18.03.1987
Neðri deild: 69. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4522 í B-deild Alþingistíðinda. (4397)

Afgreiðsla frumvarps um almannatryggingar

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég þakka hv. 10. landsk. þm. fyrir þær upplýsingar sem hún hefur gefið og vil jafnframt bæta því við að ég vona að þær upplýsingar séu til marks um það að þetta mál verði afgreitt á morgun og að tími verði gefinn fyrir fund í Nd. þannig að málið megi ná afgreiðslu.

Ég tel að það sé auðvitað rétt hjá hæstv. forseta að það er ekki hans mál að knýja á um afgreiðslu mála í nefndum en það er pólitískt mál, það er mál stjórnarflokkanna. Þeir eru núna, að því er mér er tjáð, að fara á þingflokksfundi og auðvitað eðlilegt að lokauppgjör á þingstörfum sé rætt þar og ég fer fram á að það komi skýrt í ljós af hálfu forustumanna þingflokka stjórnarflokkanna núna eftir þingflokksfundi hvort því megi ekki treysta að það sé þeirra ætlan að þetta mál verði afgreitt.