10.11.1986
Efri deild: 10. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 691 í B-deild Alþingistíðinda. (555)

115. mál, sveitarstjórnarlög

Davíð Aðalsteinsson:

Hæstv. forseti. Ég tek undir ýmislegt það sem kom fram hjá hv. 1. flm. þessa frv., ekki síst þegar hann gat um nauðsyn þess að efla sveitarfélögin, stækka þau með það að markmiði að þau verði færari um að annast ýmis þau verkefni sem þau þegar hafa á hendi og að ég tali nú ekki um ef svo fer sem horfir, að verkefnin aukist. Það er mikill vilji fyrir því um þessar mundir að auka þau verkefni sem sveitarfélögin hafa með höndum, en jafnframt að flytja til þeirra aukna fjárhagslega ábyrgð en um leið tekjur.

Ég sakna þess þó úr orðræðu hv. flm. þessa frv. að hann skyldi ekki frekar koma inn á þær reglur sem þó gilda samkvæmt lögum um stuðning vegna sameiningar sveitarfélaga. Skv. 114. gr. þeirra sveitarstjórnarlaga sem við samþykktum á s.l. vori er gert ráð fyrir að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga komi til í sambandi við fjárhagslegan stuðning við sameiningu sveitarfélaga. Það er gert ráð fyrir að settar verði ákveðnar reglur um þessi efni. Þar er sagt, ef ég man rétt, að ráðuneytið geti sett ákveðnar reglur um það efni. Mér hefur verið tjáð að það sé verið um þessar mundir að setja þessar reglur. Ég hef ekki séð þær eða heyrt, enda er verið að vinna að þeirri reglusmíð.

Hv. flutningsmenn leggja til samkvæmt þessu frv. að ríkissjóður veiti fjármagni beint vegna sameiningar hinna einstöku sveitarfélaga í hverju tilviki. Þá þyrfti slík fjárveiting að koma inn á fjárlög hverju sinni og þarfirnar þar af leiðandi að vera ljósar áður en til slíkra fjárveitinga kemur að sjálfsögðu.

Hv. flm. kom inn á það að með flutningi þessa frv. væru tekin af öll tvímæli um fjárhagslegan stuðning við sveitarfélögin vegna sameiningar eins og getið er hér um. Ég held þó að þarna verði að koma til skýrari reglur en getið er um í frv. Hér er getið um það, og það er rétt, að misjöfn fjárhagsstaða sveitarfélaga geti verið hamla á að sveitarfélögin verði sameinuð, en það er að engu leyti farið inn á í hve ríkum mæli þessi stuðningur á að vera. Það er á engan hátt skilgreint.

Nú geri ég mér fulla grein fyrir því að slíku er erfitt og jafnvel alls ekki hægt að koma fyrir í lögum, en ég teldi þó rétt og óhjákvæmilegt að það væri heimilt og raunar gert ráð fyrir því í slíku frv. að setja enn frekari reglur um þessi mál. Og nú er það spurningin: Gerir hv. flm. ráð fyrir því að í gangi séu tvær reglur, annars vegar að ríkissjóður veiti fjármagnið beint til þessara mála vegna sameiningar sveitarfélaga eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., en jafnframt að það sé veitt fjármagni í sama skyni á vegum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og hver gengur fyrir í þessu efni? (HS: Hann er nú að hverfa.) Ja, við verðum að hafa í huga þau lög sem gilda um þessi mál nú. Ég hefði kosið að hv. 1. flm. gerði grein fyrir því með hvaða hætti ætti að nota þessar tvær reglur sem mundu verða í gildi ef þetta frv. sem hér liggur fyrir yrði að lögum.

Ég vil að síðustu taka það fram, sem ég raunar vék að áðan, að ég tel nauðsynlegt að efla sveitarfélögin meðfram með því móti að stækka þau, sameina smærri sveitarfélögum, mynda stærri heildir í því skyni að þau verði fær um að takast á hendur aukin verkefni, en eins og kunnugt er er mikið meirihlutafylgi fyrir því að svo verði. En ég kýs að hv. flm. geri grein fyrir samspili þessara tveggja reglna sem mundu þá verða við lýði um stuðning vegna sameiningar sveitarfélaga verði þetta frv. að lögum.