19.03.1987
Sameinað þing: 66. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4570 í B-deild Alþingistíðinda. (4482)

160. mál, fræðsla um kynferðismál

Frsm. félmn. (Árni Johnsen):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. félmn. um till. til þál. um fræðslu meðal almennings um kynferðismál:

„Nefndin hefur rætt till. og telur að með hliðsjón af sjúkdómnum alnæmi sé full ástæða til aukinnar fræðslu um kynlíf og kynsjúkdóma en frumskilyrði er að efla almennt siðferði varðandi kynlíf og barneignir.

Nefndin leggur til að till. verði samþykkt með svofelldri breytingu:

Tillgr. orðist svo:

Alþingi ályktar að fela heilbrrh. að efla verulega fræðslu um kynferðismál meðal almennings með það að meginmarkmiði að koma í veg fyrir ótímabærar þunganir og hindra útbreiðslu sjúkdóma. Sérstök áhersla skal lögð á að upplýsa fólk á aldrinum 15-19 ára um kynlíf og getnaðarvarnir.“

Svohljóðandi var tillgr. Það er ljóst að ýmislegt hefur verið gert í fræðslu um þessi mál og unnið er að markvissri kynningu, m.a. á vegum skólayfirlæknis og landlæknis. Hitt er að í þessum efnum verður góð vísa sjaldan of oft kveðin.