11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 735 í B-deild Alþingistíðinda. (598)

56. mál, lánveitingar Húsnæðisstofnunar ríkisins

Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Ég verð að byrja á því að segja að þessi fsp. er í 7 liðum sem þýðir um 14 svör þannig að ég er ekki viss um að mér takist á 5 mínútum að telja það upp sem ég hefði talið æskilegt að láta koma fram.

En við fyrstu spurningu sem er í tveimur liðum í sambandi við til hve margra íbúða voru veitt lán úr Byggingarsjóði verkamanna á árinu 1985 og hve margar þær verði á þessu ári. Vegna nýrra samninga um endursölu þá var svarið:

a. Vegna nýrra samninga 1985 voru íbúðirnar 166 og 1986, þ.e. í ár, 250.

b. Vegna endursöluíbúða 198 íbúðir 1985 og á þessu ári 200 íbúðir.

Önnur spurningin er: Til hve margra íbúða má áætla að hægt sé að veita lán í verkamannabústöðum á næsta ári vegna nýrra samninga og endursöluíbúða?

Svarið er: a. Húsnæðisstjórn hefur þegar heimilað mörgum stjórnum verkamannabústaða að hefja undirbúning og framkvæmdir við um 160 íbúðir og verða samningar um þær væntanlega gerðir upp um n.k. áramót. Einnig hefur stjórnin samþykkt áætlun um byggingu eða kaup á 360 íbúðum á árinu 1987, þar af eru 160 íbúðir vegna c-liðar 33. gr. laga nr. 60 1984. Þessi áætlun verður að sjálfsögðu endurskoðuð í samræmi við afgreiðslu lánsfjárlaga.

b. Endursöluíbúðirnar eru 250.

3. spurning: Hvað liggja fyrir margar umsóknir um íbúðir í verkamannabústöðum?

Hjá stofnuninni liggja umsóknir um byggingu eða kaup á um 520 íbúðum sem enga afgreiðslu hafa hlotið og þar af eru 230 íbúðir vegna c-liðar 233. gr. laga nr. 60/1984. Eins og fram kemur í svari við a-lið annarrar spurningar hefur húsnæðisstjórn gert áætlun um 360 íbúðir.

4. spurning. Hefur verið gerð áætlun um þörf á leiguhúsnæði? Ef svo er, hver er þörfin, skipt eftir kjördæmum?

Í samræmi við 5. lið samkomulags aðila vinnumarkaðarins um húsnæðismál hinn 26. febr. 1986 ritaði Húsnæðisstofnun ríkisins hinn 21. apríl öllum sveitarfélögum landsins bréf með fyrirspurn um þörf fyrir leiguhúsnæði í viðkomandi byggðarlagi. Einnig var sex almannasamtökum ritað slíkt bréf þann 22. júlí s.l. Alls bárust svör frá 39 sveitarfélögum og fimm félagasamtökum. Í þeim 39 sveitarfélögum er svöruðu dreifibréfi Húsnæðisstofnunar bjuggu samtals 193 738 manns þann 1. des. 1985. Það svarar til 88,2% af öllum íbúum í þéttbýli á Íslandi. Endanleg skýrsla um niðurstöður mun birtast í þessum mánuði. Unnt er þó að birta niðurstöðutölur um þörf fyrir leiguíbúðir skv. þessum upplýsingum í einstökum kjördæmum með þeim fyrirvara að lokaskýrslan liggur ekki endanlega fyrir.

Niðurstöður um leiguíbúðaþörf eftir kjördæmum eru sem hér segir, og ég vil taka fram að mörg eða flest af þessum sveitarfélögum svöruðu þannig að þetta er áætlun upp á tvö til fimm ár og er allosaraleg með köflum:

Reykjavík áætlar 750–850 íbúðir, Reykjanes 190–245, Suðurnes 40–45, Vesturland 60–75, Vestfirðir 180–200, Norðurland vestra 95–110, Norðurland eystra 220–230, Austurland 115–120 og Suðurland 140–150 eða samtals 1750–2000 íbúðir á næstu 2–5 árum með mörgum fyrirvörum þó sem voru í þessum skýrslum.

Að auki svöruðu fern almannasamtök, Sjálfsbjörg — Landssamband fatlaðra, Félagsstofnun stúdenta, Bandalag sérskólanema og Leigjendasamtökin fyrirspurn Húsnæðisstofnunar. Samanlögð þörf þeirra fyrir leiguíbúðir virðist vera á sama árabili 800–1000 íbúðir.

Fimmti liður: Til hve margra íbúða voru veitt lán úr Byggingarsjóði ríkisins á árinu 1985 og hvað er áætlað að þær verði margar á yfirstandandi ári vegna byggingar og eldri íbúða?

Nýbyggingar 1985 voru 1450, nýbyggingar á árinu 1986 áætlaðar að verði um 1100–1200. Eldri íbúðir 1985: 1956, 1986: 2100. Íbúðir sem framkvæmdalán var veitt til og konverteruð eru á árinu 1985 eru utan við þessar upplýsingar.

Sjötti liður: Hve mörg lán má áætla að hægt verði að veita úr Byggingarsjóði ríkisins á næsta ári vegna nýbygginga og eldri íbúða? Húsnæðisstjórn hefur ekki enn skipt því fjármagni milli lánaflokka sem Byggingarsjóður ríkisins hefur til ráðstöfunar í útlán á árinu 1987, en það mun verða fljótlega.

Sjöundi liður: Hvað liggja nú fyrir margar umsóknir um lán úr Byggingarsjóði ríkisins vegna nýbygginga og eldri íbúða?

a. Frá 1. sept. s.l. til októberloka hafa um 700 umsóknir um lán til nýbygginga borist til stofnunarinnar. Að auki liggja fyrir um 450 umsóknir sem höfðu borist fyrir 1. sept. s.l. og fá enga lánaafgreiðslu fyrir næstkomandi áramót. Af þessum 450 umsækjendum óskuðu um 200 eftir að fara úr gamla kerfinu yfir í nýja kerfið. Samtals eru þetta um 1150 umsóknir.

b. Frá 1. sept. s.l. til októberloka hafa um 2400 umsóknir um lán til eldri íbúða borist til stofnunarinnar og að auki liggja fyrir um 200 umsóknir sem fá enga lánafyrirgreiðslu fyrir n.k. áramót.

Þessar umsóknir bárust fyrir 1. sept. s.l., en óskað var eftir flutningi úr gamla kerfinu yfir í nýja kerfið. Samtals eru þetta um 2600 umsóknir og fram til n.k. áramóta verða afgreidd lán í tveimur hlutum vegna um 330 eldri íbúða þar sem óskað var eftir flutningi úr gamla kerfinu yfir í nýja kerfið. Seinni hluti þessara lána kemur til greiðslu á árinu 1987.