18.03.1987
Sameinað þing: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4474 í B-deild Alþingistíðinda. (4302)
66. mál, könnun á valdi í íslensku þjóðfélagi
Frsm. allshn. (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 861 um till. til þál. um könnun á valdi í íslensku þjóðfélagi. Allshn. Sþ. ræddi málið á nokkrum fundum sínum og fékk á fund sinn Hallgrím Snorrason hagstofustjóra, Jónatan Þórmundsson prófessor, forseta lagadeildar Háskólans, Þóri Einarsson prófessor. forseta viðskiptadeildar, og Þórólf Þórlindsson prófessor, forseta félagsvísindadeildar. Þeir voru allir sammála um að þetta væri áhugavert verkefni sem rétt væri að fela Háskóla Íslands.
Í umræðum nefndarmanna um þessa till. komu fram ýmsar hugmyndir og var jafnvel hugleitt að flytja brtt. við þessa till., en horfið frá því. Þess í stað var ákveðið að láta þess getið við framsögu að mjög áhugavert mundi vera og ástæða væri til að leggja sérstaka áherslu á að kanna hvernig störfum kynja er skipt með tilliti til valdastöðu þeirra innan þeirra stofnana og samtaka sem könnuð verða. Einnig að sérstök áhersla yrði lögð á að kanna vægi svonefnds þekkingarvalds í íslensku þjóðfélagi, þ.e. hver staða manna og áhrif í valdakerfinu eru með tilliti til menntunar þeirra. Sömuleiðis hver staða manna og áhrif eru með tilliti til aldurs þeirra og þátttöku í ákveðnum atvinnu- og starfsgreinum.
Nefndin varð sammála um að mæla með því að tillagan yrði samþykkt með breytingu sem finna má á þskj. 862. Undir þetta nál. rituðu Ólafur Þ. Þórðarson formaður, Stefán Benediktsson fundaskrifari, Birgir Ísl. Gunnarsson, Pétur Sigurðsson, Eggert Haukdal, Haraldur Ólafsson og Guðrún Agnarsdóttir. En brtt. er svohljóðandi:
„Síðari mgr. tillögunnar orðist svo:
Könnun þessari verði hraðað og niðurstöður hennar kynntar á Alþingi.“