19.03.1987
Sameinað þing: 66. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4570 í B-deild Alþingistíðinda. (4483)
160. mál, fræðsla um kynferðismál
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Fyrsta fsp. mín hér á þingi og raunar ef ég man rétt fyrsta þingmál Kvennalistans haustið 1983 var fsp. um framkvæmd kynfræðslu í skólum og meðal almennings. Slík fsp. var aftur borin fram haustið 1985 og í framhaldi af því bárum við Kvennalistakonur fram till. til þál. um eflingu kynfræðslu og aftur nú á þessu þingi. Ég ætla ekki að eyða tíma þingsins í umræðu, enda ekki ástæða til þess, en ég get ekki látið hjá líða að þakka hv. félmn. fyrir afgreiðslu þessa máls, sem við höfum svo lengi reynt að hreyfa við og fá færð til betri vegar þótt ýmislegt hafi gerst eins og hv. frsm. ræddi um. En mikið er ógert og fyrir hönd okkar sem fluttum þetta mál lýsi ég ánægju með afgreiðslu þess og vona að það verði til góðs.