17.03.1987
Sameinað þing: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4367 í B-deild Alþingistíðinda. (4130)

365. mál, vegáætlun 1987-1990

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það væri út af fyrir sig ástæða til að eyða alllöngum tíma í umræður um vegáætlun, ekki síst fyrir fulltrúa úr þeim kjördæmum sem hvað verst eru sett í þeim efnum. Ég skal eigi að síður ekki eyða löngum tíma þessa fundar til þess, en mig langar til að fara örfáum orðum um þessi mál.

Ég vil fyrst aðeins víkja að hv. síðasta ræðumanni. Það er greinilegt að það er vel búið að gera við þá Reyknesinga ef það er hægt að halda því fram að menn eigi að láta minna fjármagn í vegaframkvæmdir en nú er gert og gert hefur verið. (KH: Sagði ég það?) Ég heyrði ekki betur en hv. þm. segði að það mætti vel draga saman þar. Það hefði verið gert á öðrum sviðum. Hvað þýðir að draga saman? Það er að minnka í mínum skilningi.

Ég skal ekki fara fleiri orðum út í það, en enn vík ég að einum og þá hæstv. sjútvrh. Mér finnst það koma úr hörðustu átt þegar einn af hæstv. ráðherrum í ríkisstjórn, búinn að vera þar í hartnær fjögur ár, getað haft áhrif á framgang mála í þessum efnum sem og öðrum, kemur hér upp og gagnrýnir fjvn. fyrir þau vinnubrögð sem hún hefur innt af höndum, segir hér með að Austfirðingar séu settir hjá í framkvæmdum að því er varðar samgöngumál. Hæstv. ráðh. er líklega búinn að gleyma því að Austfjarðaflugvöllur, Egilsstaðaflugvöllur, var tekinn fram yfir öll önnur framkvæmdaatriði á þessu ári. (Sjútvrh.: Eru það nú vegamál?) Heyrir það ekki undir samgöngumál? Á að taka Austfirðinga fram yfir á öllum sviðum? Er það meining hæstv. ráðh.? Þá er rétt að það kæmi hér fram að hinir og aðrir ættu að bíða eftir því að Austfirðingar væru búnir að fá allt sitt. Ég held að það væri þá rétt að hæstv. ráðh. segði það hér.

Ég sé ekkert eftir því þó að ýmislegt hafi verið vel gert við þá Austfirðinga, en það má kannske segja um hæstv. ráðh. að sjaldan launar kálfur ofeldið. Og það ætti við í fleiri tilvikum.

Hæstv. sjútvrh. sagði áðan: Við heimtum meira næsta ár. Við krefjumst þess að meira fari til okkar árið 1988 og það verður vissara með hvaða hætti sem við fáum það. Hvernig á að skilja slíkt? Ég kem kannske að því frekar á eftir í sambandi við þær hugmyndir sem ég hef haft um afgreiðslu vegáætlunar fyrir næsta áætlunartímabil.

Ég vil segja við vin minn hv. þm. Geir Gunnarsson: Ætli ýmsir séu ekki verr á vegi staddir í vegakerfinu en Reyknesingar og Reykjavík? Það kæmi mér a.m.k. ekki á óvart að ýmsir ættu meira eftir og ættu erfiðara fyrir höndum en Reykjanes og Reykjavík. (GHelg: Er ekkert atriði hvað er hentugt að gera í hvaða áföngum?) Auðvitað getur hv. þm. velt fyrir sér hvað er hentugt. Það er kannske hentugast að hennar áliti að þjappa öllum Íslendingum saman á Reykjavíkursvæðinu, setja þá alla í blokk í Breiðholtið eins og stefnt er að. Það er kannske hentugast. Ég hygg þó að það mundi minnka í buddunni hennar eins og annarra ef slíkt yrði gert. Hún mundi ekki lifa jafnfrjálslega og hún gerir nú ef það væri stefnt að því að safna öllum af landsbyggðinni hingað á Reykjavíkursvæðið. Reykjavík hefði ekkert gott af því. (GHelg: Við þurfum líka að komast til Vestfjarða.) Einmitt, og það er það sem ég er að tala um. En það skortir á skilning ýmissa hv. þm. á að það þarf alveg jafnt að keyra frá Vestfjörðum og til Vestfjarða. Það er nefnilega gallinn á málinu sem sumir virðast ekki skilja. (Gripið fram í.) Ja, ég heyri það að það er að lifna yfir umræðu hér. (Gripið fram í.) Hv. þm. hefði átt eftir alla þessa þingsetu að gera sér grein fyrir því hvað er verið um að ræða í umræðu um vegáætlun, en ég á ekkert við það og býst ekki við því að hv. þm. Reykjavíkurkjördæmis þurfi neitt um slíkt að hugsa. Þeir hafa yfirleitt allt sitt á þurru í þeim efnum.

