17.03.1987
Neðri deild: 67. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4444 í B-deild Alþingistíðinda. (4221)
359. mál, stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka Íslands
Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 1017 frá 2. minni hl. fjh.- og viðskn. Það er svohljóðandi: Með því frv., sem hér er til umfjöllunar og stjórnarflokkarnir ætla nú að gera að lögum, innsigla þeir uppgjöf sína í skipulagi bankamála á Íslandi.
Á annað ár hefur Útvegsbankinn ekki uppfyllt ákvæði laga um eiginfjárstöðu. Allan þennan tíma, og þrátt fyrir lagaákvæði um skyldur ráðherra til að grípa í taumana, lét viðskrh. málið danka og hafðist ekki að. Afleiðingarnar voru vaxandi óvissa. Beið Útvegsbankinn af þessu skaða og íslenskt bankakerfi varð fyrir verulegum álitshnekki bæði innan lands og utan.
Digrar yfirlýsingar formanns Sjálfstfl. um að ekki skyldi fara króna úr ríkissjóði til þess að rétta hlut Útvegsbankans eru nú að engu orðnar. Þetta frv. felur nefnilega í sér að 1000 millj. verði varið í endurreisn bankans, þar af 800 millj. úr ríkissjóði og 200 millj. úr sjóðakerfinu. Lengra er varla hægt að ganga í því að lýsa eigin orð ómerk.
Verst er þó að með samþykkt þessa frv. hefur glatast tækifæri til þess að endurskipuleggja hið íslenska bankakerfi. Umræða undanfarinna ára og áratuga hefur þó leitt í Ijós annars vegar nauðsyn endurskipulagningarinnar og hins vegar víðtækan pólitískan vilja til þess að svo megi verða. Ríkisstjórnin bar hins vegar ekki gæfu til þess að nýta tækifærið nú. Þegar til stykkisins kom brast hana bæði þor og vilja. Því sitjum við uppi með óbreytt bankakerfi að samþykktu þessu frv. og það meira að segja svo að þrátt fyrir að hlutafjárstofnun um bankann verði að veruleika er ríkinu ætlað að veita honum alla vernd, réttindi og ábyrgð sem ríkisbanka fylgir áfram næstu tvö árin.
Ábyrgð Sjálfstfl. er mikil í þessu máli. Engum dylst að ábyrgð ráðamanna í Sjálfstfl. í Hafskipsmálinu var mikil en það var einmitt það sem var frumorsökin að ógöngum Útvegsbankans. Sjálfstfl. kvað líka afdráttarlaust upp úr um það að hann setti endurskipulagningu bankakerfisins á oddinn en hefur nú runnið frá öllu saman.
Alþfl. ályktaði um skipulag bankamála og málefni Útvegsbankans í desember s.l. Þar var gerð tillaga um víðtæka endurskipulagningu sem hefði bætt og styrkt rekstur bankakerfisins til frambúðar. Alþfl. ítrekar tillögur sínar við þetta tækifæri og mælir því gegn samþykkt á því frv. ríkisstjórnarinnar um málefni Útvegsbankans sem hér er til afgreiðslu.
Sú ályktun sem vitnað er til, ályktun þingflokks Alþfl. um bankamál, var svohljóðandi: „Þingflokkur Alþfl. telur að nú sé nauðsynlegt að gera róttækar breytingar á íslenska bankakerfinu sem miði að því að efla á Íslandi bankakerfi þar sem efnahagsleg og viðskiptaleg sjónarmið séu í fyrirrúmi. Rétt sé að hið opinbera stuðli að því að hér á landi starfi fáir allstórir viðskiptabankar er veitt geti atvinnulífi og einstaklingum alhliða þjónustu. Það er skoðun þingflokksins að markmið endurskipulagningar bankakerfisins skuli vera þríþætt:
1. Að eyða óvissu um framtíð þeirrar bankastarfsemi sem nú fer fram innan Útvegsbankans.
2. Að bæta skipulag og rekstur bankakerfisins frá sjónarmiði rekstrarhagkvæmni, samkeppni, þjónustu og stjórnar peningamála.
3. Að draga úr ábyrgð og afskiptum ríkisins af rekstri viðskiptabanka, fækka ríkisbönkum og draga skýrari linur hvað varðar stjórnarábyrgð í bönkum.
