18.03.1987
Sameinað þing: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4494 í B-deild Alþingistíðinda. (4343)
Verkfall framhaldsskólakennara
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Þess er enginn kostur, eins og hv. 1. þm. Norðurl. e. gat um áðan, að gera þessu máli nein almennileg skil á þeim tíma sem hér er til umráða. Aðalatriðið er að að sé ýtt við ríkisstjórninni í þessu máli vegna þess að hún hefur haft mjög langan tíma. Það hafa verið framlengdir uppsagnarfrestir eins og lög heimila í þessu efni án þess að menn hafi aðhafst í rauninni neitt. Það hefur ekki verið rætt við kennara með eðlilegum hætti. Það hefur heldur ekki verið rætt við heilbrigðisstéttirnar, hvort sem þar er um að ræða sjúkraliða, sjúkraþjálfara, hjúkrunarfræðinga eða Félag náttúrufræðinga sem hefur boðað verkfall um mánaðamótin, í fyrsta sinn sem það gerist. Ég held að það eigi vel við í þessu máli eins og oft áður með núv. ríkisstjórn og hæstv. menntmrh. hefur orðað betur en aðrir menn að ríkisstjórnin hafi flotið meðvitundarlítil að þeirri niðurstöðu sem núna liggur fyrir í málinu og málin eru komin í harðan hnút, því miður. Það er verið að flytja sjúklinga heim af Landspítalanum tugum saman í dag burtséð frá ástæðum á viðkomandi heimilum. Hér er um mjög alvarleg mál að ræða og er ástæða til að skora á ríkisstjórnina að gera allt sem unnt er til að leysa þessa deilu hér og nú.
Auðvitað hefur þessari ríkisstjórn yfirleitt verið heldur ósýnt um kjaramál. Hún byrjaði á því að banna vísitölubætur á laun og banna frjálsa kjarasamninga í hálft ár. Afleiðingin af því var lækkun á kaupmætti kauptaxta um 15-20% eða reyndar 25% í upphafi, en þeir eru núna 15-25% lægri að kaupmætti en þeir voru á sama tíma og þjóðartekjur á mann hafa hækkað um 18% frá árinu 1982. Það er hraklegt að horfa síðan á hina opinberu þjónustu í ljósi þess að hér hefur verið um að ræða einmuna góðæri á s.l. ári og það hefði átt að vera unnt að halda hér uppi sæmilegri opinberri þjónustu. Góð opinber þjónusta er nefnilega að mörgu leyti meginatriðið í sambandi við mat manna á því hvort um er að ræða ekki aðeins velferðarþjóðfélag heldur einnig menningarþjóðfélag, hvort um er að ræða þjóðfélag þar sem hlutirnir byggjast á siðrænum forsendum eða siðleysi.