19.03.1987
Sameinað þing: 66. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4574 í B-deild Alþingistíðinda. (4489)
Yfirvofandi uppsagnir á ríkisspítölunum
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég tók hér til máls við umræður utan dagskrár um kjaramál í gær og get að flestu leyti vitnað til þess. Hér er á ferðinni tvíþætt mál, annars vegar þær kjaradeilur sem standa yfir og verkföll og hins vegar uppsagnir sem taka gildi 1. apríl og hv. málshefjandi gerði grein fyrir. Þar er í raun og veru á ferðinni mjög alvarlegt mál og sýnu alvarlegra að mínu mati þar sem veruleg hætta er á því, og það liggur reyndar fyrir, að fólk hverfi endanlega úr störfum með þeim uppsögnum. Þar fer úr störfum háskólamenntað og þjálfað fólk sem viðkomandi stofnun eða stofnanir hafa jafnvel kostað miklu til að þjálfa upp eftir sérnám.
Ég veit ekki hvort allir hv. þm. gera sér grein fyrir því hversu mikils virði til að mynda sérþjálfaður hjúkrunarfræðingur með starfsreynslu á gjörgæslu eða skurðdeildum er í raun og veru fyrir eina stofnun. Slíkum starfsmanni verður ekki skipt út með manni af götunni. Það liggur langt nám og gjarnan mikil þjálfun og tilkostnaður viðkomandi stofnunar að baki þeirri hæfni sem slíkur starfsmaður býr yfir og það er því ekki lítill missir þegar stofnun á borð við ríkisspítalana horfir á eftir hundruðum slíkra starfsmanna burtu.
Það er nauðsynlegt að menn átti sig einnig á því að hér er um endanlegar uppsagnir að ræða að framlengdum uppsagnarfresti liðnum þannig að þetta fólk er laust allra mála við sína stofnun og það gilda ekki sömu reglur og gera ef um vinnudeilur, kjaradeilur eða verkföll væri að ræða hvað varðar neyðarþjónustu og annað slíkt. Þetta fólk er ósköp einfaldlega farið úr störfum sínum og endanlega laust allra mála við þessar stofnanir. Menn þurfa að átta sig á því. Þannig að hér er á ferðinni verulega alvarlegt mál, ekki bara fyrir ríkisspítalana og þær stofnanir sem náttúrufræðingarnir vinna á, heldur líka fyrir alla heilbrigðisþjónustu í landinu vegna þess að á ríkisspítölunum er veitt ýmis sérhæfð þjónusta fyrir allt heilsugæslu- og heilbrigðiskerfi landsmanna, eins og hér var nefnt, þjónusta Blóðbankans og fleiri svonefndra deilda á ríkisspítölum, rannsóknarstofa og ýmis slík starfsemi. Ég verð að segja að með tilliti til alls þessa hafa mér þótt viðbrögð ríkisvaldsins einkennast af furðumiklu andvaraleysi.
Að lokum þetta: Þetta mál verður ekki leyst, það er mér a.m.k. alveg fullljóst eftir kynni mín af þessum málum, nema gerbreytt verði um stefnu í launamálum starfsfólks í heilbrigðisstéttunum og reyndar í allri opinberri þjónustu. Annars hreinlega hrynur þessi þjónusta og stendur ekki undir nafni, verður ekki af þeim gæðum sem við auðvitað gerum og eigum að gera kröfu um.