15.10.1986
Efri deild: 3. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í B-deild Alþingistíðinda. (46)
24. mál, lánsfjárlög 1987
Menntamálaráðherra (Sverrir Hermannsson):
Virðulegi forseti. Vegna Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar vil ég aðeins rifja það upp að ég lýsti því yfir að mér sýndist staða þess fyrirtækis vera með þeim hætti að með öllu væri útilokað að hún fengi risið undir þeim skuldum og fjármagnskostnaði sem af þeim leiddi, og að það mál yrði ekki leyst, að mínum dómi, eins og þá stóðu sakir nema hið opinbera kæmi þar til skjalanna með einhverjum hætti. Öðruvísi var ekki frá þessu gengið. Þetta væri mín skoðun eftir að hafa kynnt mér stöðu þessa fyrirtækis. Ég skal ekki segja hvernig þessar sakir standa nú, enda verða aðrir fyrir svörum að þessu leyti.
Vegna Ríkisútvarpsins þá skal ég aðeins taka það fram að það er ekki stefna ríkisstjórnarinnar eða mín að setja þetta fyrirtæki á vonarvöl. Vegna afnotagjalda þá er þess að geta að um það var samið í upphafi árs við verkalýðshreyfinguna að þessi gjöld, sem og mörg önnur, myndu ekki hækka á þessu ári, stendur út þetta ár og við það verður staðið auðvitað. Mér er ljóst að það kreppir að Ríkisútvarpinu. En ég hygg nú að því séu ýmsar leiðir færar og vegir færir og ég mun enda greiða götu þess vegna þess að ég ætla þessu fyrirtæki mikinn hlut. Og það er misskilningur ef menn halda að því hlutverki, sem ég fyrir mitt leyti ætla þessu fyrirtæki, að við því verði tekið af hinum svonefndu frjálsu útvarps- eða sjónvarpsstöðvum.
Ég var fylgjandi þeirri ráðabreytni um setningu nýrra útvarpslaga og dreg ekkert í land um þá afstöðu, en Ríkisútvarpið, hljóðvarp og sjónvarp, á miklu hlutverki að gegna og ég mun ekki láta mitt eftir liggja til þess að styrkja aðstöðu þess fyrirtækis. Um einstakar ráðstafanir í sambandi við fjárhag þess og afkomu ætla ég ekki að sitja fyrir svörum nú. En ég endurtek það að ég mun leggja mitt af mörkun til þess að vel verði fyrir fjárhag og afkomu Ríkisútvarpsins séð.