv., hins félagslega þáttar. Ég byrja á því að taka undir hans orð um það að manni bregður þegar maður verður var við það hversu útbreitt það er enn þann dag í dag að fólk greiði ekki í þá sjóði sem skapa því réttindi til öryggis, bæði varðandi orlof og lífeyri. Ég kenni því um af minni reynslu af atvinnulífi að þetta sé mál sem kannske hafi orðið til fyrst á þeim árum þegar verðbólgan var hvað hröðust. Þá sáu menn beinlínis þá peninga brenna upp sem lagðir voru til hliðar með þessum hætti og enn þá mun það sjálfsagt vera í sambandi við lífeyrisgreiðslur að það misrétti sem ríkir meðal landsmanna í þeim málum virkar náttúrlega ekki hvetjandi fyrir hvern einstakling fyrir sig að nýta sér þessar greiðslur, þ.e. að greiða í lífeyrissjóðina, vegna þess að menn horfa til þess náttúrlega með hryllingi hvað þeir fá síðan út úr þessum sjóðum þegar þeir þurfa raunverulega á þeim að halda.
Nú hafa þessir hlutir breyst þannig að menn verða að greiða í þessa sjóði a.m.k. í einhvern tiltekinn tíma til þess að fá úr þeim réttindi, fá þau réttindi sem þetta frv. sem hér er verið að fjalla um skapar. Þá komum við að einum að þeim göllum þessa frv. sem oft hefur verið bent á og hæstv. ráðh. kom inn á í máli sínu áðan. Eins og ég benti á einhvern tíma í máli mínu, og hæstv. ráðh. vitnaði reyndar nokkuð oft í þau ummæli, þá vitum við það að þessi lög eru orðin til fyrir tilstuðlan hagsmunaaðila vinnumarkaðarins. Þeirra hlutverk er að gæta ákveðinna sérhagsmuna. Okkar hlutverk er að gæta almennra hagsmuna. Þegar þetta frv. er lagt fyrir okkur á sínum tíma nánast hrátt úr smiðju ASÍ og VSÍ fylgir þar sá böggull skammrifi að þeir sem greitt hafa í lífeyrissjóði öðlast réttindi til lána eftir tilteknum leiðum og það gerist í raun gagnstætt því sem áður gilti að nokkuð stór hópur fólks sem á stórar skuldlausar eignir hefur allt í einu aðgang að opinberum lánasjóðum, niðurgreiddu lánsfé.
Ég vil taka aðeins upp þau orð sem hæstv. ráðh. viðhafði áðan án þess að ég muni nú orðrétt hvernig hann fór með það. Hann sagði að grundvöllur þessa frv. væri að skuldbindingu lífeyrissjóðanna til kaupa á skuldabréfum fyrir allt að 55% af innlánsfé þeirra fylgdi sú kvöð að allir sjóðfélagar viðkomandi sjóða, sem af Húsnæðisstofnun keyptu, yrðu að eiga réttindi. Þar af leiðandi væri ekki hægt að útiloka þetta fólk sem hér um ræðir. Ég fullyrði að það er hægt að semja um það við lífeyrissjóðina að það fólk sem þarna um ræðir fái einfaldlega sín lán hjá lífeyrissjóðum eins og áður gerðist. Ég fullyrði að það sé hægt að semja þannig við þá að þetta fólk eigi ekki endilega sama rétt og aðrir vegna þess að þessi sami réttur þessa fólks skapar ákveðið mjög augljóst misrétti milli aðila þar sem þetta fólk getur einfaldlega notað þetta niðurgreidda lánsfé til þess að auka við sinn eigin höfuðstól.
Ég trúi því ekki, og þar styðst ég að nokkru leyti við viðræðu mína við forustumenn verkalýðshreyfingarinnar, ég trúi því ekki að það sé hægt að semja um þann réttláta skilning á því hvernig á að útdeila þessu niðurgreidda lánsfé sem mér finnst vera almennt mjög ríkjandi hjá öllum og þar með töldum hæstv. ráðh. Vegna þess að þau lög, sem hér er verið að fjalla um breytingu á, snúast í raun og veru eingöngu um það að hjálpa einstaklingum til þess að eignast þak yfir höfuðið. Það fer miklu minna í þeim lögum fyrir þeim félagslega þætti sem kannske ætti að vera aðalverkefni samneyslunnar eða ríkissjóðs.
Mér segir svo hugur um, sérstaklega þegar maður horfir á það mikla umstang og þá miklu umsýslu sem skapast í kringum Húsnæðisstofnun, t.d. þá árvissu og jafnvel árstíðavissu fjárþröng sem Húsnæðisstofnun komst í hér áður fyrr og þá nýju útgáfu af þeirri fjárþröng sem við horfum upp á núna þar sem biðraðir myndast hjá fólki að bíða eftir lánum þannig að fyrirsjáanlegt er, svo maður fullyrði nú ekki um of, að margir muni þurfa að bíða tvö ár a.m.k. eftir lánum miðað við það að svipað fjárstreymi verði til Húsnæðisstofnunar eins og hefur verið, þá segir mér svo hugur að við eigum í framtíðinni eftir að sjá eitthvert allt annað skipulag á þessum málum en við höfum í dag. Ég held að ríkisvaldið hafi í þessum málum ætlað sér um of og ætlað sér um of á alröngum vettvangi.
