17.03.1987
Neðri deild: 67. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4427 í B-deild Alþingistíðinda. (4201)
197. mál, veiting prestakalla
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Hv. 1. þm. Vesturl., sem hér var að ljúka máli sínu, hæstv. fym, dómsmrh., sagði hér að menn ættu að hlusta á rödd kirkjunnar manna. Eru það ekki kirkjunnar menn, sóknarnefndarmenn, safnaðarfulltrúar sem í meiri hluta vildu viðhalda óbreyttu kerfi? Eru það ekki kirkjunnar menn? Ég vísa því alfarið frá að menn séu ekki að tala um kirkjunnar menn þegar þeir tala um starfsmenn kirkjunnar þó að þeir hafi ekki tekið vígslu. (GJG: Þú hefur verið í kirkjukór í 20 ár.) Já og aðrir hefðu betur átt að gera það líka. Það færi betur á því. Ég held nefnilega að menn hafi ekki hlustað á rödd kirkjunnar manna í þessum efnum.
Ég skal ekki fara mörgum orðum um þetta frv. úr því sem komið er. Ég sagði hér í gær, og talaði þá um menningarfrömuði og hv. 1. þm. Vesturl. ýjaði að því hér. Það sem ég átti við var auðvitað það að ég geri ráð fyrir því að þingflokkar hér á Alþingi kjósi sína hæfustu menn í mennta- og menningarmálum í menntmn. t.d. þessarar hv. deildar. Það var það sem ég átti við og þetta ber ekki að misskilja. En ég heyri að hv. þm. Friðjón Þórðarson er ekki á þessari skoðun. Hann telur þessa hina sömu enga slíka. Það var þetta sem ég átti við.
Með þessu frv. er í raun og veru verið að svipta svona u.þ.b. 130-150 þúsund einstaklinga atkvæðisrétti. Það er nú hvorki meira né minna. Í reynd hefði það líklega orðið. Finnst mönnum ekki skrýtið þó að þeir sem hafa lýðræðishugsjónina að leiðarljósi setji spurningarmerki við slíkt, hvort slíkt sé réttlætanlegt? Og hvort Alþingi Íslendinga eigi að vera í fararbroddi í ákvörðun slíkra hluta?
Hv. 1. landsk. þm., ekki vil ég eiga í illdeilum við þann ágæta þm. og engin ástæða til, en hún blandaði kennurum inn í þessa umræðu. Þó að ég beri fulla virðingu fyrir kennarastarfinu og meti það mikils, þá geri ég æðimikinn greinarmun á því hvort um er að ræða kennara sem slíkan eða hvort um er að ræða sálusorgara eða klerk, hvaða orðfæri sem menn nota. Ég geri miklu meiri kröfur til þess einstaklings sem ætlar sér að vera í fararbroddi í víngarði drottins hér á jörð heldur en þó að menn hafi lært til þess að vera almennir kennarar og er ég á engan hátt að kasta rýrð á þá. Á engan hátt. Ég hef bara þessa skoðun að ég met hinn einstaklinginn meira og ætlast til meira af honum, krefst meira af honum en öðrum.
Hér var læknum blandað inn í málið. Ekki ætti að standa á mér að tala um þá stétt manna og ekki skorast ég undan því. Þó að þeir séu fyllilega mjög mikilhæfir einstaklingar í embættisverkum, að vísu margir hverjir, ekki allir, þá met ég þó kennimanninn, ef við köllum hann svo, þá met ég hans hlutverk meira fyrir sóknarbörnin en t.d. þó að tiltekinn einstaklingur hafi fengið læknaleyfi. Þannig að ég ber þetta ekki saman.
Ég gæti vel tekið undir það með hv. 1. landsk. þm. að auðvitað eigum við að geta losað okkur við þessa einstaklinga eins og aðra. Við ættum að geta losað okkur við klerk ef okkur mislíkar við hann og við teljum hann ekki hæfan. Þeirri breytingu hefði ég verið fylgjandi í sambandi við þetta mál, að það yrði tiltekinn tími sem kosningin gilti, þá ættu bæði sóknarbörn og hinn tiltekni einstaklingur kost á því að taka ákvörðun aftur. (Gripið fram í.) Já, ég heyri það að hæstv. samgrh. er vel inni í umræðunni í þessum efnum þó að hann kjósi að láta ekkert í sér heyra í ræðustól.
