18.03.1987
Sameinað þing: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4482 í B-deild Alþingistíðinda. (4319)
305. mál, Þjóðhagsstofnun
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég var ekki viðstaddur, var fjarverandi þegar umræða fór fram um þessa till. upphaflega. Ég vil láta það koma fram mjög eindregið sem mína skoðun að ég tel að það eigi að leggja Þjóðhagsstofnun niður og fela verkefni hennar einhverjum öðrum aðilum. (Gripið fram í: Af hverju?) Fyrir því eru mörg rök og meginrökin eru þau að mínu mati að ég tel að Þjóðhagsstofnun hafi ekki dugað til þess hvorki að veita ráðgjöf ríkisstjórnum né heldur, sem er mikið alvarlegara, hefur Þjóðhagsstofnun veitt Alþingi ráðgjöf. Í raun og veru hefur þetta verið þannig að allar upplýsingar sem fram hafa komið frá Þjóðhagsstofnun hafa verið sendar til Alþingis í gegnum ráðuneyti. Alþingi hefur ekki með sjálfstæðum hætti átt þann aðgang að þessari stofnun sem ég hefði talið nauðsynlegan og óhjákvæmilegan til að vinna Alþingis að efnahagsmálum sé vönduð og traust.
Ég er þeirrar skoðunar að heppilegast væri í þessu efni hins vegar að skoða þessi mál í heild, bæði að því er varðar stöðu Þjóðhagsstofnunar og Seðlabankans. Við skulum gera okkur grein fyrir því að á undanförnum árum eða í kringum 1960, þegar lögin um Seðlabankann voru sett, var sett inn ákvæði í seðlabankalögin um að hann ætti ásamt efnahagsstofnun að veita ráðgjöf í efnahagsmálum. Síðan hafa þessir hlutir verið að þróast með alveg ákveðnum hætti og þess vegna er eðlilegt að þeir séu teknir upp til skoðunar að nýju í heild. Ég er þeirrar skoðunar að affarasælast væri að byrja á því að endurskoða stjórnarráðslögin og setja þar inn ákvæði um efnahagsmálaráðuneyti, ráðuneyti sem fer með yfirstjórn efnahagsmála í heild. Ég held jafnframt að sá hluti af verkefnum Þjóðhagsstofnunar sem snertir beina upplýsingasöfnun og staðreyndaskráningu sé vel geymdur hjá Hagstofu Íslands. Ég tel jafnframt að Alþingi eigi að hafa aðgang að efnahagsráðgjöf. Ég bendi á að Alþingi hefur þegar tekið ákvörðun um að Ríkisendurskoðunin heyri undir Alþingi. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að Alþingi og einstakir þm. eigi aðgang að efnahagsráðgjöf og efnahagsupplýsingum á hverjum tíma. Ég held þess vegna að Þjóðhagsstofnun eigi eins og aðrar stofnanir að vera í stöðugri endurskoðun og endurmati og ég tel þess vegna að sú till. sem hér er flutt og er til meðferðar sé fyllilega tímabær.
Ég tel hins vegar ekki að menn eigi að fara að kenna af þessu tilefni embættismönnum um pólitískar ákvarðanir. Pólitíkusar taka pólitískar ákvarðanir. Embættismenn veita ráð eða afla gagna og senda inn upplýsingar. Ég tel heldur ekki að það að þessi till. er hér á dagskrá komi forstöðumanni stofnunarinnar við. Það kemur málinu ekki við að mínu mati hvort sem það er Jón Sigurðsson, Þórður Friðjónsson, Ólafur Davíðsson eða einhver annar. Það skiptir engu máli í þessu sambandi.
Ég tel að hér hafi þörfu máli verið hreyft vegna þess að það eigi að endurskoða allt þetta kerfi efnahagsyfirstjórnar af hálfu íslenska ríkisins.