17.03.1987
Neðri deild: 67. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4451 í B-deild Alþingistíðinda. (4226)
342. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Eins og kom fram í ræðu hv. seinasta ræðumanns hafa hér borist nýir útreikningar sem að ýmsu leyti eru fróðlegir. Séu þeir skoðaðir, þá staðfestist af þeim það, sem menn höfðu áður haft grun um, að verið sé að flytja skattbyrði frekar af einhleypum og á hjón með þeim tillögum sem nú er gert ráð fyrir að gildi taki um staðgreiðslu skatta. Reyndar hafði komið fram í öðrum gögnum áður frá Þjóðhagsstofnun að það væri greinileg tilhneiging til þess í frv. eins og það liggur fyrir og það virðist enn staðfestast af þessu. Ég tel náttúrlega að sú tillaga sem hér hefur náðst samstaða um að flytja varðandi barnabæturnar muni verða heldur til bóta og taka af agnúa sem augljós var og stakk í augun.
Það er annað sem líka kemur fram í þessum töflum sem er nokkuð athyglisvert og það er hvernig skiptingin breytist milli tekjuskatts og útsvars í heildarskattbyrði. Þannig kemur fram að þegar einhleypir eru á mörkum þess að vera með óbreyttan skatt eða örlitla lækkun á heildarskatti, þ.e. á tekjubilinu 500-1700 þús., þá gerist það með þeim sérstæða hætti að það verður mjög veruleg lækkun á útsvarinu en hins vegar hækkun á tekjuskattinum til ríkisins, þannig að öll lækkunin er tekin út útsvarsmegin á meðan hækkun á sér stað á tekjuskatti til ríkisins, þ.e. á þeim sköttum öllum sem verið er að afnema og renna til ríkisins.
Sams konar fyrirbæri kemur reyndar fyrir að því er varðar einstætt foreldri með tvö börn á ákveðnu tekjubili, þá er öll lækkunin í útsvarinu en hins vegar breyting á öðrum sköttum, þ.e. þeim sem til ríkisins renna, er til hækkunar á nokkru bili, á hinu lægra tekjubili frá 700 000-1 000 000 kr. ef ég miða við tekjurnar 1986. Og almest slær þetta í augun ef maður lítur á barnlaus hjón sem bæði afla tekna og eru í töflu 3, þá er það svo að á öllu tekjubilinu yfir 1100 þús. kr. er í rauninni um mjög verulega hækkun á tekjuskattinum til ríkisins að ræða sem jafnast út með mjög mikilli lækkun á útsvarinu. Þetta eru nú gleggstu dæmin.
Þetta kemur reyndar fram líka á töflu 5 á ákveðnu tekjubili sem er nákvæmlega sams konar fyrirbæri en ekki eins áberandi og í hinu fyrra, þ.e. á tekjubilinu 1 millj. til 1800-1900 þús. kr., þá kemur þetta sama fyrirbæri fyrir, sem sagt hækkun á tekjuskatti sem hins vegar er vegin upp með miklu meiri lækkun á útsvarinu. Á töflu 6 er aftur mjög sláandi dæmi um þetta sama sem gildir þá fyrir allt tekjubilið ofan við 1100 þús. kr. þar sem þetta fyrirbæri kemur aftur og sama kemur reyndar fyrir í töflu 7, sem er þó ekki samanburðarhæf að ég tel við þær töflur aðrar sem ég var að vitna til hér áðan.
Mér þóttu þetta athyglisverðar upplýsingar og ástæða er til þess að skoða þetta nánar. Það gæti vakið kannske einhverjar spurningar sem menn vildu gjarnan fá svör við. Ég er þakklátur fyrir það að þessi gögn skyldu koma fram þannig að það lægi þá ljóst fyrir hvernig uppbyggingin er. Ég tel að betur komi fram í þessum gögnum en áður þessi skipti milli tekjuskatts og útsvars og hvernig útsvarslækkun er notuð til þess að mæta tekjuskattshækkun í mjög mörgum tilvikum.
Eins og komið hefur fram hér í umræðunni er meiningin að þetta fari til milliþinganefndar og það er alveg augljóst af þeirri umfjöllun og þeirri umræðu sem hefur átt sér stað og þeim spurningum sem vakna við að skoða gögn eins og þau sem hér hefur verið dreift og ýmis þau önnur atriði sem hafa verið til umfjöllunar hér í þinginu og ekki síður í nefndunum, að það er nauðsynlegt að þetta mál verði skoðað miklu nánar en ráðrúm hefur gefist til.
Eins og komið hefur fram hjá mér hér áður tel ég mjög miður að menn skyldu ekki geta gengið betur frá þessu frv. en raun ber vitni. Ég var bjartsýnn og gerði ráð fyrir því að menn mundu geta það með hliðsjón af því hversu langur meðgöngutíminn hefur í rauninni verið með staðgreiðslukerfinu, eða hátt í 40 ár eins og kunnugt er og ég rakti hér í ræðu minni við 2. umr. En við því er ekki að gera héðan af. En milliþinganefndin og næsta þing fær greinilega ærið verkefni.