15.10.1986
Efri deild: 3. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

24. mál, lánsfjárlög 1987

Stefán Benediktsson:

Frú forseti. Ég lofa að verða ekki langorður í þessari umræðu. Ég get það einfaldlega ekki vegna þess að þetta mál, sem hér liggur fyrir, kom svo seint úr prentun á mánudag að maður hefur ekki haft nema rúman sólarhring til að kynna sér það og skoða ásamt með fjárlagafrv. Mun ég því aðeins ræða það á mjög yfirborðslegan hátt þar sem alla nánari skoðun vantar.

Eftir lestur frv. og samanburð við fjárlögin get ég ekki gefið þessum tveim frv. aðra einkunn en þá að þau einkennist enn þá af því mikla kerfisdekri sem þessi ríkisstjórn er nú orðin langfræg af. Ekkert er henni meira þvert um geð en að losa um tök á íslensku athafna- og efnahagslífi og öllu skal þar stjórnað úr einum stað. Ég bendi á að þrátt fyrir margendurtekin og ítrekuð loforð manna um að lækka eða draga úr eða jafnvel stöðva algerlega erlendar lántökur umfram það sem þörf krefur vegna afborgana er hér enn eina ferðina ekki staðið við það loforð og það gerist á sama tíma og á fjárlögum er hækkaður allur kostnaður við yfirstjórn ráðuneytanna svo tugum prósenta skiptir. Þannig virðist ekki vera á dagskrá hjá þessari ríkisstjórn að reyna að stjórna með ráðdeild og sparnaði til að tryggja fjárhagslegt öryggi sem nú væri virkilega svigrúm til að tryggja vegna þess góðæris sem við búum við. Íslendingar hafa þá sérstöðu með sína atvinnuvegi, sem skila mjög misjafnri afkomu ár frá ári, að verða að halda ríkisútgjöldum sínum í eins miklu lágmarki og mögulegt er og nýta það fjármagn, sem þar er tekið, af eins mikilli hagsýni og mögulegt er til að geta tekið á móti þeim sveiflum sem verða vegna mismunandi árferðis í atvinnulífi okkar. En þessi ríkisstjórn, sem var kosin að því er hún heldur fram sjálf einmitt til að stjórna í þessum vanda, hefur ár frá ári síaukið það sem í einu orði er hægt að kalla kerfisdekur.

Ég vildi varpa einni spurningu til hæstv. fjmrh. Það er gert ráð fyrir því að veita ríkisábyrgðir fyrir lántökum ýmissa aðila, eins og það er kallað í athugasemdum við lagafrv., að upphæð 3,14 milljarðar. Þetta eru lántökur aðila sem taldir eru upp á bls. 8 í frv. Ég vildi beina þeirri spurningu til fjmrh. hvort menn hafi skoðað annars vegar hver vöxtur þessara ríkisábyrgða hefur verið á milli ára, og þá á ég ekki eingöngu við seinasta ár heldur hver þróunin hefur verið í þessum málum, og hins vegar hver árangur þessara ríkisábyrgða er, þ.e. hvað hafa margar af þessum ríkisábyrgðum lent á herðum ríkissjóðs endanlega og hverju hafa þær skilað, því að þetta eru yfirleitt lántökur til verkefna sem ætlað er að skila einhverju ákveðnu verki. Það er þá spurt hér um arðbærni þessara verkefna.

Sama spurning á við um sölu spariskírteina. Það kemur í ljós að við sölu spariskírteina að upphæð 1,5 milljarðar skila sér í ríkissjóð til fjáröflunar 0,5 milljarðar. Menn hljóta að hafa gert sér einhverja grein fyrir því til hverra verka þessum fjármunum er varið og þá aftur hver arðbærni þessara fjármuna er því að við vitum að hér er ekki um hálfrar millj. kr. tekjur að ræða heldur hálfrar millj. kr. lán sem þarf að skila arði til að standa undir kostnaði og vöxtum.

Það undarlega fyrirbæri sem fram kemur í 28. gr. frv., þar sem enn eina ferðina er um skerðingu að ræða á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, er greinilega ekkert annað en ákveðið bragð til að neyða sveitarfélög í samningum, sem gert er ráð fyrir að fram fari á þessu hausti áður en frv. verður að lögum, til þess að samþykkja að taka á sig ákveðinn hluta af kostnaði vegna barna á grunnskólastigi, og þar á ég við skólaaksturinn sem mikið hefur verið til umræðu núna, og síðan ætla menn að tengja það því að hafa þar með að einhverju leyti staðið við loforð um að færa verkefni frá ríki til sveitarfélaga. En sú verkefnatilfærsla gerist ekki með þeim hætti að ríkið ákveði áframhaldandi hvernig hverri einustu krónu er varið með því einfaldlega að segja: Ég læt þig hafa þetta verkefni og þessa peninga. - Þá hefur í raun og veru ekki orðið nein breyting á hvað sjálfstæði sveitarfélaganna viðkemur.

Ég vil þó að endingu þakka hæstv. fjmrh. fyrir að leggja þessi tvö frumvörp fram samtímis. Það er nógu vitlaust að þurfa að fjalla um þessa hluti í tveimur lagabálkum og á tveimur stöðum, eins og enn þann dag í dag er gert. Auðvitað eiga þessir hlutir heima saman og á einum stað, bæði fjárlög og lánsfjárlög, eins og kom glögglega fram í máli fjmrh. sem kom ekki inn á marga þætti í þessu frv. einfaldlega vegna þess að þeir verða ræddir á allt öðrum vettvangi, þ.e. við umræðuna um fjárlög. Ég ætla þar af leiðandi ekki að hafa þessi orð mín fleiri, en mun að sjálfsögðu sem nefndarmaður í þeirri nefnd sem um þetta mál fjallar áskilja mér allan rétt til að gera athugasemdir við það.