11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 733 í B-deild Alþingistíðinda. (593)

45. mál, umsóknir um húsnæðislán

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég vil í tilefni af þessari fsp. og svari hæstv. ráðherra spyrja að því hvenær þess er að vænta að þeir umsækjendur um húsnæðislán, 3100 talsins, sem lögðu inn umsóknir í september og október fái afgreiðslu sinna mála. En skv. nýjum húsnæðislögum eru skýr ákvæði um það að fólk á að fá svör innan tiltekins frests og afgreiðslu innan tiltekins frests og ef það ekki stenst væri það auðvitað brot á lögunum sem ég er viss um að menn munu reyna að forðast þar sem hér er um að ræða nýja og mikilvæga löggjöf. Mér fyndist æskilegt ef hæstv. ráðherra gæti svarað þessari fsp.