19.03.1987
Sameinað þing: 66. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4567 í B-deild Alþingistíðinda. (4475)
49. mál, lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks
Frsm. félmn. (Gunnar G. Schram):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1055 um till. til þál. um lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks, frá félmn.
Till. þessi hlaut ítarlega umræðu í félmn. Auk hennar liggur fyrir þessu þingi frv. til laga á þskj. 27 um lífeyrisréttindi heimavinnandi húsmæðra en það frv. er flutt í Nd. af Málmfríði Sigurðardóttur og Kristínu Halldórsdóttur. Jafnframt hefur verið flutt hér í Sþ. till. til þál. á þskj. 959 um undirbúning lífeyrisréttinda þeirra sem sinna heimilis- og umönnunarstörfum. Flm. þeirrar till. eru Gunnar G. Schram, Pétur Sigurðsson, Salome Þorkelsdóttir og Kristín S. Kvaran.
„Þessi þingmál fjalla öll í megindráttum“, segir í nál. félmn., „um sama efni. Nefndin hefur rætt málið með hliðsjón af þessum þingmálum og náð samkomulagi um eftirfarandi breytingu:
Tillgr. orðist svo:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa tillögur um lífeyrisréttindi þeirra sem eingöngu sinna heimilis- og umönnunarstörfum og leggja þær fyrir Alþingi eigi síðar en 1. nóv. 1987.“
Undir þetta nál. rita Gunnar G. Schram, Jóhanna Sigurðardóttir, Árni Johnsen, Stefán Valgeirsson, Jón Kristjánsson, Friðjón Þórðarson og Guðrún Helgadóttir.
Í framhaldi af þessi, herra forseti, vil ég vekja sérstaka athygli þingheims á því að í þessari breytingartillögu, sem ég las, er eingöngu fjallað um það að undirbúnar verði tillögur um lífeyrisréttindi heimavinnandi fólks og þess sem jafnframt stundar umönnunarstörf á heimilum. Í tillögunni er ekki vikið að kostnaðarhlið þess máls af eðlilegum ástæðum og því ekki um það að ræða að í henni felist neinar ráðagerðir um greiðsluskyldu eða greiðslubyrði ríkissjóðs vegna þeirra lífeyrisréttinda sem hér um ræðir. Fjárhagshlið málsins er eitt þeirra atriða sem sérstaklega verður að kanna í þeirri undirbúningsvinnu sem tillagan gerir ráð fyrir. Ég vil að lokum, herra forseti, lýsa yfir, sem formaður félmn. Sþ., sérstakri ánægju minni vegna þess að fullt samkomulag varð milli fulltrúa allra flokka í nefndinni um nýjan og breyttan tillögutexta um þetta mikilsverða mál.