19.03.1987
Sameinað þing: 66. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4577 í B-deild Alþingistíðinda. (4492)
Yfirvofandi uppsagnir á ríkisspítölunum
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég verð að ítreka það sem ég hef áður sagt að fjmrn. starfar að gerð kjarasamninga á grundvelli laga sem Alþingi hefur sett og það getur ekki unnið að lausn kjarasamninga á öðrum grundvelli. Getur nokkur ætlast til þess að ráðuneyti vinni að þeim málum sem þeim er með lögum falið á öðrum grundvelli en lögin mæla fyrir um? Við höfum sett löggjöf um meðferð kjaramála í þjóðfélaginu bæði á almennum vinnumarkaði og hjá opinberum starfsmönnum til þess að tryggja það að einstakir hópar í þjóðfélaginu hafi svipaða aðstöðu til þess að semja um kaup sitt og kjör, hafi svipaða aðstöðu til þess að knýja á um framgang kröfugerðar sinnar.
Ef við tökum dæmi af almennum vinnumarkaði, þá hygg ég að til að mynda aðstaða hafnarverkamanna sé slík að það mundi ekki hafa mikinn tilgang fyrir þá að segja upp störfum sínum til þess að knýja á um bætt kjör vegna þess að þá yrðu einfaldlega aðrir ráðnir í staðinn. Það er nóg framboð af mönnum til slíkra starfa. Þeir fara eftir almennum reglum um samningamál sem gilda á almennum vinnumarkaði og knýja á um kröfur sínar í gegnum samninga, og ef þannig stendur á með verkföllum. Þannig njóta þeir og eru þeim tryggð réttindi, tryggð sambærileg aðstaða annars staðar í þjóðfélaginu. Bæði á almennum vinnumarkaði og á meðal ríkisstarfsmanna eru hópar sem hafa betri aðstöðu til þess að knýja á um sín samningamál, m.a. með uppsögnum. Þetta á bæði við um hópa innan opinberra starfsmanna og á almennum vinnumarkaði. En löggjöfin er sett til þess að tryggja einstökum hópum sömu aðstöðu í þessu efni. Og fjmrn. getur ekki út frá þessum meginsjónarmiðum og út frá almennum stjórnskipunarreglum staðið að kjarasamningum á öðrum grundvelli en þeim lögum sem um þá gilda. Ef einhverjir hópar fara þá leið að knýja á um lausn kjaramála með uppsögnum, þá getur fjmrn. ekki farið sérstaklega með þau mál. Það verður á grundvelli laganna að eiga þær viðræður á sama grundvelli og við önnur félög sem ekki hafa þá aðstöðu að knýja á með uppsögnum.
En nú höfum við á þessu þingi gert þá réttarbót að félögin hafa samningsrétt hvert fyrir sig og þau hafa verkfallsrétt. Háskólamenn í opinberri þjónustu höfðu ekki verkfallsrétt á síðasta ári. Við höfum veitt þeim þennan rétt og það var nauðsynleg réttarbót þannig að menn hefðu þá leið einnig til þess að knýja á um kröfur sínar og ekkert óeðlilegt við það að sá réttur sé notaður. En fjmrn. verður að ganga til þessara samninga á grundvelli þessara laga þar sem einstökum félögum er áskilinn réttur. Það undrar mig ef annað sjónarmið er uppi hér á hinu háa Alþingi. Þetta verð ég að ítreka hér enn vegna síðari ræðu hv. málshefjanda, en vil svo að lokum ítreka það að samninganefnd ríkisins mun auðvitað leggja sig fram um það að reyna að leiða þessar deilur til lykta á sem skemmstum tíma og án þess að brjóta þá meginstefnu sem fylgt hefur verið í þjóðfélaginu.
Hér í þessum þingsal sitja tveir af forustumönnum Verkamannasambandsins. Það væri fróðlegt að heyra álit þeirra á því hvort það væri réttlætanlegt fyrir ríkið að ganga mikið lengra í kjarasamningum við opinbera starfsmenn en gert hefur verið við verkafólkið í kjarasamningum nýlega og sem gilda þetta ár. Það væri fróðlegt að spyrja að því: Telja menn að ríkisvaldið eigi að ganga miklu lengra í þessu efni?
Það er rétt að taka það fram að á síðasta ári hækkuðu laun opinberra starfsmanna nokkuð meira en laun starfsmanna á almennum vinnumarkaði og fyrir því voru ákveðin rök. Og ég hygg að forustumenn innan Alþýðusambandsins til að mynda hafi haft á því skilning. Það kann auðvitað að vera að í einstökum tilvikum þurfi að sveigja mál á þann veg að launahlutföll milli einstakra hópa séu leiðrétt lítið eitt. En stór stökk í þeim efnum hjá opinberum starfsmönnum í heild umfram það sem gerist á almennum vinnumarkaði hygg ég að séu óhugsandi og ég geri ekki ráð fyrir því að nokkur hv. þm. muni í raun og veru leggja það til eða telja það vera réttlætismál. En mál sigu í þessa átt á síðasta ári að opinberir starfsmenn fengu lítið eitt meira og fyrir því voru rök. Og ég segi enn og aftur: Við munum kappkosta að finna lausn á þessari deilu, til þess að hún hafi sem minnsta röskun í för með sér fyrir þá sem þeirrar mikilvægu þjónustu njóta sem hér er fjallað um.