11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 737 í B-deild Alþingistíðinda. (600)
56. mál, lánveitingar Húsnæðisstofnunar ríkisins
Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Eins og fram kemur hér í svörum hefur Húsnæðisstofnun þegar afgreitt bindandi loforð upp á 160 íbúðir til ýmissa stjórna verkamannabústaða á næsta ári. Því til viðbótar eru til meðferðar 360 íbúðir þannig að 520 íbúðir eru í meðferðinni upp á næsta ár. Hins vegar tók ég fram að til þess að standa við þetta muni þurfa að skoða vel þá afgreiðslu sem verður væntanlega gerð hér á lánsfjárlögum. Um þetta er ég með sérstakar aðgerðir í huga sem munu koma fram mjög fljótlega í ríkisstjórn. Ég vænti þess að það verði almennur stuðningur fyrir því að reyna að standa við að styrkja þetta félagslega svið. Ég held að við séum öll sammála um að þessi þáttur hefur dregist aftur úr.
Hins vegar vil ég segja það í sambandi við félagslegar íbúðir að auðvitað eru menn ekki allir sammála um hvernig með skal fara. Það verður að segjast eins og er í sambandi við þessar svokölluðu kaupleiguíbúðir, sem oft hefur verið rætt um, að auðvitað erum við með þær í verkamannabústaðakerfinu. Það eru í raun og veru kaupleiguíbúðir þó að þær gangi kannske lengra en sumir vilja vera láta að eigi að vera.
Hitt er annað mál að við eigum við það að glíma í okkar þjóðfélagi að sveitarfélögin fyrst og fremst, sem hafa séð um byggingu leiguíbúða, eru mótfallin því að taka á sig meiri skyldur í samræmi við þetta íbúðaform og hafa reynt, um leið og sveitarfélögin hafa byggt slíkar íbúðir, að losa sig snarlega við þær ef þess er kostur með því að setja þær í sölu. Við þurfum því að athuga þetta mál vandlega. Ég vil taka fram að þetta er eitt af því sem hin svokallaða milliþinganefnd, sem skipuð er fulltrúum allra stjórnmálaflokka, hefur verið að ræða um og ég vænti svo sannarlega að sú ágæta nefnd verði það gæfusöm að móta ákveðna stefnu í þessum málum. Það væri aldeilis fengur fyrir hv. Alþingi ef sá dagur kæmi að allir stjórnmálaflokkar næðu saman um skynsamlega stefnu í þessum málum og eftir því bíð ég. Ekki skal standa á mér að framfylgja því þegar að því kemur.
Að því er varðar bréf frá þrennum samtökum í launþegastétt, sem óskuðu eftir sérstaklega að það yrði aukinn möguleiki á byggingu leiguíbúða með kaupleigurétti, þá er það til athugunar. Ég sendi það bréf snarlega til þessarar hv. milliþinganefndar og það mál verður skoðað og væntanlega verður hægt að ræða það síðar á þinginu.