04.11.1986
Sameinað þing: 12. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 586 í B-deild Alþingistíðinda. (474)

63. mál, bann við geimvopnum

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Þau fræði eru nokkuð gömul að menn deila um hvort einhver aðferð sé öðrum betri ef drepa á menn. Það er frægt úr Grundarbardaga að Skreiðar-Steinn fáraðist mjög yfir því hve óþrifalega hefði verið gengið um fiskisteininn og taldi fráleitt að menn væru drepnir með þeim hætti eins og þar hefði verið staðið að verki.

Nú er það svo að auðvitað er það ekki deiluefni á meðal alþm. á Alþingi Íslendinga að við vildum að ekki væri barist í þessum heimi. Hins vegar mun það nú svo að meðan þjóðin er ekki fjölmennari en hún er má það með miklum ólíkindum vera ef hún ræður úrslitum í slíkum efnum og tillöguflutningur, sem vissulega hlyti að fara fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þar sem stórveldin hafa neitunarvald, verður að sjálfsögðu ákvarðaður þar en ekki hér í þingsölum. Menn hafa á vissan hátt villst á stærð sinni og styrkleika ef þeir telja að með skörungsskap á Alþingi Íslendinga leysi þeir þessa gátu.

Við höfum horft á forráðamenn stórveldanna sitja í Reykjavík og ræða afvopnunarmál. Við höfum vissulega horft á það að hinn rússneski leiðtogi, sem hingað kom, er á allan hátt hvað ytra útlit snertir mun geðþekkari en ýmsir hans fyrirrennarar og líkari þeim manngerðum sem vestrænar þjóðir hafa sett fram sem sína forustumenn. (Gripið fram í: Og Vestfirðingar.)

En sleppum því augnablik að ræða um það að Rússar og Bandaríkjamenn treysta ekki hverjir öðrum, en spyrjum að því hvað það sé svo hræðilegt í fari Svía að það sé nauðsynlegt að fylgjast með flestu sem þar gerist. Er það tilfellið að sú þjóð, sem kaus hlutleysi í seinustu heimsstyrjöld, tók ekki þátt í henni, sé að undirbúa innrás í Rússland? Er það tilfellið að það sé nauðsyn að hafa hlustunartæki í sænsku sendiráði í Moskvu til að fylgjast þar með samtölum manna? Er tilfellið að það sé nauðsyn að senda kafbáta inn í sænska landhelgi? Og ef ástandið er svona slæmt, bjargar það þá nokkru þó þeir semji Bandaríkjamenn og Rússar? Verða þá ekki Svíar næstir til að leggja undir sig heiminn? Eða er það e.t.v. svo að það kerfi sem kommúnistaríkin hafa komið sér upp er svo sannfært um yfirburði þess forms sem stjórnskipulags hjá þjóðum að þau telji það hluta af sinni eðlilegu skyldu að útbreiða það til allra ríkja jarðarinnar og þá fyrst séu menn ánægðir? Ef svo er er allmikið verk óunnið og allmikil ófriðarhætta.

Það var engin tilviljun að við lok heimsstyrjaldarinnar síðari útbreiddu sigurvegararnir það stjórnkerfi sem þeir bjuggu við yfir á þær þjóðir sem þeir sigruðu. Sú blokk stendur enn. Við höfum horft á það að einstaka ríki Austur-Evrópu hefur látið sér detta í hug að breyta um stjórnhætti, ekki í neinum stórkostlegum mæli frá þeirri uppskrift sem fram var sett, en engu að síður hefur það ávallt leitt til þess að með hernaðaraðgerðum hefur það verið brotið á bak aftur. Þess vegna standa þessi mál þannig í dag að það mannlega traust sem þarf að vera til staðar svo að menn semji virðist ekki vera til staðar og vígbúnaðarkapphlaupið heldur áfram.

Ég treysti mér ekki til að gefa neina forskrift á það að ein aðferð sé öðrum réttlætanlegri til að drepa menn. Það verða mér fróðari menn að gera. En mér hefur stundum fundist að það yrði meira réttlæti í styrjöld þar sem einhverjir aðrir væru drepnir í milljónatali en karlmenn á aldrinum frá 15 ára og upp að fertugu. Ég veit ekki til þess að það sé neitt sérstakt réttlæti í því að slík stríð séu öðrum betri og satt best að segja undrar mig þegar menn rjúka til og ætla að það sé þessi eða hin tegund af vopnum sem muni valda styrjöldum. Til lítils hafa menn þá lesið mannkynssöguna. Það hafa aldrei verið til svo léleg vopn að menn legðu ekki í stríð og aldrei til svo léleg vopn að menn næðu ekki árangri í að drepa menn. Ég vil eindregið hvetja þá, sem ég efa ekki að af góðum vilja vilja draga úr ófriðarhættunni, að ganga ekki svo grimmt fram sem friðarsinnar að manni sýnist á ásjónu og yfirbragði að þeir séu að komast í ham til þess að gefa út fyrirskipanir eins og þar væru komnir hershöfðingjar sem hikuðu ekki við að senda menn af stað til ófriðar.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.