06.11.1986
Sameinað þing: 13. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 666 í B-deild Alþingistíðinda. (536)
17. mál, lífeyrissjóður allra landsmanna
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Það er örstutt. Ég held að það hafi verið hv. þm. Kjartan Jóhannsson sem orðaði það svo áðan að andstaðan frá þeim sem eru í forsvari fyrir lífeyrissjóðina væri í þessu máli. Ég hef vísað hinu frá. Hér er einn af slíkum. Og ég hef ekki sýnt þessu andstöðu. Ég hef vissar grundvallarhugmyndir um það hvað skuli koma inn í þetta, en alls ekki sýnt því andstöðu. Þannig að það komi hér fram.
En ég þarf nú að rifja hér upp örfá atriði varðandi hæstv. félmrh. Hann er greinilega farinn að ryðga í ríminu. Ég sagði hér áðan að hann, ásamt fleirum, hefði staðið í vegi fyrir því að ávöxtun orlofsfjár færi heim í heimabyggðirnar, í peningastofnanir þar. (Félmrh.: Þetta er algerlega rangt.) Þetta er ekki rangt, hæstv. ráðherra, við skulum fletta upp umræðunum um ríkisábyrgð á launum, sem fram fór fyrir tæplega tveimur árum síðan, þegar hæstv. ráðherra greiddi atkvæði gegn því að launþegar á Vestfjörðum nytu ríkisábyrgðar á sínu orlofsfé eins og aðrir sem greiða inn í póstgíró. Ég held að hæstv. ráðherra ætti að fletta þessu upp. Við skulum lesa það saman eina kvöldstund, vita hvort við komumst ekki að sömu niðurstöðu um það. Það gerði hæstv. ráðherra, hann beitti sér gegn því að Vestfirðingar nytu sama réttar í þessu efni og aðrir landsmenn. Og það voru fleiri en hann, án þess að ég ætli að fara að telja það frekar upp hér. Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðherra að það var, og er kannske enn en ég vona þó dvínandi, andstaða innan verkalýðshreyfingarinnar varðandi orlofsfjársöfnunina eins og hún er á Vestfjörðum. Mér er það alveg ljóst. Það er rétt. En ég vænti þess að ég sé búinn að ná einhverjum yfir á rétt ról til þess að fólkið geti notað þetta sjálft, eins og það á að gera. Mér er það alveg ljóst að andstaðan var líka í eigin herbúðum innan verkalýðshreyfingarinnar varðandi þetta mál, en ég hygg að menn hafi séð að sér.