18.03.1987
Sameinað þing: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4491 í B-deild Alþingistíðinda. (4340)
Verkfall framhaldsskólakennara
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Austurl. fyrir að taka upp þessa umræðu hér. Það er orðið ljóst og reyndar löngu ljóst að láglaunastefna hæstv. ríkisstjórnar er að eyðileggja í stórum stíl starfsemi á sviði opinberrar þjónustu. Mér liggur við að segja að þessi „harðlífisstefna“ hæstv. ríkisstjórnar í kjaramálum opinberra starfsmanna sé eitt mesta skemmdarverk og tilræði við velferðarkerfi landsmanna sem við lengi höfum litið augum. Ástandið jaðrar við að vera neyðarástand á heilum sviðum hinnar opinberu þjónustu, eins og í menntamálunum og heilsugæslunni.
Ég lýsi alveg sérstökum áhyggjum mínum sem meðlimur í stjórnarnefnd ríkisspítala, kosinn þar inn af virðulegu Alþingi, yfir því ástandi sem þar er að skapast vegna kjaradeilna háskólamenntaðs starfsfólks á þeirri stofnun. Það er nú tekið til við að flytja sjúkt fólk heim af deildum spítalanna án tillits til aðstæðna sem þar eru til að taka við þeim. Það ætti að færa mönnum heim sanninn um hversu alvarlegt ástandið er. Það liggur einnig fyrir, eftir kannanir sem við höfum látið gera á því í stjórnarnefnd ríkisspítala, að þar flýr nú háskólamenntað og langskólamenntað sérhæft starfsfólk úr sínum starfsstéttum út í önnur störf í þjóðfélaginu til þess eins að afla sér meiri tekna. Það er eitthvað meira en lítið að þegar ástandið er þannig að fólk sem lagt hefur á sig margra ára háskólanám og erfiða starfsþjálfun flýr úr sínu starfi nauðugt út í önnur störf eingöngu launanna vegna.
Ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst hæstv. ríkisstjórn taka á þessum málum af furðulegu alvöruleysi. Hér þarf að verða grundvallarbreyting á, eins og einhver hv. fyrri ræðumaður komst að orði, þetta getur ekki gengið svona til. Það er staðreynd, sem menn verða að horfast í augu við, að sérhæft starfsfólk á sviði menntunar og heilsugæslu og ýmissa umönnunarstarfa getur gengið í betur launuð störf sums staðar úti á hinum almenna vinnumarkaði. Þann launamun verður með einhverju móti að jafna þannig að því fólki, sem lagt hefur á sig nám og þjálfað sig upp til að sinna sérhæfðum störfum, sé launanna vegna gert mögulegt að gera það áfram og það hafi þá sambærileg og sanngjörn kjör til að sinna áfram sínum störfum.