18.03.1987
Efri deild: 71. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4506 í B-deild Alþingistíðinda. (4365)
321. mál, vaxtalög
Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. Eins og þar kemur fram ræddi fjh.- og viðskn. þetta mál á einum fundi. Hér er bæði um viðamikið og flókið mál að ræða og því er sú umfjöllun um málið sem fram fór í hv. fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar ekki á nokkurn hátt viðhlítandi.
Eins og frsm. meiri hl. gerði grein fyrir hér áðan þá kom Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur á fund nefndarinnar og gerði hann grein fyrir þeirri gagnrýni sem hann hefur fram sett á þetta frv.
Þegar vinnubrögð eru með þeim hætti sem raun ber vitni þá gefst ekki ráðrúm til að taka tillit til athugasemda sem þessara, hvað þá heldur að vega og meta hversu mikinn rétt þær eiga á sér. Þar sem svo háttar til og málið hefur samt sem áður hlotið afgreiðslu hér, þá mun ég ekki taka þátt í frekari meðferð þess. Það sama gildir um frv. til laga um dráttarvexti sem fylgir þessu frv. Ég mun því sitja hjá í atkvæðagreiðslu um bæði þessi mál.