04.11.1986
Sameinað þing: 12. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í B-deild Alþingistíðinda. (458)

12. mál, frysting kjarnorkuvopna

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða að lýsa fyllsta stuðningi við till. sem fyrir liggur á þskj. 12, um frystingu kjarnorkuvopna, og vænti að að þessu sinni fái mál þetta í senn þinglega afgreiðslu og stuðning af hálfu hæstv. utanrmn. sem tillögunni verður vísað til. Ég geri ráð fyrir því að á þingi Sameinuðu þjóðanna komi fram till. efnislega svipuð og flutt hefur verið af Svíþjóð, Mexíkó og fleiri ríkjum og sem er efnislega uppistaðan í þeim tillöguflutningi sem hér er til umræðu undir þessum dagskrárlið.

Ég tel nauðsynlegt að á það reyni til hlítar hvort ríkisstjórnin getur ekki stutt þá stefnu sem í þessum tillöguflutningi felst og minni á að í fyrra flutti ég ásamt hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni beinskeytta tillögu um að tekin væri afstaða til þessarar ályktunartillögu nefndra ríkja þegar það vitnaðist að Ísland hafði ekki tekið afstöðu eins og við höfðum vænst með till. eins og önnur ríki Norðurlanda.

Nú verður væntanlega, eins og fram kom hjá hv. flm., ráðrúm til að fjalla um þessi mál og taka ákvarðanir hér á Alþingi í þessu mikilsverða máli varðandi afvopnun og ég treysti því að það verði greitt fyrir því af hálfu bæði hv. formanns utanrmn. og öðrum að þingviljinn fái að koma fram í þessu efni.