11.11.1986
Sameinað þing: 14. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (602)
56. mál, lánveitingar Húsnæðisstofnunar ríkisins
Félagsmálaráðherra (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég vil aðeins undirstrika það, sem ég kom lauslega inn á áðan í sambandi við þessa könnun, að ég vara við því að það sé fullyrt of mikið um að hún sé raunhæf. Það mun koma fram í þeirri skýrslu sem ég boðaði hvernig þetta er útfært, en ég vara alvarlega við því að það sé farið með þessar umsagnir, sem eru gefnar, eins og þær koma fyrir, óskoðaðar, og því sé slegið föstu að hér sé um raunhæfar tölur að ræða.