Herra forseti. Hér var sagt áðan og hefur oft verið sagt áður að nú hafi gengið eitt mesta góðæri yfir íslenskt þjóðarbú um langan tíma. Þetta mun vera rétt. En hverjir hafa notið þessa góðæris? Hverjir hafa blómstrað? Hafa samgöngumálin blómstrað undir þessu góðæri? Hafa vegaframkvæmdir blómstrað? Hafa hafnarmálin blómstrað? Hafa flugmálin blómstrað að því er varðar framkvæmdir í þessum efnum? Svo mætti lengur telja. Nei, ég held að ýmsir geti sagt og það með fullum sannindum að þessir þættir hafa a.m.k. orðið út undan í góðærinu.

Auðvitað tengist þetta byggðamálaumræðunni. Flestir, hugsa ég, eru sammála um að óheillavænleg þróun hefur átt sér stað að því er varðar byggðamálin. Það vex sá fjöldi sem flýr af landsbyggðinni hingað á suðvesturhorn landsins. Það er svo langt gengið að fyrir nokkrum dögum þingaði enn a.m.k. stærsti stjórnmálaflokkur landsins í Reykjavík og þar höfðu menn á orði að eitthvert mesta áhyggjuefnið væri hversu mikill flóttinn væri frá landsbyggðinni á Stór-Reykjavíkursvæðið. (Gripið fram í.) Hvað segir hv. þm. Stefán Guðmundsson? (StG: Átti ekki að breyta því með vægi atkvæða?) Nú þýðir ekki hv. þm. að spyrja mig hverju átti að breyta með vægi atkvæða. Ég var einn þeirra sem voru andvígir því sem gert var í þeim efnum. Ég man ekki afstöðu hv. þm. Stefáns Guðmundssonar. Mig minnir eigi að síður án þess að ég fullyrði að hann hafi ekki verið langt frá því að styðja þann meiri hluta sem hér myndaðist í þeim efnum. Hann gerir kannske grein fyrir því á eftir hver afstaða hans var í þeim efnum. Og nóg um það.

Þar höfðu menn á orði að þetta væri eitt mesta vandamálið sem við væri að glíma. Og þá vegna hvers? Sjálfstfl. hefur nú setið í ríkisstjórn í fjögur ár nánast og búið til þetta vandamál með sinni fjármálapólitík og efnahagsstefnu ásamt Framsfl. og hv. þm. Stefáni Guðmundssyni þar með.

Nú eru menn að opna munn og segja að þetta sé vandamál og það líklega fyrst og fremst vegna þess að kosningar eru á næsta leifi. Nú uppgötva menn vandamálið þrátt fyrir fjögurra ára stjórnarsetu sem hefur skapað þau vandamál sem við erum hér um að tala. Nú opna menn munninn vegna þess að um fimm vikur eru í kosningar. Það hefur ekki verið að sjá að þessir hv. þm. gerðu mikið til að breyta þeim viðhorfum sem ríkt hafa í þá veru að skapa betra ástand til að jafna búsetuskilyrði í landinu til að koma í veg fyrir þá öfugþróun sem hefur átt sér stað og á sér stað í auknum vexti.

Ég tók eftir því áðan að hæstv. sjútvrh. lýsti því yfir að þeir þm. Austurlands, ég tók ekki eftir því hvort hv. þm. Egill Jónsson var inni þá, nú er hann kominn í sæti sitt, - hæstv. sjútvrh. lýsti því yfir að þeir Austfjarðaþingmenn, og dró engan undan, teldu að hrein mistök hefðu átt sér stað í afgreiðslu fjvn. á þeirri vegáætlun sem hér liggur fyrir.

