17.03.1987
Sameinað þing: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4364 í B-deild Alþingistíðinda. (4128)
365. mál, vegáætlun 1987-1990
Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég hef venjulega ekki blandað mér í umræður um vegáætlun, enda hefur það oft verið þannig að hún er afgreidd á síðustu dögum þingsins og lítill tími til stefnu. Við þm. Austurlands höfum eins og aðrir þm. fjallað um skiptingu vegafjár í okkar kjördæmi og vegna þeirrar umfjöllunar sem hefur átt sér stað af hálfu Vegagerðarinnar og hv. fjvn. teljum við okkur knúna til að koma á framfæri athugasemdum við þá umfjöllun.
Þegar langtímaáætlun var gerð fyrir nokkrum árum og tillaga um vegagerð ákveðin til næstu tólf ára, sem tekin yrði til endurskoðunar með jöfnu millibili, var ítarleg umfjöllun á Alþingi um með hvaða hætti og eftir hvaða leikreglum fjármagni skyldi skipt. Það var reiknað út út frá kostnaði, arðsemi og ástandi vega. Hlutur Austurlands í þeim útreikningi var þá 18%. Á fyrsta tímabili var gert ráð fyrir því að hlutur Austurlands væri 161/2% eða 11/2% lægra en útreikningurinn gerði ráð fyrir, en í reynd varð þetta hlutfall 16,1 % . Á öðru tímabili var hins vegar gert ráð fyrir að þetta hlutfall væri nokkru yfir reiknitölunni eða 18%. Samkvæmt þeirri tillögu sem nú hefur verið gerð af hálfu Vegagerðarinnar og fjvn. lagt hér fram kemur fram í nál. fjvn.: "Fjvn. tók til athugunar skiptingu milli kjördæma og fé til stofnbrauta og þjóðbrauta og byggjast ákvarðanir nefndarinnar á tillögum sem fram komu frá Vegagerð ríkisins.“
Samkvæmt þessu hefur fjvn. tekið tillögu Vegagerðarinnar og gert hana algerlega að sinni og virðist lítill tími hafa verið til umfjöllunar í nefndinni.
Nú hefur verið reiknað út nýtt hlutfall eða 19,8% að því er varðar Austurlandskjördæmi, en gert er ráð fyrir að hlutfall kjördæmisins verði 18,3% eða 11/2% lægra en reiknitalan segir til um. Í stað þess að hlutfallið fari aðeins yfir reiknitöluna er það enn á ný verulega lægra.
Við þm. Austurlands litum svo á að hér hafi átt sér stað mistök og í samtölum við Vegagerðina kom fram að þar sem búið væri að skipta þessu fé svo rækilega í kjördæmunum væri ekki hægt að leiðrétta þennan hlut. Þar að auki hækkar okkar hlutfall á fyrsta og síðasta ári tímabilsins eða 1990.
Í nál. fjvn. er gert ráð fyrir að frávik til lækkunar frá reiknitölunni sé 2%. Það hefur ekki komið fram með nægilega skýrum hætti á Alþingi hvað þetta frávik má verða mest þar til það byrjar að leiðréttast. Nú held ég að allir alþm. geri sér grein fyrir því að það verður að vera visst svigrúm fyrir Vegagerðina og hin einstöku kjördæmi verða að sætta sig við að frávik geti verið til lækkunar. En til langframa hljóta þessar útreikningsreglur að vera til að gæta jafnræðis í þessum málum í landinu. Það jafnræði er að sjálfsögðu forsenda þess að það geti ríkt bærilegur friður á Alþingi um þessa skiptingu.
Nú er það svo, t.d. að því er varðar Austurlandskjördæmi, ef þetta gengur svo fram að 31/2% verður komið undir á átta ára tímabili, að þá skiptir m.a. miklu máli hvað gerist á því þriðja og því þarf að móta ákveðnar leikreglur og hefði verið eðlilegt að um það væri rætt í fjvn. Það er hins vegar gert ráð fyrir því í þessari vegáætlun að meira fjármagn komi til skipta strax á árinu 1988 ef séð verður fyrir tekjuöflun til þess. Ég býst við því að allir þm. eigi auðvelt með að skipta viðbótarfjármagni og enginn vafi er á að það er mikill áhugi fyrir því að slíkt geti orðið og það ástand verði hér í þjóðfélaginu að svo megi verða.
Ég vil taka mjög skýrt fram að við gerum til þess mjög ákveðna kröfu að þetta verði leiðrétt við þá umfjöllun og um það mótaðar skýrar reglur með hvaða hætti þessi frávik eigi að vera og á hvað löngu tímabili. Eins og ég gat um í upphafi máls míns gengum við út frá því að okkar hlutfall yrði hærra en reiknitalan á öðru tímabili, en niðurstaðan er sú að hún er verulega lægri samkvæmt tillögum sem Vegagerðin hefur gert. Ég skal að vísu taka fram að það er að hluta til vegna þess að ný stofnbraut kemur inn á tímabilinu, vegurinn milli Vopnafjarðar og Héraðs, en það skýrir ekki allan þann mun. Við gerum um það ákveðna kröfu að um þetta sé fjallað ítarlega í fjvn. og ákveðnar leikreglur skapaðar í þessu sambandi. Ef það er ekki gert getur ekki ríkt sá friður sem hefur verið milli kjördæmanna um skiptingu vegafjár og ég vænti þess að það sé áhugamál allra hv. þm. að þar geti verið eðlilega staðið að málum.