03.11.1986
Neðri deild: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í B-deild Alþingistíðinda. (418)

71. mál, dagvistarheimili fyrir börn

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Eins og fram kom í orðum hv. 1. flm., þá skiptumst við á skoðunum um þetta mál þegar það var til umræðu á síðasta þingi og mér til ánægju ætla hér fleiri greinilega að taka til máls því að þetta mál verðskuldar meiri umræðu og raunar fleiri áheyrendur en hér eru núna.

Ég ætla ekki að endurtaka allt sem ég sagði hér í fyrra. Ég vil þó ítreka stuðning okkar Kvennalistakvenna við meginmarkmið þessa frv., sem kemur fram í 1. gr. frv., svo og í 4. gr., og segja það að við tökum heils hugar undir þau markmið og þarf tæpast að styðja það neinum rökum umfram það sem fram kemur í grg. með frv. og fram kom í máli mínu þegar þetta var til umræðu á síðasta þingi.

En ég verð því miður einnig að ítreka andstöðu mína við 3. gr. þessa frv. og þó sérstaklega tvær síðustu línur greinarinnar um það að heimilt sé að mennta og þjálfa fósturliða til aðstoðar fóstrum við uppeldisstörf á dagvistarheimilum og skuli nám þeirra, réttindi og skyldur ákveðið með reglugerð, sem síðan er fjallað nánar um í fskj.

Það verður nú bara að hafa það þótt hv. flm. þyki það þröngsýni. Ég er henni innilega sammála um það að á dagvistarheimilum og leikskólum ríkir nú ófremdarástand vegna fóstruskorts. Og ég held að við hljótum að geta verið sammála um það hvers vegna það ófremdarástand er. Þar er að mínu viti fyrst og fremst um að kenna lökum kjörum fóstra sem stafa af vanmati á gildi fósturstarfsins. Ágreiningur okkar felst einfaldlega í því hvernig leysa beri þetta vandamál.

Hv. flm. vilja leysa það með því að búa til nýja starfsstétt og um það greinir okkur á. Ástandið er víða þannig að það er kannske aðeins ein fóstra á deildinni sem hefur sér til aðstoðar ófaglært starfsfólk. Og dæmi eru um að störfin séu unnin af algerlega ófaglærðu starfsfólki.

Nú var dreift hér í dag á borð þm. svari menntmrh. við fsp. hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur og Svavars Gestssonar. Ég var að skoða það fyrr í dag og þar er ýmsar athyglisverðar upplýsingar að finna, m.a. að á sumum dagvistarheimilum, einkanlega úti á landsbyggðinni, sem kannske var við að búast, er enginn faglærður starfskraftur og þarf reyndar ekki að fara langt út á land til þess að finna dæmi um slíkt. Þetta er vitanlega algerlega ófullnægjandi og um það erum við vissulega sammála. Það er hins vegar að mínum dómi ekki rétt að leysa þennan vanda með því að búa til nýja starfsstétt og þar með draga úr kröfum um menntun og kjör þeirra sem við treystum til umönnunar og uppeldis barnanna okkar á afar viðkvæmu skeiði ævinnar.

Það var þetta sem ég átti við þegar ég talaði um annars flokks starfskraft sem greinilega hafði sært tilfinningar hv. 1. flm. Með því var ég vitanlega ekki að drótta einu eða neinu að fólki yfirleitt, þ.e. að fólk yrði annars flokks um leið og það væri minna menntað en aðrir í svipuðum störfum, heldur aðeins þetta að minni menntun í starfi hlýtur að gera fólk minni máttar þeim sem menntaðri eru. Og ef við höfum fallist á það að til þess að gegna fósturstarfi þurfi þriggja ára menntun, þá finnst mér það skref aftur á bak ef við drögum úr þessum kröfum. Mér finnst felast í þessu uppgjöf fyrir þessu ófremdarástandi sem leitt hefur af vanmati á störfum fóstra og bágra kjara í framhaldi af því.

Nú er ófaglærðu starfsfólki gefinn kostur á námskeiðum til þess að auka starfshæfni þess og hækka það að einhverju leyti í launum og er í rauninni allt gott um það að segja. Með því er reynt að leysa þennan bráðasta vanda, en vitanlega er eina framtíðarlausnin fólgin í því að virða starf og menntun fóstra að verðleikum. Og ég tel að það sé aldrei góð lausn ef hörgull er á sérmenntuðu starfsfólki að búa þá til nýja starfsstétt sem hafi minni menntun. Og þar eð hér var minnt á sjúkraliðastéttina, þá finnst mér það naumast sambærilegt við það sem hér er verið að leggja til þar sem sjúkraliðum er ekki heimilt að ganga fyllilega í störf hjúkrunarfræðinga, enda töluverður munur á menntun. Í því þingmáli, sem hér er til umræðu, er að vísu talað um, ef ég man rétt, að stjórnandi dagvistarheimila eða deilda verði að vera fóstra, en að öðru leyti sé ég ekki annað en að fósturliðar muni eiga að ganga fyllilega í starf fóstra. Og ég sé vissulega á þessu þá hættu að fósturliðamenntunin muni hreinlega taka við af fósturmenntuninni. Ég hef enga trú á að það sé ætlun flm. en á þessu er vissulega hætta. Og er ekki með þessu í raun og veru verið að segja að fósturmenntunin sé hugsanlega of mikil, minni menntun nægi?

Ég held að við ættum frekar að finna önnur ráð til þess að ná því markmiði að þörfinni fyrir fullgildar fóstrur verði fullnægt. Ég tel þetta ekki réttu leiðina til að leysa þann vanda sem skapast hefur.