Mér þætti gaman að fá um það upplýsingar hér á eftir hvort hv. þm. Egill Jónsson tekur þessum aðdróttunum þegjandi og hljóðalaust, hvort hann hefur framið hrein mistök á Austfirðingum, flumbrað vinnubrögðum í fjvn. að því er Austfirðinga varðar. Slíkt væri gaman að heyra á eftir. Ég ætla hv. þm. Agli Jónssyni ekkert slíkt, en ég heyri að hans samþingsmenn, kannske hinir nánustu hingað til, gera það. Ég vænti þess að hann svari fyrir sig á eftir. (Gripið fram í: Það er engin hætta á öðru. )

Herra forseti. Ég var þeirrar skoðunar strax þegar vegáætlunin kom til umræðu innan fjvn. að í ljósi þess sem nú er að gerast, þeirrar stöðu sem við erum nú í, væri skynsamlegast að afgreiða vegáætlun bara til ársins í ár. Það eru kosningar í apríl. Þar verður kjörið nýtt þing. Það verður ný ríkisstjórn. Hvaða flokkar hana skipa skal ég ekkert um segja, en ný ríkisstjórn verður eigi að síður mynduð eftir þessar kosningar. Og hvað var skynsamlegra en að afgreiða bara vegáætlun fyrir árið í ár og ætla nýju þingi og nýrri ríkisstjórn að taka málið upp? Ekki síst í ljósi þess að ég heyri ekki betur en hver hv. þm. á fætur öðrum hafi komið hér upp og tekið undir þetta. Ég lýsti því líka á þingmannafundi Vestfirðinga að ég teldi þetta rétt. Auðvitað kom hæstv. samgrh. með viðbáru um að tæknilega væri þetta ekki framkvæmanlegt. Hæstv. ráðh. er líklega búinn að gleyma því að hann tók sjálfur við óafgreiddri vegáætlun þegar hann tók við ráðherradómi 1983. Þá var vegáætlun gjörsamlega óafgreidd. Það er nægur tími fyrir væntanlegt þing og væntanlega ríkisstjórn að taka þetta mál upp að loknum kosningum í apríl til að gera því góð skil fyrir framtíðina.

Það tekur því auðvitað ekkert að vera að rífast um árið í ár. Það mál er afgreitt eins og það liggur fyrir. En ég er þeirrar skoðunar að næstu ríkisstjórn beri skylda til að spretta þessu máli upp og breyta prósentum milli kjördæma og auka fjármagn til vegaframkvæmda til að gera stöðuna betri og sambærilegri milli þeirra sem verst eru settir og hinna sem miklu lengra eru komnir fram á veginn í vegagerð og samgöngum.

Við skulum ekki gleyma því að samgöngumálin eru einn af mestu og mikilvægustu þáttum í íslensku samfélagi í dag. Það á líka við flugvelli og hafnir. En þá einangrun sem ýmis svæði hafa búið við að því er varðar vegakerfið verður ekki lengur unað við. Ég vil ekki trúa því að þm. hafi ekki kjark til að taka þá ákvörðun að þarna verði að verða breytingar á. Ég vil á engan hátt gagnrýna hæstv. samgrh. í þessum efnum. Mig minnir að það sé til orðtæki sem segir að hver hafi sinn djöful að draga og ég veit að hæstv. ráðh. hefur haft þá marga í þessum efnum að því er varðar aukið fjármagn til vegaframkvæmda. (Gripið fram í.) Hvað segir hæstv. ráðh.? (Samgrh.: Það hafa allt verið smádjöflar.) Ja, það er ekki nóg að þeir séu smáir ef þeir eru svo margir að þeir yfirgnæfa. Þá dugar það. (GJG: Aðallega úr Bolungarvík, sagði hann.) Ég veit ekki til að hæstv. ráðh. hafi haft neinn í ríkisstjórn úr Bolungarvík. En þetta er auðvitað eins og fleira sem hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson veit betur en aðrir. En kannske tækist þetta ef hæstv. ráðh. legðist á sveif með okkur hinum sem viljum meira fjármagn, betri vegi, ég tala ekki um þar sem þeir eru verstir, ef það tækist að ýta þeim til hliðar sem draga lappirnar í vegaframkvæmdum eða a.m.k. stugga við þeim þó ekki væri gert annað. Þá á hæstv. ráðh. að láta okkur vita hverjir það eru sem hafa verið tregastir í taumi í þeim efnum að búa betur að fjárveitingum til vegaframkvæmda. Ég tek undir með hæstv. ráðh. og þykist vita að þeir eru margir, en mismunandi áberandi.

