11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (586)

133. mál, Sjóefnavinnslan á Reykjanesi

Fyrirspyrjandi (Guðni Ágústsson):

Herra forseti. Ræða fyrirspyrjanda hefði ekki átt að koma hæstv. iðnrh. á óvart. Ég tel að hér hafi verið vakin athygli á máli sem miklu skiptir að fái farsæla úrlausn. Ég vil minna hæstv. ráðherra og Alþingi á hvernig til þessa máls var stofnað og að alþm. kynni sér í hvaða áttir málin hafa þróast. Ég hefði haldið að lífsskoðanir hæstv. iðnrh. og stefna flokks hans um atvinnurekstur skuli vera í höndum einkarekstrarmanna gerðu það að verkum að hann stöðvaði þessar áætlanir Sjóefnavinnslunnar um að knésetja þessi tvö fyrirtæki sem fyrirspyrjandi hefur nefnt hér. Hitt er svo annað mál að miðað við þann mikla kostnað sem Sjóefnavinnslan hefur lagt í undirbúning kolsýruframleiðslunnar og að sá kostnaður komi fram í verðinu en verði ekki felldur niður eða falinn er ótrúlegt að Sjóefnavinnslan geti boðið verðlækkun á kolsýru. Hér er því að mati fyrirspyrjanda verið að leika gráan leik og spurning hvort í skjóli ríkisins sé með þessum hætti leyfilegt að skaða íslenskt einkaframtak.

Að hinu má einnig spyrja hvort Alþingi finnist eðlilegt að þeir menn sem gegna lykilhlutverkum í að þróa og skapa nýjum iðnaði farveg í landinu séu stjórnarmenn í Sjóefnavinnslunni, menn frá Iðntæknistofnun og Byggðastofnun. Ein meginforsendan fyrir því að menn gefi sig að stjórnmálum er að vernda og verja hagsmuni umbjóðenda sinna, fólksins í landinu.

Allar áætlanir Sjóefnavinnslunnar benda til að með áætlunum um kolsýruframleiðslu sé vegið hart að framtaki einstaklinga og sá litli markaður sem í landinu er verði fljótt yfirfullur.

Leikur kattarins að músinni er ljótur leikur. Sá sem sækir í sína samkeppni hnefafylli í sjóði fólksins eftir þörfum þarf sjálfsagt ekki að spyrja að leikslokum. En fari svo sem að er stefnt verður skarð fyrir skildi austur í Þorlákshöfn, tíu fjölskyldur tapa starfi sínu og lífsstarf athafnamanns er að engu gert. Það mundi heyrast hljóð úr horni ef ríkið legði drög að því að loka verksmiðju á Akureyri þar sem 120 manns störfuðu eða í Reykjavík verksmiðju þar sem 700–800 manns störfuðu. Ég treysti því að hæstv. iðnrh. hugleiði þessi mál í heild sinni.