10.11.1986
Neðri deild: 10. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 716 í B-deild Alþingistíðinda. (571)

71. mál, dagvistarheimili fyrir börn

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég er einn af flm. þess frv. til laga sem hér er til umræðu. Tvö aðalatriði eru í þessu frv. Annað er það að dagvistarheimili skulu ekki aðeins vera dvalarstaður fyrir barnið þar sem það njóti verndar og aðhlynningar í mat og drykk, heldur verði einnig að líta svo á að þar fari fram uppeldislegur þáttur bæði hvað varðar hegðun og aðgerðir sem stuðli að auknum þroska. Hitt atriðið er það að vegna þess mikla bils sem er á milli raunveruleikans í þjóðfélaginu og þeirra laga sem eru í gildi og framkvæmdarinnar, þá blasir það við að það eru ekki fóstrur nema í litlum mæli sem sjá um börn á ákveðnu aldursskeiði. Það væri æskilegt út af fyrir sig að þau markmið næðust að það væru dagheimili fyrir öll börn sem þess þyrftu og að þar væru fóstrur vel launaðar sem væru glaðar í sínum störfum. Því miður blasir ekki sá veruleiki við að við séum að ná landi með þetta.

Ég hef sjálfur starfað í stétt sem sat uppi með sömu vandamálin og ég er ekki búinn að sjá að þar verði heldur nægilega vel á þessu tekið, þ.e. í kennarastéttinni. E.t.v. dettur einhverjum í hug að það skipti ekki svo miklu máli fyrir þroska barnsins hvernig umhverfi það hefur á þessum árum. Ég vil í því sambandi vitna til þess þegar blaðamenn spurðu náttúrufræðinginn fræga á gamals aldri, Darwin: „Á hvaða árum ævinnar lærðir þú mest?“ spurðu þeir. „Á fyrstu þremur árunum,“ svaraði hann. Og ég er ekki búinn að sjá það að það sé nokkur maður sem fer í gegnum eðlilegt þroskaskeið sem lærir nokkurn tímann meira á öðru tímabili ævinnar en fyrstu þremur árunum.

Auðvitað hefur umhverfið afgerandi áhrif á þroska og samferðamennirnir hafa áhrif hver á annan. Ég veit að hv. 7. þm. Reykv. kannast við það úr Íslendingasögunum sem sagt var um Erling Skjálgsson á Sóla: Öllum kom hann til nokkurs þroska. En ég vil bæta því við úr minni reynslu í starfi að ég tók einu sinni á móti nemendahóp í 1. bekk barnaskólans sem hafði notið tilsagnar við lestrarnám hjá gamalli konu sem ekki aðeins hafði náð merkilega miklum árangri í að kenna þeim að lesa, heldur virtist einnig hafa náð undraverðum árangri í að venja þau á góðar umgengnisvenjur sem ég fer ekki dult með að mótuðu þessa nemendur allan þann tíma sem þeir voru í barnaskólanum. Og þó að menn séu misjafnir og ég efi að margir geti leikið það eftir sem henni tókst í þessum efnum er ég sannfærður um að án þess að setja eitthvert slíkt markmið næst enginn árangur á dagvistarheimilunum, enginn árangur miðað við það sem gæti náðst ef mönnum væri ljóst hvílíkt gífurlegt þroskaskeið þessi aldur er ef umhverfið er nægilega reynsluríkt og jákvætt til að hjálpa börnunum á lífsleiðinni.