18.03.1987
Neðri deild: 70. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4530 í B-deild Alþingistíðinda. (4412)
430. mál, framleiðsla og sala á búvörum
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Þetta frv. sem hér er rætt er flutt af meiri hl. landbn. Ed. að beiðni hæstv. landbrh. til breytingar á Vlll. kafla laga nr. 46 frá 1985, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Það er ekki staður né stund til þess að kryfja þetta mál til mergjar, en það verður að segjast eins og er að þetta er spor í rétta átt. Gengur þó ekki nógu langt. Þetta sýnir með öðru að þau lög sem gilda um þetta efni, lög um framleiðslu og sölu á búvörum, eru ekki algóð og ekki framkvæmd þeirra heldur. Mætti hafa um það mörg orð, en vonandi er þetta ekki síðasta úrbótin sem kemur fram til þess að ráða að nokkru leyti bót á framkvæmd þessara laga sem sannarlega hefur ekki farið nógu vel úr hendi.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það núna þar sem tíminn er dýrmætur, en þetta eru ekki mín síðustu orð um þetta mál.