15.10.1986
Efri deild: 3. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (51)
24. mál, lánsfjárlög 1987
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Frú forseti. Vegna ummæla hv. 5. landsk. þm. þess efnis að í tillögum ríkisstjórnarinnar varðandi skerðingu á tekjum Ríkisútvarpsins fælist köld kveðja til þeirra starfsmanna Ríkisútvarpsins sem sannarlega hafa unnið mikið kraftaverk síðustu daga, þá er þetta auðvitað útúrsnúningur hinn mesti. Ég tek fyllilega undir það með hv. þm., eins og rækilega hefur komið fram af hálfu ríkisstjórnarinnar áður, að starfsmenn Ríkisútvarpsins unnu mjög mikið og óeigingjarnt starf í tengslum við þennan leiðtogafund sem haldinn var hér í Reykjavík, og ég fullyrði að auðvitað má nota um hann það orð sem var viðhaft, kraftaverk. Það starf var leyst alveg einstaklega vel af hendi og reyndar má einnig taka til í því efni störf allra annarra sem unnu að kynningar- og upplýsingamálum í tengslum við þennan fund, en ekki síst á þetta þakklæti við um starfsmenn Ríkisútvarpsins. Ég mótmæli því alveg að þessari afstöðu sé ruglað saman við þau ákvæði sem koma fram í þessu frv. og fullyrði að áfram verður búið vel að Ríkisútvarpinu sem hefur hlutverki að gegna í okkar þjóðfélagi. Ég tel hins vegar ekkert óeðlilegt við að menn velti upp spurningum, þegar sú bylting hefur orðið í okkar þjóðfélagi að útvarpsrekstur er orðinn frjáls, t.d. hvaða þætti Ríkisútvarpið á að hafa með höndum, og ég tel að það sé fyllilega réttmætt að setja fram þá spurningu um Rás 2 sem ég setti fram áðan, hvort ástæða væri til að halda þeim rekstri áfram.
Frú forseti. Ég gleymdi enn að svara spurningunni um það hvort ég teldi eðlilegt að þetta skerðingarákvæði sem hér um ræðir tæki til þessa árs. Ég vil gera verulegan greinarmun á því hvort um er að ræða fjárstreymi á milli ríkisstofnana, milli ríkissjóðs og einstakra ríkisstofnana eða hvort um er að ræða skattlagningu á einstaklinga eða borgara og tel þess vegna að það sé réttlætanlegt að koma fram með þetta ákvæði eins og það er fram sett hér.