04.11.1986
Sameinað þing: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 552 í B-deild Alþingistíðinda. (447)

98. mál, sjálfvirkt tilkynningarkerfi fiskiskipa

Fyrirspyrjandi (Árni Johnsen):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. svör hans. Það er gott að heyra að þarna er unnið markvisst og ákveðið því þarna er um að ræða byltingu í öryggismálum sjómanna. Það kerfi sem hefur verið hannað hér á Íslandi í Verkfræðistofnun Háskóla Íslands undir stjórn dr. Þorgeirs Pálssonar er nýjung á heimsmarkaði og veldur því að þeir sem hafa eftirlit með öryggisþáttum sjómanna og skipum geta á augabragði séð á skjá hvar skip er statt eða hvar það hefur verið statt ef eitthvað hefur farið úrskeiðis. Þarna er um að ræða stórkostlegan þátt í starfsemi öryggismála sjómanna.

Það er gott að heyra að tilraunakerfið fer í gang á næsta ári og á að standa yfir reynsla á því í ein tvö ár. Þarna eru Íslendingar í fararbroddi og er ástæða til að hvetja til þess að fylgt sé eftir.

Rétt þykir mér að skjóta inn að einn þáttur í öryggismálum sjómanna, sem er brýnn og mikilvægur, er nýjung sem er á íslenskum markaði í dag, farsímar. Það er ástæða til að hvetja hæstv. samgrh. til að setja reglugerð um að skylda farsíma í íslenskum skipum. Í fyrsta lagi auðvelda farsímar mjög á meðan tilraunir standa yfir um sjálfvirka tilkynningarkerfið eftirlit og samskipti við skip svo að öryggið margeykst miðað við það sem nú er. Í öðru lagi er þarna um að ræða félagslegan þátt fyrir sjómenn sem eiga mun auðveldara með að hafa samband við fjölskyldur sínar í landi og aðra, sinna málum frá sjó sem ekki hefur verið hægt hingað til á raunhæfan hátt í gegnum hefðbundið talstöðvarkerfi. Löggilding farsíma um borð í fiskiskipum er því brýn. Það hefur sýnt sig t.d. í togurum landsins að það tæki hefur gerbreytt allri aðstöðu sjómanna um borð þannig að sjómenn eru í mun betri tengslum við land.