Ég er alveg undrandi á því, ekki síst eftir að það kemur fram í nál. frá fjvn., sem ég skrifaði undir með fyrirvara að vísu, að menn hafa séð á síðustu stundu að það þurfti a.m.k. að gefa yfirlýsingu um að setja meira fjármagn á þennan eða hinn staðinn. Af hverju þessi sýndarmennska? Það er í langtímaáætlun að setja miklu meira fjármagn í vegaframkvæmdir en nú er gert. Ég held að það séu 2,4% af þjóðarframleiðslu samkvæmt langtímavegáætlun. Sumir vildu hafa það 2,5%, ef ég man rétt, og þar var hæstv. samgrh. fremstur í broddi fylkingar. Svo bjóða menn núna upp á 1,6% eða rúmlega það kannske. Já, ég held að það sé í kringum 1,6%. Eða 1,5%. Alltaf er maður að gera ríkisstjórninni betur og dugar ekki til. 1,5%, segja þeir fulltrúar Alþb. sem hér hafa látið í sér heyra og ekki dreg ég í efa að þeir séu að segja satt. 1,5% í staðinn fyrir 2,4%. En svo segja menn á pappírnum: Strax á næsta ári þegar ný ríkisstjórn er tekin við gerir hún miklu betur. Hún á að gera miklu betur. Trúa menn þessu í raun og veru? (Sjútvrh.: Ætlar þú ekki að vera í henni?) Á ég kost á því? Hæstv. ráðherra. Á ég kost á því? Ræður þú einhverju um það? (Sjútvrh.: Stefnirðu ekki að því?) Auðvitað stefna menn að því, en ég átti ekki von á liðsinni úr þessari átt. Það hefur ekki verið hingað til. (Gripið fram í.) Ég bíð hljóður eftir hvað menn vilja segja, hvaða embætti menn bjóða.

Menn eru orðnir svo órólegir að þeir ganga um gólf fyrir framan ræðustólinn hver á fætur öðrum. (Gripið fram í: Er verið að taka menn á beinið hérna?) Ekki aldeilis. (GJG: Hefur þm. aldrei verið boðið ráðherraembætti?) Jú, honum hefur verið boðið það fyrr en hafnað, enda ekki í neinu titlatogi í þessum efnum.

En finnst mönnum ekki að það sé meiri eða minni sýndarmennska í þessum efnum? Þeir segja núna meðan kannske fimm, sex vikur eru eftir af lífstíð hæstv. ríkisstjórnar: Við setjum sem svarar 1,5% af tekjunum í vegaframkvæmdir, en strax á næsta ári, þegar nýir eru teknir við, skulum við setja 2,4%. Auðvitað er þetta kosningaloforð og ekkert annað. Helber sýndarmennska sem menn eru að bjóða upp á. Og ég skil ekkert í hæstv. samgrh., eins heill og hann vill vera og er yfirleitt, að hann skuli setja málið fram með þessum hætti. Ég er handviss um það, án þess að ég ætli neitt að fara að taka hans málstað sérstaklega hér, hann getur svarað fyrir það sjálfur, að hann hefði viljað fá meira fjármagn í vegaframkvæmdir en hér er um að ræða, en djöflarnir sem dragast hafa komið í veg fyrir það, hverjir sem þeir eru.

Ég sagði áðan að ég hefði skrifað undir þetta nál. með fyrirvara. Fyrst og fremst er það vegna þess að ég sé að ég fæ engu breytt fyrir árið í ár. Það liggur nánast á borðinu að því verði í engu breytt. Hér eru menn að skipta mörkuðum tekjustofnum, ekki eyri frá ríkinu á árinu í ár. En ég hefði viljað að menn hefðu getað sameinast um það, burtséð frá flokkspólitískum sjónarmiðum, að láta þó duga að skipta árinu í ár en síðan spretta málinu upp í heild eftir að kosningum lýkur og ný ríkisstjórn hefur tekið við.

