17.03.1987
Sameinað þing: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4409 í B-deild Alþingistíðinda. (4154)
Afgreiðsla þingmála
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Herra forseti. Ég get heldur ekki orða bundist eftir þá ræðu sem hv. þm. Gunnar G. Schram hélt áðan. Hv. þm. sagði að enginn ætti einkarétt á nokkru máli hér og vitaskuld er það alveg rétt. Það á enginn einkarétt á nokkru máli. Það er hins vegar nokkuð til sem heitir mannasiðir hér í þingsölum og reyndar einnig í fræðimennsku, eins og hv. þm. Guðrún Helgadóttir kom inn á áðan, og þeir eru þeir að menn nýta sér ekki verk og hugmyndir annarra án þess að láta þess getið og menn bera ekki fram tillögur, sem aðrir hafa sett fram, í sínu nafni.
Kvennalistinn er einn um það að hafa lagt fram frv. til laga um þetta mál og það er að finna á þskj. 27. Því var vísað til félmn. Nd. 22. okt. s.l. og þar hefur það rykfallið síðan. Hvað varðar vinnubrögð hv. þm. Gunnars G. Schram kastar ef til vill fyrst tólfunum hvað varðar 49. mál sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir er 1. flm. að vegna þess að sá sami hv. þm., Gunnar G. Schram, er einnig formaður þeirrar nefndar sem hefur haft það mál til meðferðar frá því 28. okt. s.l.
Hv. þm. Páll Pétursson lét þess getið að e.t.v. væri ráð að þeir þm. sem hafa sinnt þessum málum og sýnt þeim áhuga á þessu þingi og þeim þingum sem umliðin eru sameinuðust um það á næsta þingi að leggja fram eina tillögu í þessu efni. Ég held að það sé ekki eftir nokkru að bíða. Ég held að við getum sameinast um það nú og til þess eru Kvennalistakonur tilbúnar.