Við þá endurskipulagningu bankakerfisins sem nú er óhjákvæmileg telur þingflokkurinn eðlilegast að líta á ríkisbankana þrjá í einu lagi. Eignum þeirra og skuldum verði steypt saman að viðbættum sama eiginfjárstuðningi og Seðlabanki Íslands hefur lagt til að veittur verði ef Útvegsbanki, Iðnaðarbanki og Verslunarbanki sameinast. Þessari bankastarfsemi, þ.e. ríkisbönkunum þremur, verði þegar skipt í tvo ámóta stóra og fjárhagslega sterka banka þar sem Landsbankinn yrði uppistaðan í öðrum en Búnaðarbankinn og Útvegsbankinn í hinum. Öðrum þessara banka verði breytt í hlutafélagsbanka og allt hlutafé boðið til sölu. Hinn bankinn starfli áfram sem ríkisbanki.
Þingflokkurinn telur það rökrétta afleiðingu af slíkri endurskipulagningu bankakerfisins að Alþingi hætti að kjósa fulltrúa í bankaráð viðskiptabanka. Bankaráð ríkisbanka verði skipað af ráðherra bankamála út frá faglegum sjónanniðum. Ráðherra tilnefni einnig einn fulltrúa í bankaráð hvers hlutafjárbanka, hvort sem ríkið á hlut í bankanum eða ekki. Setja ber strangari ákvæði en nú gilda um viðskipti bankaráðsmanna og fyrirtækja í þeirra eigu við hlutaðeigandi banka. Ákveðið verði í lögum að meðal þeirra mála sem bankaráð skuli fjalla um og ákvarða eigi sjaldnar en árlega sé hámark lánveitinga til eins aðila í hlutfalli við eigið fé bankans.
Það er skoðun þingflokks Alþfl. að með þessu móti yrði stuðlað að eflingu bankakerfis þar sem ríkti nokkurt jafnræði með ríkisbönkum og hlutafjárbönkum og að slíkt kerfi gæti átt ríkan þátt í að efla efnahagslegar framfarir hér á landi, bæta bankaskipulagið til frambúðar og gæta almannahagsmuna í bráð og lengd.“
Þessi var ályktun þingflokksins frá því í desembermánuði s.l.
Það þarf ekki að orðlengja það, virðulegi forseti, að það hefur verið nokkra áratugi til umræðu að bankakerfið á Íslandi væri vanburða og nauðsyn bæri til þess að endurskipuleggja það. Það hafa komið fram og verið til umræðu ítrekaðar hugmyndir um sameiningu Útvegsbanka og Búnaðarbanka eins og hér hefur verið gert að umtalsefni áður úr þessum ræðustól. Sú umræða er sem sagt ekki ný af nálinni.
Það sem gerðist þegar Útvegsbankinn varð fyrir skakkafalli var það að það var vissulega greinilegt að nauðsynlegt væri að taka á skipulagi bankamálanna og að það væri kjörið tækifæri einmitt þá að ná fram þeirri endurskipulagningu sem löngum hafði verið talin nauðsynleg að gleggstu manna yfirsýn og víðtækur pólitískur stuðningur hefur verið við í þjóðfélaginu og hér líka innan þingsins þótt það hafi að vísu ekki náð fram að ganga vegna þess að neitunarvald minni hlutans í stóru flokkunum hefur drepið það mál eins og reyndar mörg fleiri hér á Alþingi.
Í þeirri bankamálanefnd sem Halldór Ásgrímsson hæstv. núv. sjútvrh. var formaður fyrir í upphafi og Þorsteinn Pálsson núv. fjmrh. var síðar formaður fyrir var skipulag bankamálanna til allítarlegrar umræðu. Það var niðurstaða nefndarinnar að það væri eðlilegt að setja rammalöggjöf um starfsemi viðskiptabanka annars vegar og starfsemi ríkisbanka hins vegar. Það náðist hins vegar ekki samstaða um sameiningu Útvegsbanka og Búnaðarbanka innan þessarar nefndar, eins og virtist þó nokkurt útlit fyrir um sinn. Minni hluti nefndarinnar eða tveir minni hlutar í nefndinni töldu að það væri Alþingis að taka á málinu. Þá minni hluta skipuðu Lúðvík Jósepsson annars vegar og sá sem hér talar hins vegar.
