03.11.1986
Neðri deild: 8. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (419)

71. mál, dagvistarheimili fyrir börn

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég er meðflm. að því frv. sem hér liggur fyrir á þskj. 71 og vil því koma á framfæri nokkrum athugasemdum, einkum og sér í lagi við athugasemdir hv. þm. Kristínar Halldórsdóttur. Ef við lítum raunsætt á ástandið eins og það er núna, þá er meiri hluti starfsfólks dagvistarheimila ófaglært fólk. Eins og kemur fram á þskj. 121 í áðurnefndu svari hæstv. menntmrh. við spurningum okkar hv. þm. Svavars Gestssonar eru t.d. í Reykjavík 334 ófaglærðir en 209 fóstrur á dagvistarheimilum Reykjavíkurborgar. Í Kópavogi er þetta hins vegar öfugt. Þar eru fóstrur 47 en ófaglærðir 30. En víðast hvar annars staðar nema í Borgarnesi sýnist mér er það svo að yfirgnæfandi meiri hluti starfsmanna er ófaglært fólk. Nú er út af fyrir sig ekkert við það að athuga ef nægilega margar fóstrur fengjust til þess að stjórna starfinu á hverri deild, en svo er því miður ekki einu sinni.

En það er alveg ljóst að þetta ástand breytist ekkert á næstunni og nú sitja færri í Fósturskóla Íslands en um langt skeið. Þetta starf er hreinlega ekki aðlaðandi lengur, fyrst og fremst vegna lélegra launakjara og það sýnir sig t.d. að varla dettur nokkrum karlmanni í hug að fara þá menntunarleið að gerast fóstra. Ég má segja að annaðhvort hafa einn eða tveir piltar útskrifast úr þeim skóla. Hvernig á þá að bregðast við þessu? Ég held að sú leið sem hér er farin sg á engan hátt óeðlileg. Nú er svo komið að fósturnám krefst í raun og veru stúdentsprófs. Það er með undantekningum ef nemandi er tekinn í Fósturskóla Íslands sem ekki hefur lokið stúdentsprófi. Hér er því um verulegt nám að ræða. (Gripið fram í.) Já, ég bið hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson að leiðrétta mig ef þetta er ekki rétt. (GJG: Ég er að því.) Já, ég bið þá um að fá þá leiðréttingu héðan úr ræðustól, en þegar ég segi stúdentspróf, þá á ég að sjálfsögðu við stúdentspróf frá fjölbrautaskólum og öllum þeim öðrum menntastofnunum sem útskrifa stúdenta. En grunur minn er sá að mikill meiri hluti nemenda hafi lokið slíku námi.

Hér aftur á móti væri um að ræða eins árs nám sem væri mjög svo æskileg endurmenntun, t.d. húsmæðra sem hafa komið börnum sínum af sér og annarra slíkra sem e.t.v. hafa ekki undirbúningsnám að sama skapi og þeir sem teknir eru í Fósturskóla Íslands. Og ég tel það leiða af sjálfu að starfsmaður sem hefur fengið slíka endurmenntun, slíka árs menntun, hljóti að vera betri og æskilegri starfskraftur heldur en sá sem ekkert undirbúningsnám hefur fengið.

Við getum bent á samsvarandi menntunarleiðir sem settar hafa verið á stofn. Af hverju eru menn sendir í Fiskvinnsluskóla? Ég held að öllum beri saman um að það sé mjög til bóta fyrir þá stétt og sama er að segja um sjúkraliða. Og mér er ekki alveg ljóst hvernig sjúkrahúsin væru rekin í dag án sjúkraliðamenntunarinnar. Þannig að ég óttast ekki að hér verði einhver allsherjar breyting á starfsliði dagvistarstofnana í þá átt að fósturmenntunin leggist af. Ég vona að svo slæmt sé málið ekki. En það er alveg staðreynd að fóstrum fer fækkandi og þá verður að koma til móts við börnin á einhvern hátt.

