18.03.1987
Sameinað þing: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4491 í B-deild Alþingistíðinda. (4339)

Verkfall framhaldsskólakennara

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Það er umhugsunarefni fyrir okkur sem sitjum á hinu háa Alþingi að það skuli vera svo í íslensku þjóðfélagi, þar sem við eigum að móta þjóðfélagsgerðina, að það eru umönnunar-, uppeldis- og fræðslustéttirnar sem eru nú láglaunahópar og sem standa nú í kjaradeilum til að freista þess að bæta kjör sín, kjaradeilum sem hafa mjög alvarlegar afleiðingar. Við skulum gæta að því að ef svo heldur sem horfir grotnar menntakerfið niður ef ekki verður að gert og ekki verður breyting á stefnu stjórnvalda í þessum efnum, þeirri launastefnu sem stjórnvöld fylgja. Sú deila, sem nú er hér til umræðu fyrst og fremst og er uppi nú, varðar ekki fyrst og fremst kennara. Hún varðar nemendur. Í þessu þjóðfélagi hefur ástandið verið þannig undanfarin ár að nemendur eru fórnardýr sífelldra styrjalda og kjaradeilna og þetta er gjörsamlega óviðunandi ástand. Hér þarf grundvallarstefnubreytingu og viðhorfsbreytingu hjá hæstv. ríkisstjórn.

Ég beini þeirri spurningu til hæstv. menntmrh.: Hvaða ráðstafanir hyggst hann gera til að bæta nemendum upp það tap sem þeir hafa þegar orðið fyrir í þessari deilu, þeir nemendur sem eiga að ganga undir próf í vor og standa skil á námsefni? Hvaða ráðstafanir hefur menntmrn. í hyggju í þeim efnum? Ég vænti svars frá hæstv. menntmrh. En ég ítreka að hér þarf að koma til hugarfarsbreyting hjá stjórnvöldum að því er varðar launastefnu gagnvart þeim hópum sem ég áður nefndi og ég beini þeim eindregnu tilmælum til hæstv. fjmrh. að hann leiti allra leiða í fullri sanngirni til að leysa þann hnút sem virðist hafa hlaupið á snærið eftir að samningaviðræður sigldu í strand. Ég beini þeim eindregnu tilmælum til fjmrh. að hann hafi frumkvæði um að viðræður hefjist að nýju og aðilar byrji aftur að tala saman.