Í fyrsta lagi er verið að nota ríkisstofnanir sem lánastofnanir í mjög stórum mæli þegar augljóst er að markmið alls þess starfs er í raun og veru ekkert annað en að hjálpa fólki, einstaklingum til þess að koma þaki yfir höfuðið til sjálfseignar, þ.e. eigin þaki yfir höfuð sér. Í raun þá nægði algjörlega að ríkisvaldið hjálpaði þannig upp á í þessum efnum að það greiddi þessu fólki beint þær greiðslur sem þarf til þess að lækka vaxtakostnað þess nægilega til að gera því kleift að koma þaki yfir höfuðið á sér. Peningana getur fólk fengið lánaða hvar sem er ef þeir eru á annað borð til í þjóðfélaginu. Hlutverk okkar er einungis að tryggja það að þeim sem á annað borð hafa efni á því að taka lán til þess að byggja yfir höfuðið á sér sé gert það auðveldara en ella með alls kyns ráðstöfunum ríkisvaldsins, annaðhvort í formi beinna niðurgreiðslna á vaxtakostnaði eða fjármagnskostnaði eða þá með óbeinum hætti í gegnum skattkerfi með þeim hætti að menn liti á þetta sem sparnað sem verði verðlaunaður.
Lánastarfsemi ríkissjóðs eða ríkisins á fyrst og fremst að beinast að hinum félagslega þætti, beinast að því að lána eða útvega fé til þess að byggja húsnæði, til þess að auka húsnæðisframboð handa þeim sem á annað borð geta ekki eða vilja hugsanlega ekki eiga þakið yfir höfðinu á sér, heldur einungis geta leigt það tímabundið og verið frjálsir annars af þeim böndum sem eign bindur menn, eða þá, og það náttúrlega ekki síst, þeir hópar sem alls ekki eiga þess kost vegna sinna aðstæðna að afla þeirra tekna sem þarf til þess að standa undir fjárfestingu í eigin húsnæði. Það er á þessu sviði sem ég tel að hægt sé að réttlæta beina lánastarfsemi ríkisins, ekki að hjálpa fullbjarga fólki til að útvega því lánsfé á niðurgreiddum kjörum, ekki hvað síst þegar maður sér líka hvers lags óskapleg fyrirhöfn það er fyrir ríkisvaldið og hversu mikill sviti og tár fara í það að standa við þau loforð sem að baki allri þeirri athöfn búa.
Þess vegna, frú forseti mun ég trúlega flytja þær brtt. sem fluttar voru við þetta frv. í Nd. og snerta það mál sem Alþfl. hefur verið að berjast fyrir núna að undanförnu, þ.e. kaupleiguíbúðir.
Að lokum, frú forseti, vildi ég beina tveimur spurningum beint til hæstv. félmrh. Í umræðu sem fram fór í Sþ. um skýrslu sem ráðherrann mælti fyrir þar kom fram í máli ráðherrans undir lok þeirrar umræðu að hann lofaði því að út kæmi fréttatilkynning frá Húsnæðisstofnun um stöðu húsnæðismála miðað við þetta seinasta misseri. Og eins lofaði hann að fram kæmu upplýsingar frá Húsnæðisstofnun þar sem flokkað yrði niður og upplýst með hvaða hætti eða með hvaða rökum stofnunin hefði synjað lánveitingum, og þá var náttúrlega ekki verið að tala þar um upplýsingar um persónur, heldur á hvaða rökum synjanir stofnunarinnar hefðu verið byggðar og í hvaða hópa eða flokka þau rök skiptust.
Af því að við erum hér enn þá í 1. umr. vildi ég mælast til þess að þessar upplýsingar lægju fyrir áður en við afgreiðum þetta mál út úr deildinni, bæði vegna þess að þessum upplýsingum hefur verið lofað og líka vegna þess að ég tel alls ekki úr vegi að skoða þetta mál núna á seinustu dögum þessa þings þar sem augljóst er að það munu vera a.m.k. einir átta mánuðir þangað til þing kemur aftur saman, hvernig farið hefur verið með ýmsa þætti þess sem menn hafa haft áhyggjur af eins og synjanirnar, að ég tali nú ekki um vegna þess að ráðherra gaf það í skyn í þessari umræðu í Sþ. fyrir bráðum hálfum mánuði síðan a.m.k., ef ekki hartnær þremur vikum, að fljótlega væri von á fréttatilkynningu frá stofnuninni almennt um stöðu sjóðs og afgreiðslna, að það lægi líka fyrir svo það mætti skoða það samhliða því sem við afgreiðum þessar greinar sem lúta að lagfæringum á núverandi lögum.