04.11.1986
Sameinað þing: 12. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (472)
63. mál, bann við geimvopnum
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Það er rétt að ég hef talað tvisvar og geri þess vegna örstutta athugasemd. Kjarni málsins er sá að þessi till. fjallar um að lýsa yfir tafarlausri stöðvun á öllum rannsóknum og tilraunum í 1. lið tillögunnar. Það er sá liður sem ég hef lýst mig andvígan og breytir þar engu þótt hv. flm. fari um víðan völl til vinstri og hægri og út um allar jarðir. Við erum nefnilega þrátt fyrir allt sammála um að tækni er hvorki til vinstri né hægri, kjarnorka er hvorki til vinstri né hægri og rannsóknir eru hvorki til vinstri né hægri. Rannsóknum miðar kannske aftur á bak eða áfram. En um rannsóknir verður ekki sagt fyrir fram til hvaða niðurstöðu þær leiða. Hitt vil ég svo árétta, herra forseti, að ég bið þingheim að treysta því varlega að hv. flm. sé með réttu ráðinn blaðafulltrúi Alþjóðasambands jafnaðarmanna. Og vænti þess að menn taki frásögnum hans af þeim vettvangi með hæfilegri varúð.