Þau laun sem ófaglærðu fólki er boðið á þessum stofnunum eru svo aum að það er alveg rétt að það er ekki fyrsta flokks starfsfólk í sama mæli og áður sem sækir um slík störf. Ég veit t.d. um barn mér nákomið sem hafði 11 „fóstrur“, eins og barnið orðaði það, á einu einasta ári. Og það segir sig alveg sjálft hver áhrif það hefur á lítið barn að vera í stöðugum kvíða út af því að nú komi einhver nýr til þess að gæta þess allan daginn. Ég held þess vegna að það sé gersamlega raunhæft að reyna að girða fyrir það ástand og með ráðstöfunum eins og þessum. Og ég vil leggja á það áherslu að ég held að að sumu leyti gæti þetta verið æskilegt nám fyrir ýmsa þá sem eru að koma út á vinnumarkaðinn eftir að hafa kannske verið árum saman utan vinnumarkaðarins, jafnvel við barnauppeldi og hliðstæð störf.

Ég vildi auk þess vekja athygli á einu í sambandi við þetta frv. , sem ég hafði nú ekki tekið eftir fyrr en rétt nýlega og er þá verkefni þeirrar nefndar sem fær þetta frv. til umfjöllunar, en það er að ég sé ekki að hugað sé að því hver réttur fósturliða er óski hann t.d. eftir að fara svo í Fósturskóla og læra til fóstru. Ég held að það væri ástæða til að huga aðeins að því hver sá réttur væri miðað við aðra undirbúningsmenntun og vildi biðja þá hv. þm. sem um málið kunna að fjalla að huga lítillega að því.

En það er hægt að halda langa ræðu þegar þessi mál ber á góma vegna þess að það er alveg ljóst að dagvistarmál eru bókstaflega í hreinni upplausn. Það er t.d. átakanlegt að sjá í svari hæstv. mentmrh. að einungis í fjórum kaupstöðum á landinu fyrirfinnast skóladagheimili, einungis í fjórum. Og það gefur auga leið að víðast hvar annars staðar á landinu vinna báðir foreldrar langan vinnudag utan heimilis. Og maður hlýtur að spyrja sjálfan sig: Hvar í ósköpunum eru börnin á meðan foreldrarnir eru að vinna?

Það eru margar aðrar upplýsingar sem koma fram hér í þessu svari hæstv. ráðherra. Fjöldi stórra kauptúna hefur alls engin dagheimilispláss. Og við vitum öll hvernig ástandið er hér í Reykjavík. Og nú hefur framlag ríkisins verið skorið niður um helming úr 40 millj. í 20, enda eru þegar farnar að berast til okkar þm. ályktanir frá hinum og þessum sveitarstjórnum, nú síðast í morgun ályktun frá bæjarstjórn Kópavogs, sem auðvitað óttast eins og þeir segja, með leyfi forseta, örstutt, að: „fari svo fram sem nú er lagt til er augljóst að þessari sjálfsögðu þjónustu muni ekki komið á í smæstu sveitarfélögunum og henni er skorinn mjög þröngur stakkur í hinum stærri“. Ég held að menn geri sér ekki alveg grein fyrir hvað verið er að gera með þessum ráðstöfunum. Það er ekki annað að sjá en að það eigi að gefa börn landsins upp á bátinn, senda þau út á guð og gaddinn, því að við lifum ekki lengur í þjóðfélagi þar sem amman er heima eða afinn eða einhver stórfjölskylda sem sér um börnin þegar foreldrarnir eru báðir úti að vinna. Og ég held að því fyrr sem hv. Alþingi gerir sér grein fyrir hversu alvarlegar afleiðingar þetta getur haft fyrir komandi kynslóðir, því betra.

Ég held því að sjálfsagt sé að reyna að koma til móts við það vandræðaástand, sem skapast hefur á dagvistarstofnunum og á eftir að versna, með því að gera lögin sveigjanlegri hvað varðar menntunarkröfur eða öllu heldur má orða það þannig, sem væri e.t.v. réttara, að bjóða upp á styttri menntun en þó menntun sem nýttist mjög vel inni á dagvistarheimilum frekar en að fela þau störf ófaglærðu fólki sem er e.t.v. gjörsamlega ókunnugt þessari starfsemi þangað til það kemur til starfa inni á dagvistarheimilunum. Ég held að það hljóti einungis að vera til bóta.

Ég vil því hvetja hv. þm. til að veita þessu frv. brautargengi í nefnd og gera það að lögum á þessu þingi því að ég held að við svo búið megi ekki standa nema menn vilji gefast upp fyrir þeirri þróun, sem Hagstofa Íslands spáir, að stórfelld fækkun barnsfæðinga muni eiga sér stað á næstu áratugum og aldurshlutfall landsmanna gjörbreytast og þar með þjóðfélagið allt. Að þessum málum verður að huga af fyllstu alvöru.

Umræðu frestað.