17.03.1987
Efri deild: 70. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4422 í B-deild Alþingistíðinda. (4192)

318. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Stefán Benediktsson:

Frú forseti. Í samræmi við orð mín við 2. umr. þá leyfi ég mér hér með að flytja skriflega brtt. við 3. umr. um það að við 1. gr. frv. bætist ný mgr. er orðist svo:

„Heimilt er félmrh. að höfðu samráði við ASÍ, VSÍ og VMSS að setja reglur um að skerða eða hafna lánveitingu úr Byggingasjóði ríkisins ef umsækjandi á íbúð sem talist getur fullnægjandi að dómi húsnæðismálastjórnar.

Ráðherra hefur borið það fyrir sig að það fólk sem hér um ræðir hafi það sterk ítök í þeim lífeyrissjóðum sem Húsnæðisstofnun þurfti að semja við að menn gætur verið að hætta á það að lífeyrissjóðirnir drægju kaup sín til baka ef fram á þetta yrði farið.

Þeir sem að þessum lífeyrissjóðum standa fullyrða að svo muni ekki vera. Af eðlilegum líffræðilegum ástæðum muni þetta fólk vera í þeim minni hluta í þessum lífeyrissjóðum að það fólk sem á eðlilegan rétt til aðgangs að lánsfé í það miklum meiri hluta af sömu líffræðilegu ástæðum að það sé trúlega auðfengið og auðvelt að semja við lífeyrissjóðina, sérstaklega með tilstyrk þeirra samtaka sem hér er getið í skammstöfunum og eðlilegt er að standi að þessu máli eins og þau stóðu að þessu máli öllu saman í upphafi.

Ég trúi því ekki að ekki sér hægt að koma því leiðar með jafnvolgu og loðnu heimildarákvæði og þessu að reynt verði að leiðrétta þetta mál. Því að menn skulu hafa það í huga að ef við ekki gerum það núna, þá valsa þessi lög eða framkvæmd þeirra algjörlega frjálst í eina átta mánuði þangað til þing semur saman aftur og það verður þá búið að dæla trúlega æðimiklu fé úr sjóðum Húsnæðisstofnunar, jafnvel meira fé en menn almennt gera sér grein fyrir, til fólks sem í raun og veru þarf ekkert á því að halda.