Það má vel vera að það sé rétt hjá hv. 1. landsk. þm. að þetta sé ekkert sambærilegt við alþingiskosningar. Fyrir 10 árum síðan var sú stemmning hér á Alþingi að menn tóku ekki í mál slíka breytingu eins og hér er verið að tala um og leggja til. Fyrir 10 árum síðan (KSK: Menn þroskast sem betur fer.) tóku menn það ekki í mál. Ég tel að menn hafi heldur farið á hinn veginn í þessum efnum, að það sé vanþroski sem hér hafi ráðið ferðinni að því er þetta frv. varðar. Og það kæmi mér ekki á óvart þó slíkur vanþroski héldi áfram hér á hv. Alþingi, að menn færu að ýja að því að það mætti nú með einhverju móti undirbúa jarðveginn í þeim efnum að losa sig við kosningar á þingmönnum, finna einhverja tiltekna, ég orðaði það klíku, til þess að tilnefna þá þm. sem þeir vildu að sætu þar. Það kæmi mér ekki á óvart að slíkur hugsunarháttur gæti skotið rótum hér á Alþingi í kjölfar þess sem gerst hefur á undangengnum 10 árum.
Ég skal ekki, herra forseti, hafa öllu fleiri orð um þetta. Um þetta mætti segja miklu meira og hafa lengra mál. Ég fagna því að nú hefur þó svo skipast málum að ýmsir hér af þingdeildarmönnum, ég vona sem flestir og a.m.k. meiri hluti þingdeildarinnar, muni fallast á þá brtt. sem hér hefur nú verið lögð fram. Hún er þó viðleitni til þess að auðvelda sóknarbörnum að ná fram þeim eðlilega og sjálfsagða vilja að geta gengið til kosninga á presti.
Hv. 1. þm. Vesturl. ítrekaði það að hér væri ekki verið að afnema prestskosningar. Ég bið nú hv. 1. þm. Vesturl. að grennslast fyrir um það hvað dómprófastur sagði í morgunvöku í útvarpinu fyrir, held ég, þrem dögum síðan, þegar hans lokaorð voru þau: „Ég vona satt að segja að neðri deild Alþingis samþykki frv. um afnám prestskosninga.“ Ég bið hæstv. fyrrv. dómsmrh. að grennslast fyrir um það hvort þetta muni ekki vera rétt eftir haft. A.m.k. er sá skilningur þessa einstaklings (Gripið fram í.) og ég er sammála hans skilningi í þeim efnum. - Hvað segir hv. þm. Pálmi Jónsson? (PJ: Það gerir ekkert til.) Jæja, verst er nú að menn tali ekki svo hátt frammi að menn heyri það, þá væri hægt að svara. En ekki meira um þetta.
Ég segi eins og hæstv. menntmrh.: Hér er málum svo komið að ekki verður betur við ráðið en væntanlega sú tillaga sem nú liggur fyrir gerir ráð fyrir og í ljósi þess - það er engin ástæða fyrir hv. þm. Ellert B. Schram að vera órólegan. Hann hefur ekki eytt það löngum tíma hér á þingdeildarfundum í vetur, (Gripið fram í.) hann gæti vel setið. (Gripið fram í.) Hér ertu til þess að heyra í þm., ekki bara til að heyra í sjálfum þér. Af því færðu nóg.
Ég skal ekki lengja þennan ræðutíma, herra forseti. En í ljósi þess sem nú hefur gerst og í trausti þess að menn samþykki þá tillögu sem hér hefur verið lögð fram um að færa niður í 10% þar sem áður var gert ráð fyrir 25%, þá sýnist mér rökrétt að ég dragi þá brtt. sem ég gerði ráð fyrir til baka og geri það hér með.