04.11.1986
Sameinað þing: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 543 í B-deild Alþingistíðinda. (432)

105. mál, endurmat á störfum kennara

Fyrirspyrjandi (María Jóhanna Lárusdóttir):

Herra forseti. Undanfarin 15 ár hef ég haft það starf með höndum að kenna unglingum í gagnfræða og framhaldsskóla. Mér er það ljóst sem kennara og foreldri að menntakerfi okkar á við margvíslegan vanda að etja sem þarfnast brýnna aðgerða af hálfu þeirra er fara með stjórn menntamála hér á landi. Það eru því margar spurningar sem brenna á vörum mínum til hæstv. menntmrh. Spurningar eins og hvenær megi vænta samfellds skóladags, einsetins skóla, aukinnar fjárveitingar til sérkennslu og myndarlegs átaks í bókasafnsmálum Háskóla Íslands svo að eitthvað sé nefnt af þeim fjölmörgu málum er mér liggja á hjarta.

Mér er þó ljóst að þótt hæstv. menntmrh. hefði á reiðum höndum svör og úrlausnir við öllum þessum spurningum, þótt allur sá vandi er ég hef drepið á yrði leystur strax á morgun væri það til lítils ef engir væru kennararnir til að kenna í menntastofnunum þjóðarinnar.

Hvort sem um er að ræða kennslu í grunnskóla eða háskóla og allra skólastiga þar á milli hvílir það fyrst og fremst á hæfni og menntun viðkomandi kennara hvernig til tekst. Flótti menntaðra kennara úr skólum landsins er staðreynd sem allir þekkja er á annað borð láta sig skólamál einhverju varða. Sá flótti er einkum til kominn vegna kjara kennara, óeðlilegs vinnutíma þeirra, bágrar starfsaðstöðu og lélegra launa. Það er því brýnt að störf kennara verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. Því leyfi ég mér að bera fram fsp. til hæstv. menntmrh. á þskj. 108, svohljóðandi:

„Hyggst menntmrh. beita sér fyrir endurmati á störfum kennara í samræmi við niðurstöðu nefndar er Ragnhildur Helgadóttir fyrrverandi menntmrh. skipaði 12. des. 1984 og skilaði áliti í febrúar 1985?"

Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Með bréfi dags. 12. des. 1984 skipaði þáverandi menntmrh. Ragnhildur Helgadóttir nefnd til að vinna að endurmati á störfum kennara. Nefndin var skipuð þrem fulltrúum frá Bandalagi kennarafélaga og þremur fulltrúum frá menntmrn. Nefndin hóf störf þegar og skilaði áliti sínu þann 28. febrúar 1985 eins og til var ætlast.

Eins og flestum mun kunnugt komst nefndin að þeirri niðurstöðu að kennarastarfið hefði breyst mikið á undanförnum einum og hálfum áratug, kröfur til kennara aukist og starf þeirra orðið fjölþættara. Í niðurstöðum nefndarinnar segir m.a. að hún dragi mjög í efa að mat frá 1970 á störfum kennara hafi verið réttmætt. Veigamiklir þættir í kennarastarfinu hafi ljóslega verið vanmetnir, þar á meðal sjálfstæði og frumkvæði, ábyrgð og áreynsla. Enn fremur segir í niðurstöðum að nefndin telji að þær breytingar sem orðið hafi á kennarastarfinu frá 1970 hafi verið mun meiri en hækkun á launum kennara gefi til kynna og virðist breytingarnar á starfinu því ekki hafa skilað sér sérstaklega í launum kennara.

Í ræðu hæstv. fjmrh. Þorsteins Pálssonar, er hann mælti fyrir frv. til fjárlaga í s.l. viku, kom fram að á þessu ári hafa laun kennara hækkað meira en laun opinberra starfsmanna innan BSRB og BHMR. Ætla má að umrædd endurmatsskýrsla hafi greitt fyrir í þeim efnum. En með leyfi forseta vil ég vitna til ræðu hæstv. fjmrh. þar sem hann segir: „Frá janúar til október á þessu ári hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um rétt 7%. Á sama tíma hafa meðallaun ríkisstarfsmanna í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja hækkað um 18,6%, um 21,8% hjá háskólamönnum og um 28% hjá kennurum í Bandalagi kennarafélaga.“ Svo mörg eru þau orð. Það er álit þeirra sem til þekkja að endurmatsnefndin hafi skilað verki sínu vel og því ekki ástæða til að láta fara fram frekara mat á störfum kennara að sinni.

Fyrirspyrjandi (María Jóhanna Lárusdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. svör hans við fsp. minni.

Það er rétt að laun kennara hafa hækkað umfram aðra opinbera starfsmenn um einhver prósentustig. Launin eru samt enn smánarlega lág og má rekja kennaraflóttann að miklu leyti til þeirra. Byrjunarlaun grunnskólakennara, er hefur þriggja ára háskólamenntun að baki, eru nú rúm 31 þúsund. Eftir 15 ára starfsreynslu eru þau rúm 42 þúsund og geta ekki hækkað úr því. Eru því laun kennara, er hafa kennt 15 ár eða lengur, tæpur helmingur launa hv. þm.

Ég beini því til hæstv. menntmrh. að dustað verði rykið af skýrslu endurmatsnefndarinnar og niðurstöður hennar verði lagðar til grundvallar á nýju og raunhæfu mati á störfum kennara áður en óbætanlegt tjón hlýst af í menntamálum þjóðarinnar.

Það er í rauninni hlálegt að stjórnvöld, er láta í veðri vaka að þau hyggist flytja út hugvit og þekkingu landsmanna, skuli búa þannig að kennarastéttinni að hæfir og vel menntaðir kennarar verða að sjá sér farborða með öðrum hætti en kennslu og að menntun barnanna okkar sé að verða þjóðarhneisa eins og kemur fram í útdrætti úr skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar um ástand menntamála hér á landi og skýrt var frá í Ríkisútvarpinu hér á dögunum.