17.03.1987
Sameinað þing: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4405 í B-deild Alþingistíðinda. (4149)
Afgreiðsla þingmála
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég ætla nú ekki að lengja þessa umræðu að mun. Ég vil þó vekja athygli á því að ég hef flutt þessa tillögu eða með nánast sama orðalagi á undanförnum þingum og ætlaði mér náttúrlega að endurflytja hana á þessu þingi en hætti að sjálfsögðu við það þegar ég sá tillögu á þskj. 49 frá Jóhönnu Sigurðardóttur og Kolbrúnu Jónsdóttur. Að vísu var örlítið annað orðalag en það var sama meining í tillögu þeirra.
Ég er þakklátur þeim alþm. Jóhönnu Sigurðardóttur og Kolbrúnu Jónsdóttur að sjá að þessi tillaga mín var viturleg og góð og réttlát. Þær hafa ekki verið einar um það því að formanni félmn. hefur þótt málið svo til fyrirmyndar að hann endurflytur það eða endurendurflytur það. Ég hef tekið eftir því að hann er mjög hrifnæmur og þegar hann sér góðar tillögur verður hann stundum svo hrifinn að hann lætur prenta þær upp og flytur þær sjálfur í eigin nafni.
Það er eitt til ráða í þessu efni. Það er að við sameinumst nú um það á næsta þingi að flytja þingmálið sameiginlega og tryggja því framgang því að málið er gott og réttmætt og það er ekki skammlaust að Alþingi hrindi ekki þessu réttindamáli í framkvæmd.
Varðandi tillögur um umhverfismál höfum við hv. þm. Gunnar G. Schram flutt mál svipaðs eðlis. Það var þó einn reginmunur á þessum málum. Hann lagði til í sinni tillögu að samræma stjórnina, ég lagði til að samræma stjórnina og vista þetta sem skrifstofu í félmrn. Hans tillaga var að hluta til ítarlegri hvað varðaði umhverfisvernd í hafinu þannig að það var ekki algerlega um sambærileg mál að ræða. Því miður nær hvorug þessi tillaga fram að ganga á þessu þingi en ég vona að okkur takist að bræða saman eina sem við getum fengið samþykkta næst.