Það varð hins vegar að ráði hjá meiri hlutanum að fela viðskrh. að skipa nefnd til þess að skoða þessi sameiningarmál betur. Sú nefnd var skipuð undir forustu Gylfa Þ. Gíslasonar. Nefndin taldi að ýmsir kostir kæmu til álita, m.a. sá kostur að sameina Útvegsbanka og Búnaðarbanka, en enn fremur taldi hún koma til álita að sameina hina smærri banka og Útvegsbankann og stofna hlutafjárbanka upp úr því.
En allt þetta, allar þær tillögur sem upp komu sýna að það var raunverulegur vilji fulltrúa allra flokka að taka skipulagsmál bankanna til endurskoðunar. Fulltrúar allra flokka stóðu sem sagt að tillögum um skipulagsbreytingar á bankamálunum og því hefði maður haldið að þegar upp kom vandi eins og sá sem kom upp hjá Útvegsbankanum, þá yrði leitað samstöðu, þá yrði leitað eftir lausn, skipulagslegri lausn sem menn gætu sætt sig við. Og auðvitað hefði það gerst í öllum eðlilegum þjóðfélögum að menn hefðu leitað sem víðtækastrar samstöðu um einhverja lausn af þessu tagi. En það gerðist ekki í þessu máli. Það sem gerðist í þessu máli var það að stjórnarflokkarnir fleygðu því á milli sín á víxl á annað ár án þess að komast að nokkurri niðurstöðu og lentu síðan nauðlendingu í því lagafrv. sem hér er til umfjöllunar.
Sumir hafa lýst því svo að allir hafi sigrað í þessu máli vegna þess að menn hafi fengið sína ögnina hver, þ.e. menn hafi fengið að beita neitunarvaldi sínu á víxl um hvað þeir vildu ekki. Og þegar menn voru búnir að afneita hver öðrum út í hið óendanlega, þá hafi ekkert verið eftir. En ég held að það sé nær að segja að allir hafi tapað í þessu máli, ekki síst stjórnvöld á Íslandi sem létu á sér sannast að þau risu ekki undir því verkefni að taka á skipulagi bankamálanna.
Ég gat þess hér í upphafi að það hefði löngum verið stefnumið Alþfl. að það ætti að sameina Útvegsbankann og Búnaðarbankann og það hefur komið fram við margvísleg tækifæri. Sú tillaga sem þingflokkur Alþfl. samþykkti í des. s.l. er af sama toga. Hún er í grundvallaratriðum af þeim toga að þessir tveir bankar verði sameinaðir, en því til viðbótar er gerð tillaga um að upp úr þeim banka, þeim sameinaða banka, yrði stofnaður hlutafjárbanki, öflugur hlutafjárbanki sem stæði þá nokkurn veginn á jafnfætisgrundvelli við Landsbankann sem héldi áfram að vera ríkisbanki. Eftir ítarlega umfjöllun um þetta mál töldum við í Alþfl. að nú væri tímabært að stíga það skref að koma upp öflugum hlutafjárbanka sem gæti veitt ríkisbanka aðhald og þessi tvö eignarform gætu fengið að spreyta sig.
Í annan stað vil ég vegna þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram um hugsanlega erlenda eignaraðild geta þess að við í Alþfl. erum alls ekki hræddir við það að hleypa að erlendri eignaraðild í einhverjum mæli í bankakerfinu. Við teljum að að því kunni að vera margvíslegur ávinningur og að það geti verið betra fyrir íslenskt efnahagslíf að hleypa erlendu fjármagni þannig inn í íslenskt efnahagslíf heldur en halda áfram að hlaða upp erlendum skuldum eins og menn hafa gert á undanförnum árum þannig að ógnvekjandi er. Ég mótmæli því þess vegna að það geti talist einhvers konar frjálshyggjuofstæki að fækka ríkisbönkunum, að koma upp hlutafélagsbanka, svo framarlega sem hann er öflugur. Það er liður í því að endurskipuleggja bankakerfið og vísa ég þá til þeirrar tillögu sem við Alþýðuflokksmenn höfum flutt.
