18.03.1987
Sameinað þing: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4503 í B-deild Alþingistíðinda. (4353)
80. mál, fíkniefnamál
Helgi Seljan:
Herra forseti. Hér er um stórmál að ræða sem vissulega þyrfti að fara vel ofan í saumana a og taka vandlega umræðu um. En við erum á lokadögum þings þannig að ég ætla ekki að gera það. Hv. 2. landsk. þm. hefur komið inn á mörg þau meginatriði sein ég hefði viljað koma inn á. Um leið og þessari skýrslu er kannske fagnað, að hún skuli koma fram, á þann hátt sem maður getur fagnað svona skýrslum, ber að harma það hversu margt dapurlegt hún sýnir okkur og sýnir hún okkur þó ekki inn í þann heim í raun og veru eins skuggalegur og hann er, eins og kom vel fram í máli hv. 2. landsk, þm. Því miður kemur ekkert af þessum dapurlegu staðreyndum okkur á óvart. Ég held að við vitum nokkurn veginn hversu alvarlegt ástandið er. Það eina sem á skortir er kannske það að við vitum ekki hversu alvarlegt það er. Það er jafnvel enn alvarlegra og verra en við látum okkur til hugar koma.
Ég fagna því að sú nefnd sem sett var á fót af hálfu hinna einstöku ráðuneyta undir forsæti Helgu Jónsdóttur, aðstoðarmanns forsrh., er nú að skila áliti um þessi mál og fagna yfirlýsingum hæstv. forsrh. um að þingflokkarnir fái þessi mál til umfjöllunar með því að fá það nál. í hendurnar. Ég held að það innifeli hvort tveggja, margar nýtilegar tillögur og ábendingar til stjórnvalda um hvernig haga skuli sér í framtíðinni. Þar er inn á margt komið og ég ætla ekki að fara inn á nú þau drög sem ég hef þó séð varðandi ýmsa þætti þessa máls. Þar kemur mjög glöggt fram það, sem ég hef oft sagt úr þessum ræðustól, að tengingin við notkun hinna ólöglegu vímuefna og neyslu áfengis er mjög greinileg og áberandi í þessum efnum og þar af leiðandi varð nefndin að taka fullt tillit til þess í sínu starfi öllu og kemur ekki á óvart.
Ég held að margar af þeim tillögum sem nefndin gerir séu hinar merkilegustu. Þó ég hafi ekki sýnt þessari hæstv. ríkisstjórn mikið traust, sem ekki ber reyndar að gera heldur, treysti ég samt á hæstv. ríkisstjórn í þessum efnum, að hún taki þessar tillögur til gaumgæfilegrar athugunar og ákveðinna aðgerða þegar í stað varðandi þau mál sem sérstaklega er hægt og mögulegt að taka á sem allra fyrst.