19.03.1987
Neðri deild: 71. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4554 í B-deild Alþingistíðinda. (4435)

213. mál, fólksflutningar með langferðabifreiðum

Frsm. minni hl. samgn. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Það er rétt að ég og hv. 3. þm. Norðurl. e., Stefán Valgeirsson, skrifum ekki undir þá brtt. sem hér er verið að fjalla um. Við gátum ekki fallist á þá breytingu sem Ed. gerði á 4. gr. frv. á þann veg að taka fulltrúa Ferðamálaráðs úr skipulagsnefnd fólksflutninga og veita þess í stað sérleyfishöfum rétt til að tilnefna tvo fulltrúa í þessa nefnd. Það leynir sér ekki að þráseta ákveðinna hagsmunaaðila í Alþingishúsinu síðustu daga hefur vissulega fært þeim ákveðinn árangur.

Því miður náðist ekki samstaða í samgn. þessarar deildar nú um að standa að óbreyttri samþykkt þessarar deildar um skipan skipulagsnefndarinnar. Fimm af sjö nefndarmönnum flytja á þskj. 1063 brtt. um skipan nefndarinnar þar sem gerð er tillaga um að Ferðamálaráð hafi ekki fulltrúa í umræddri nefnd skipulagsmálanna. Á þetta sjónarmið gátum við hv. þm. Stefán Valgeirsson ekki fallist og stöndum því ekki að þessari brtt. Við urðum varir við verulegan áhuga þeirra sem vinna að ferðamálum, sérstaklega úti á landsbyggðinni, fyrir því að hafa fulltrúa í þessari nefnd, en því miður náðist ekki samkomulag um það og við urðum þar í minni hluta en sjáum ekki ástæðu til að vera að flytja um þetta sérstaka till. En ég vil að það komi hér skýrt fram að við höfðum aðra skoðun en meiri hl. nefndarinnar.