Ég held að það sé líka mikill misskilningur að halda því fram eins og sumir gera, m.a. hv. síðasti ræðumaður, Svavar Gestsson, að bankar sem græða séu ónýtir fyrir íslenskt efnahagslíf. Hann lýsti því einhvern veginn á þá lund að þeir mundu þá bara lána til innflutnings á svissnesku konfekti en ekki lána út á saltfisk og skreið. Ég held að þetta sé grundvallarmisskilningur. Sannleikurinn er sá að sjávarútvegurinn er ekki bara undirstaða íslensks efnahagslífs, heldur líka uppspretta hins íslenska auðs, uppspretta auðs á Íslandi. Ég held að menn hafi misstigið sig oft á tíðum herfilega með því að leggja sérstakar skyldur á bankakerfið varðandi sjávarútveginn vegna þess að menn hafa þá leyft sér í leiðinni að þrautpína sjávarútveginn þannig að hann var ekki rekinn með eðlilegum hætti. Ég held að þessi misnotkun, þessi þrautpíning á sjávarútveginum og misnotkun á bankakerfinu, hafi ekki verið til góðs og að menn eigi að koma þessu á heilbrigðari grundvöll, og að það sé langtum affarasælla fyrir sjávarútveginn heldur en að búa við það ofríki sem hefur átt sér stað í þessum efnum.
Okkar skoðun er sú í Alþfl. að menn hefðu getað komið upp sterkum bönkum ef okkar tillögum hefði verið fylgt. Landsbankinn hefði verið sterkur ríkis banki. Sá sameinaði banki, sem hefði orðið úr Útvegsbanka og Búnaðarbanka, hefði getað orðið sterkur banki og þeir hefðu átt að geta keppt á jafnréttisgrundvelli. Það hefði getað orðið að því nokkur ferskleiki í íslensku efnahagslífi að ná fram uppstokkun af þessu tagi.
Hitt vil ég segja, virðulegi forseti, að það hefur gætt mjög mikillar tilhneigingar í umræðu um bankamál að menn segðu sem svo: Hér eru margir mjög litlir einkabankar. Eitt meginverkefnið er að sameina þessa einkabanka. Ég held að menn séu ekki á réttri leið þegar menn leggja ofurkapp á það. Við höfum ákveðið að setja löggjöf um viðskiptabanka sem gerir ráð fyrir því að menn hafi frelsi til að stofna viðskiptabanka að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og ég held að það sé rétt stefna að þannig sé haldið á málum, nefnilega að við séum með rammalöggjöf en ekki það fyrirkomulag sem áður var um að sérstök lög þyrfti frá Alþingi hverju sinni til þess að stofna banka. En um leið og menn hafa sett sér að í þessum efnum ríki það frjálslyndi sem nú er upp tekið, og ég tel eðlilegt, þá geta menn ekki verið að agnúast út í það að til skuli vera einhverjir litlir bankar. Meðan við búum við það frjálslyndi þá hlýtur það ævinlega að geta komið upp að til séu misstórir einkabankar og ég held að ástæðulaust sé að agnúast út í það. Ef einhverjir aðilar sjá sér hag í því að vera að reka einhverja litla banka, sem vitanlega geta ekki staðið undir nema takmörkuðum verkefnum og þeir gera það á eigin ábyrgð, þá er svo sem ekkert við því að segja og ríkið getur ekki verið að agnúast út í það. En á hinn bóginn á ríkið að stuðla að því, sérstaklega með þá sterku stöðu sem það hefur sem eignaraðili í bankakerfinu, að til séu öflugir bankar og þá með þeim hætti að það sé ekki um að ræða einokun eins banka heldur eðlilega samkeppni milli banka og það var einmitt það sem fyrir okkur vakti og fyrir okkur vakir í Alþfl. með þeirri stefnumörkun sem við höfum haft uppi.
Eins og komið hefur fram af máli mínu hér erum við í Alþfl. mjög ósáttir með þá lendingu sem hefur orðið hjá ríkisstjórninni í þessu máli, þá nauðlendingu sem menn hafa fundið sér og sem marglýst hefur verið yfir af hálfu þeirra sem gerst þekkja til og m.a. af hálfu bankastjórnar Seðlabankans að sé versta lausn sem menn gátu valið. Við erum þess vegna mjög ósáttir með þessa lausn og sjáum ekki að það sé til farsældar að þessi leið verði farin. Þess vegna, eins og segir í nál. því sem ég mæli hér fyrir, ítrekum við okkar fyrri tillögur og mælum gegn samþykkt þess frv. sem hér er til umfjöllunar.