Ég held að það sé miklu erfiðara fyrir væntanlegt þing, fyrir væntanlega ríkisstjórn að una við að Alþingi sé búið að binda tölur. Það væri miklu skynsamlegra, ef menn á annað borð meina að þeir vilji ná árangri, að hafa laust áætlunartímabilið sem eftir er fyrir utan árið í ár, enda gefur meiri hl. fjvn. nánast frítt spil með þeirri yfirlýsingu sem hér er flutt. Ég er út af fyrir sig sammála honum um það, en menn hefðu átt að gera þetta strax, gera þetta með eðlilegum hætti. Ég dreg ekki í efa að því er varðar t.d. Norðurland eystra, Múlann, að þar þarf mjög aukið fjármagn. Það er enginn vafi á því. Ég er sömu skoðunar og aðrir. Það verður ekki gert nema með viðbótarfjármagni, fjármagni til viðbótar því sem við erum nú að tala um. Ég minni á í þessum efnum. að þegar Ó-vegaframkvæmdirnar voru ákvarðaðar á sínum tíma var um það talað að í allar þær framkvæmdir kæmi viðbótarfjármagn, ekki það sem menn hafa verið að tala um að skipta í vegáætluninni heldur til viðbótar við það. Ekkert af því hefur staðist. Þess vegna erum við kannske þetta illa sett í framkvæmdum víðs vegar á landinu trúlega, misjafnlega mikið eins og raun ber vitni.

Ég held að þm. verði að átta sig á að við getum ekki boðið landsbyggðarfólki upp á að búa áfram við þá einangrun sem það hefur búið við. Þar verður að verða breyting á. Komnar eru til umræðu í ríkum mæli ýmiss konar framkvæmdir að því er varðar jarðgöng á hinum ýmsu stöðum. Það er enginn vafi að það er framtíðin, hversu langan tíma sem maður kemur til með að bíða eftir því. En framtíðin er það. Við eigum að lyfta undir slíkt. Það er Alþingis að greiða fyrir slíku. Og það er enginn vafi á því að vegaframkvæmdir víðs vegar á landinu eru arðsamar. Það er kannske einhver arðsamasta framkvæmd sem farið er í nú að byggja vegi með þokkalegum hætti. Eftir því eiga menn ekki að sjá í peningum. Ég hef sagt það áður og segi enn: Hvað sem mínir flokksbræður segja í Alþfl. er ég þeirrar skoðunar að lántaka til vegaframkvæmda, svo arðsamar sem þær eru, er réttlætanleg. Slíkar framkvæmdir yrðu fljótar að borga sig, að mínu viti.

Ég skal ekki, herra forseti, eyða öllu lengri tíma í þetta mál þó ástæða hefði verið til, en ég ítreka að ég hef verið þeirrar skoðunar og er þeirrar skoðunar að vegáætlun hefði átt að afgreiða bara fyrir árið í ár, en láta síðan komandi þingi, komandi ríkisstjórn eftir að glíma við þá erfiðleika sem ég viðurkenni að eru, erfiðleika í því að breyta framkvæmdum frá því sem nú er, bæði breyta prósentuhlutfalli milli kjördæma og auka fjármagn til vegaframkvæmda. Ég held að komandi þm., ég tala ekki um komandi ráðherrar, hverjir sem þeir verða, þó að sumir séu farnir að gráta stólinn heyrist mér hér inni, hefðu haft gott af því að fá að glíma við þetta verkefni. (ÓÞÞ: Hverjir gráta stólinn?) Hverjir? Var ekki hv. 5. þm. Vestf. hér inni áðan eða fylgist hann ekki með frekar en venjulega? (ÓÞÞ: Ég heyrði engan harmagrát.) Ég heyrði það, jú. (ÓÞÞ: Hver grét?) Þú hefur verið með vitlaust eyra að þeim sem grét. (ÓÞÞ: Hver grét?) Á ég að nefna nafnið? Ég heyrði ekki betur en hæstv. sjútvrh. væri með hálfgerðan harmagrát. En það er þér fjarrænt veit ég.

Hvað sem því líður held ég að þetta hefði verið skynsamlegasta ákvörðunin, burtséð frá flokkspólitískum sjónarmiðum. Það hefði verið skynsamlegt að menn hefðu sameinast um þetta, verið sammála um að hér þyrfti breytinga við, það væri best að nýtt þing og ný ríkisstjórn fengju við það að glíma, breyttu prósentum milli kjördæma, ykju fjármagnið til vegaframkvæmda og sinntu þeim fyrst og fremst sem verst eru settir.